Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012 Hreyfing og heilsa T engsl eru á milli búsetu og árang- urs í líkamrækt, skv. rannsókn Eddu Hermannsdóttur fyrir ný- legt lokaverkefni í BS námi í hag- fræði við Hagfræðideild Háskóla Íslands. Þá virðast tekjur fólks líka skipta máli; því hærri sem þær eru, því betri árangri virðist viðkomandi ná í líkamsræktinni. Edda kann- aði þessa þætti á höfuðborgarsvæðinu og það voru íbúar í Vesturbænum í Reykjavík (póstnúmer 107) og á Seltjarnarnesi (170) sem bættu sig mest í þeim líkamsrækt- arprófum sem fólkið tók hjá Eddu. Þar voru meðaltekjur líka hæstar af þeim svæðum sem Edda skoðaði. Sex vikna námskeið Rannsóknina vann Edda í samstarfi við World Class, en hún hefur einmitt starfað hjá fyrirtækinu við kennslu og heimatökin voru því hæg. Edda rannsakaði fimm hópa sem æfðu á mismunandi stöðvum og voru allir á sex vikna námskeiði, sem kallað er Súperform. Námskeiðin voru hvorki ætluð fyrir byrj- endur í líkamsrækt né fyrir einstaklinga í yfirþyngd. „Ég vildi ekki einblína bara á kíló og sentimetra, þó ég hafi tekið þá þætti með, og þessir hópar hentuðu því vel; allir þátttakendur nokkuð vel á sig komnir og vanir líkamsrækt,“ segir Edda. Hver stöð hafði sinn þjálfara sem sá um hópinn og þar sem kennarinn var hvergi sá sami gátu námskeiðin hafa verið frábrugðin að einhverju leyti. Þátttakendur svöruðu spurningalistum þegar námskeiðið hófst; varðandi tekjur, búsetu, hjúskaparstöðu og fjölda barna. Þeir tóku síðan ástandspróf í byrjun námskeiðs, sem voru reyndar ekki öll nákvæmlega eins en þó sambærileg. Ástand- sprófið gengur út á að endurtaka æfingu eins oft og mögulegt er á einni mínútu. Próf- ið var síðan endurtekið í lok námskeiðs til þess að komast að því hve mikið fólk hafði bætt sig. Vert er að geta þess að í ljós kom að al- gengt var að fólk næði ekki þeim árangri sem það ætlaði sér „og var töluvert frá því, bæði hvað varðar kíló og sentimetra. Það sýnir að fólk ætlar sér of mikið og það finnst mér líka áhugaverðar niðurstöður. Það er þekkt að þeir sem ætla sér að ná miklum árangri á stuttum tíma gefast miklu frekar upp en aðrir, enda markmiðin oft óraunhæf.“ Heilsa og tekjur eru þættir sem hafa oftar en ekki verið settir í samhengi í rannsóknum undanfarin ár, eins og bent er á í ritgerðinni og segir Edda að niðurstöður hennar ýti undir þá kenningu. Það vakti athygli áhuga Eddu þegar Steinar B. Aðalbjörnsson velti upp þeirri spurningu á heimasíðu sinni, eftir að hafa hlaupið um Reykjavík og Seltjarnarnes, hvort hugarfar íbúa Seltjarnarness væri MISJAFN ÁRANGUR Í LÍKAMSRÆKT Búsetusvæði og tekjur skipta máli ÍBÚAR Í VESTURBÆNUM Í REYKJAVÍK OG Á SELTJARNARNESI BÆTTU SIG MEST Í LÍKAMSRÆKT Á SEX VIKNA NÁMSKEIÐI, SKV. NÝLEGRI RANNSÓKN. MEÐALTEKJUR ER HÆSTAR ÞAR AF ÞEIM SVÆÐUM SEM BORIN VORU SAMAN. NIÐURSTÖÐUR ERU MARKTÆKAR Á FIMM BÚSETUSVÆÐUM AF ELLEFU. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is 107 Vesturbær 170 Seltjarnarnes 101 Miðbær 112 Grafarvogur 270 Mosfellsbær Hverjir bættu sig mest? 35 30 25 20 15 10 5 0 33.74% 26.48% 25.92% 25.11% 10.17% Mismunandi eftir hverfum hve mikið fólk bætti sig í ástandsprófi eftir sex vikna námskeið Með því að borða tómata á hverj- um degi, eða hafa reglulega holla sósu úr því góða hráefni út á past- að, gæti fólk minnkað líkurnar á því að fái heilablóðfall. Ný finnsk rannsókn þykir benda til þessa en greint er frá málinu í tímaritinu Neurology. Í tómötum eru kröftug andox- unarefni sem eru góð fyrir heil- ann, að sögn rannsakenda, og eldaðir tómatar virðast mun betri en ferskir. „Þessi rannsókn er viðbót við sönnunargögn sem áður lágu fyrir um að þeir sem borða mikið af ávöxtum og grænmeti séu í minni hættu en aðrir að fá heilablóðfall,“ segir stjórnandi rannsóknarinnar, Jouni Kappi, hjá Kuopio- háskóla í austurhluta Finnlands. „Það er gott fyrir heilsuna að hafa tómata á matseðlinum nokkrum sinnum í viku. Að neyta þeirra daglega væri líklega enn betri vörn,“ segir hann. NÝ FINNSK RANNSÓKN Tómatar mikilvægir Tómatar eru hollir. Morgunblaðið/Þorkell Áfengisdrykkja miðaldra fólks og gamals kostar enska heilbrigð- iskerfið margfalt meira en vandamál vegna drykkju ungmenna. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn breskrar stofnunar sem fer með þessi mál og birt var í gær. Í ljós kom að kostnaður við sjúkrahúsdvöl vegna áfengisdrykkju fólks á aldr- inum 55-74 ára var 825 milljónir punda 2010 og 2011. Það er and- virði röskra 163 milljarða króna! Tíu sinnum hærri upphæð en sambærilega tala hjá 16-24 ára, sem þó ku drekka mikið. Alls runnu tveir milljarðar punda úr sjóðum hins opinbera til innlagna á sjúkrahús og læknismeðferða vegna áfeng- isvandamála á þessu tímabili; rúmir 394 milljarðar króna. Tal- ið er, segir í skýrslunni, að 10 milljónir Englendinga drekki meira en nemur ráðlögðu hámarksmagni. ELDRI ENGLENDINGAR BLAUTIR Dýrkeypt drykkja Allt er best í hófi. Morgunblaðið/Golli Ertu stundum hress og brött/ brattur eftir að hafa vakað heila nótt, jafnvel til í hvað sem er? Það er eðlilegt ástand, svefnleysi veldur nefnilega hækkun dópa- míns í líkamanum sem þýðir að maður verður jákvæðari og framkvæmdaglaðari en ella, auk þess sem löngunin til að stunda kynlíf getur aukist. Þetta hljómar ef til vill vel en er því miður ekki heppilegt til lengdar. Í fyrsta lagi varir ástandið mjög stutt og í öðru lagi getur hækkun dópa- míns leitt til fíknar og hvatvíslegrar hegðunar. Þær stöðvar heilans sem stýra skipulagningu og rökhugsun lokast einfald- lega fái líkaminn ekki nægilegan svefn og geta valdið því að fólk fer að hugsa órökrétt, verður yfirgengilega bjartsýnt og tekur fúslega áhættu. FYLGIKVILLAR SVEFNLEYSIS Fölsk jákvæðni Svefn er nauðsynlegur. AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.