Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 6
HEIMURINN
NORÐUR-KÓREA
PYONGYANG Yfirvöld í
Norður-Kóreu kváðust nú líta
svo á að þau hefðu aukið svig-
rúm til tilrauna með langdrægar
flaugar sínar. Ástæðan er sú að
Suður-Kórerumenn hyggjast
þrefalda drægni langdrægra
flauga sinna með blessun
Bandaríkjamanna.Tilraunir
Norður-Kóreumanna hafa
hingað til mistekist hrapallega.
TYRKLAND
ANKARA Tyrkneskar herþotur neyddu sýrlenska farþegaflugvél
á leið frá Moskvu til Damaskus til að lenda í Tyrklandi vegna
gruns um að „óæskilegur varningur“ væri um borð.Tyrknesk
stjórnvöld segja að vopn hafi verið í vélinni. Sýrlendingar segja
Tyrki ljúga og Rússar hafa einnig mótmælt. Sýrlendingar fá vopn
frá Rússum, sem eru með flotastöð í Sýrlandi. Grunnt hefur verið
á því góða milli Sýrlendinga og Tyrkja.
VENESÚELA
CARACAS Hugo Chavez var
endurkjörinn forsetiVenesúela
með 55% atkvæða. Sitji hann út
kjörtímabilið, sem
er sex ár, mun
hann hafa verið
við völd í 20 ár.
Chavez hefur í
þrígang farið í
aðgerð vegna krabbameins. Hann
kveðst nú vera læknaður.
SÓMALÍA
MOGADISHU Abdi Farah Shirdon Said var skipaður forsætisráð-
herra í nýrri stjórn Sómalíu. Said er kaupsýslumaður
og var hagfræðingur sómalskra stjórnvalda fyrir
aldarfjórðungi. Bundnar eru vonir við að hann muni
binda enda á tveggja áratuga átök í landinu. Upp-
reisnarmenn, sem tengjast hryðjuverkasamtökunum
al-Qaeda, kváðust hafna honum og kölluðu hann
strengjabrúðu erlendra afla.
Milljónir stúlkna um allan
heim eru dæmdar til fátæktar
vegna þess að þær njóta ekki
skólagöngu. Þetta segir í
skýrslu Sameinuðu þjóðanna
sem ber heitið „Vegna þess
að ég er stúlka: staða stúlkna
í heiminum 2012“, sem gefin
var út á fimmtudag í tilefni af
fyrsta alþjóðlega degi stúlk-
unnar. „Talið er að 75 millj-
ónir stúlkna vanti í skóla
um allan heim, sem er
alvarlegt brot á rétt-
indum og gríðarleg
sóun á hæfileikum
æskunnar,“
sagði í kynn-
ingu á skýrsl-
unni.
Ótti talibana við menntunkvenna er slíkur að áþriðjudag ruddi útsendari
þeirra sér leið inn í skólabíl í Swat-
dal í Pakistan og skaut 14 ára
stúlku, sem hefur barist fyrir rétti
stúlkna til skólagöngu, í höfuðið.
Malala Yousafzai er enn ekki úr
lífshættu. Skotið fór í gegnum höf-
uð hennar og hafnaði í öxlinni, rétt
við mænuna. Hún fór í aðgerð og
kúlan var fjarlægð. Um helgina
mun skýrast hvort hún lifi árásina
af.
Talibanar lýstu yfir ábyrgð á til-
ræðinu, sögðu að hún hefði verið
„tákn vestrænnar menningar á
svæðinu; hún var opinber talsmaður
hennar“ og sögðust myndu reyna
að myrða hana á ný ef hún næði
sér. Árásin á Yousafzai hefur vakið
hörð viðbrögð í Pakistan og verið
fordæmd um allan heim.
Okkar verstu martraðir
Ýmsir segja að skotárásin ætti að
verða til þess að þeir, sem vilji frið-
þægjast við talibana, átti sig á villu
síns vegar. Dálkahöfundurinn Ayaz
Amir sagði að ódæðisverkið væri
birtingarmynd þess „að hafa árum
saman leikið sér að eldinum og búið
til djöfla og Frankensteina sem við
hefðum átt að átta okkur á að
myndu koma okkur í koll og verða
okkar verstu martraðir“.
Yousafzai sýndi mikið hugrekki
þegar hún hóf baráttu sína fyrir
menntun stúlkna fyrir þremur ár-
um. Talibanar höfðu þá náð yfir-
ráðum í Swat-dal, sem kallaður hef-
ur verið Sviss Pakistans. Þeir
brenndu skóla fyrir stúlkur og
héldu íbúunum í greipum skelfingar
þar til herinn skarst í leikinn 2009.
Þeir hröktu talibanana í burtu úr
dalnum, en hefur ekki tekist að losa
um ítök þeirra í héruðum eins og
Waziristan og tilræðið á fimmtudag
vekur spurningar um hvort þeir
ætli að láta til skarar skríða á ný í
Swat.
Byrjaði að blogga 11 ára
Yousafzai vakti athygli heimsins á
kúgunaraðferðum talibana þegar
hún fór að blogga á vef breska
ríkisútvarpsins, BBC. Þá var
hún aðeins 11 ára, en bar-
átta hennar var í þágu
þúsunda stúlkna um
allan norðvesturhluta
Pakistans þar sem öfgamenn úr
röðum talibana hafa náð fótfestu.
Bann talibana við menntun
kvenna var kveikjan að mótmælum
Yousafzai. „Ég var mjög hrædd
þegar ég sá lík hanga í snörum í
Green Chowk í Swat, en ákvörðun
vígamanna um að banna stúlkum að
ganga í skóla var mér mikið áfall
og ég ákvað að spyrna gegn öflum
afturhalds,“ sagði Yousafzai í pall-
borðsumræðum í Mingora í janúar.
„Það var mjög sárt fyrir mig og
bekkjarfélaga mína að heyra þær
fréttir að skólanum okkar yrði ef til
vill lokað og við fengjum ekki að ná
okkur í menntun.“
Dagbók kornblómsins
Yousafzai byrjaði að skrifa á vef
BBC í janúar 2009. Dagbókar-
færslur hennar birtust reglulega í
fjóra mánuði undir nafninu „Gul
Makai“ (garðakornblómið). Þar end-
urspeglaði hún hlutskipti skelfingu
lostinna skólafélaga, fjölskyldu og
nágranna sinna. Yousafzai fékk frið-
arverðlaun Pakistans fyrir skrif sín.
Héraðsstjórnir í landinu heiðruðu
hana einnig og styrktu. Viðbrögðin
urðu henni hvatning til að setja á
fót góðgerðarsamtök, Menntastofn-
un Malölu.
„Talibanar eyðilögðu 400 skóla í
Swat og mig langar til að vinna að
endurreisn eyðilagðra skóla til að
nemendur á þessum svæðum eigi
þess kost að fá menntun,“ sagði
Yousafzai, sem kveðst vilja láta gott
af sér leiða í pólitík þegar hún lýk-
ur skólagöngu.
Menntun færir konum vald og
rödd. Þess vegna stendur talibönum
ógn af stúlkum eins og Yousafzai,
sem krefjast menntunar og vilja
láta til sín taka. Hún bauð þeim
byrginn og nú berst hún fyrir lífi
sínu.
Tilræði í
Pakistan
vekur óhug
VÍGAMAÐUR TALIBANA REYNDI Á ÞRIÐJUDAG AÐ MYRÐA
14 ÁRA STÚLKU, SEM BAUÐ ÞEIM BYRGINN. HÚN LIGGUR
NÚ MILLI HEIMS OG HELJU. TILRÆÐIÐ HEFUR VAKIÐ ÓHUG
Í PAKISTAN OG VERIÐ FORDÆMT UM ALLAN HEIM, EN
TALIBANAR HÓTA AÐ REYNA AFTUR LIFI HÚN AF.
Stúlka á
skólabekk
í Pakistan.
FÁ EKKI MENNTUN
Konur kveikja á kertum og mótmæla tilræðinu við Malölu Yousafzai og öfgum talibana í Pakistan á þriðjudag. Til
hægri er mynd af hinni 14 ára stúlku, sem 11 ára gömul bauð talibönum byrginn.
AFP
* Ég vil verða heiðarlegur, heill og iðjusamur stjórn-málamaður vegna þess að það er brýn þörf á slíkumstjórnmálamönnum í landi okkar. Malala YousufzaiAlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012