Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 57
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Karlmaður heldur konu og
dreng lokuðum í herbergi ár-
um saman. Svo kemur að því
að móðirin undirbýr flótta-
áætlun.
Það er undirliggjandi hryll-
ingur í þessari bók Emmu
Donoghue en hún fer þá
snjöllu leið að láta fimm ára
drenginn segja söguna og
sakleysi hans setur sérstakan
blæ á sögu sem er sterk og
eftirminnileg.
Barnslegt
sakleysi
í hryllingi
Matreiðslubækur njóta stöðugt vinsælda
og allnokkrar eru þegar komnar út og
fleiri væntanlegar fyrir jól. Meðal þessara
bóka eru bækurnar Konfekt og Bolla-
kökur sem koma út í sérhönnuðum köss-
um.
Í Konfekt- kassanum er bók sem lýsir
konfektgerð frá upphafi til enda ásamt 20
uppskriftum með myndum. Í kassanum
eru líka 30 fjölnota sílikonform sem auð-
velda konfektgerðina. Meðal þess konfekts
sem hægt er að gera er dökkt súkkulaði
með hindberjum, hnetudraumur og korn-
flexbitar.
Í Bollaköku-kassanum er sömuleiðis
bók þar sem bollakökugerð er lýst og 20
uppskriftir með myndum. Sílikonform sem
einfalda baksturinn eru einnig í kassanum.
Bollakökur með stítrónukremi, tiramisu-
bollakökur og bláberjabollakökur eru
meðal þess sem lesandanum er kennt að
baka. Og svo er bara að byrja að búa til
eigið konfekt og bollakökur og njóta þess
að borða!
Morgunblaðið/RAX
GERÐU ÞITT EIGIÐ
KONFEKT OG BAK-
AÐU BOLLAKÖKUR
Konfekt og
bollakökur.
BÆKUR FYRIR SÆLKERA
Bollakökur
og konfekt
Íslenskir rithöfundar
hafa ekki verið iðnir við
að sinna vísindaskáld-
skap. Fyrsta skáldsaga
Davíðs Þórs Jóns-
sonar guðfræðings er
sérstök fyrir þær sakir
að hún er hreinn vís-
indaskáldskapur. Hún
nefnist Orrustan um
Fold og kemur út í lok mánaðarins. Þar segir
frá baráttu Íslendinga framtíðarinnar við
geimkóngulær um yfirráðin yfir tungli sem
snýst um gríðarstóra gasplánetu í fjarlægu
sólkerfi.
Áður hefur Davíð Þór sent frá sér ljóða-
bækur fyrir börn, Vísur fyrir vonda
krakka og Jólasnótirnar þrettán.
VÍSINDA-
SKÁLDSAGA FRÁ
DAVÍÐ ÞÓR
Davíð Þór Jónsson Ár kattarins nefnist nýjasta spennusaga
Árna Þórarinssonar. Þar er Einar blaða-
maður í forgrunni og fæst við erfið mál. En
hann hefur einnig fengið nýja og sérstaka ná-
granna. Þrír kettir, sem allir eru læður, eru
fluttir með húsbændum sínum á efri hæðina
hjá Einari. Einn er svartur, annar hvítur og sá
þriðji svarthvítur. Þeir heita Hannes,
Hólmsteinn og Hannes Hólmsteinn og
valda Einari töluverðum heilabrotum.
ÞRÍR KETTIR
OG HANNES
Hannes
Hólmsteinn
Veisla í farángrinum, hinar róm-
uðu minningar Ernest Heming-
way um listalífið í París á þriðja
áratug 20. aldar, hefur verið
endurútgefin í kilju. Hemingway
skrifaði bókina á síðustu árum
sínum og talar þar af innilegri
væntumþykju um Hadley, fyrstu
eiginkonu sína af fjórum.
Á sama tíma kemur út skáld-
sagan Parísarkonan eftir Paulu
McLain þar sem Hadley rekur
ástarsögu þeirra Ernest. Þetta
er afar læsileg og tilgerðarlaus
skáldsaga þar sem höfundi tekst
einkar vel að skapa samúð með
aðalpersónum.
Ernest
Hemingway
og Hadley
Skáldskapur
og stórvirki
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
MARGAR ÁGÆTAR SKÁLDSÖGUR ERU
Á MARKAÐNUM SEM ÁSTÆÐA ER TIL AÐ
LESENDUR KYNNI SÉR, SEM OG KLASSÍSKAR
ENDURMINNINGAR HEMINGWAYS. ÞEIR SEM
HAFA ÁHUGA Á VÍSINDUM ÆTTU SVO EKKI
AÐ MISSA AF UPPHAFINU, NÝRRI BÓK SEM
ER SANNKALLAÐ STÓRVIRKI.
Upphafið er bók sem þeir fróðleiksfúsu mega ekki láta
fram hjá sér fara. Bókin er hafsjór af fróðleik, glæsilega
myndskreytt og sérlega vel upp sett. Þarna er að finna yf-
irlit yfir milljóna ára sögu lífsins á jörðinni og sjá má
furðulegar skepnur, sérkennilegar beinagrindur og marg-
slungna steingervinga. Forlagið gefur út þessa veglegu
bók og á skilið að fá heilmikið hrós fyrir metnaðinn.
Þetta er bók sem má með sanni kallast stórvirki.
Sannkallað stórvirki
um forsögu lífsins
Julian Barnes er í hópi virtustu rithöf-
unda Breta. Hann hlaut Booker verð-
launin árið 2011 fyrir skáldsöguna, Að
endingu, sem nú er komin út í íslenskri
þýðingu. Hann á hrós skilið fyrir hnit-
miðaða frásögn og vel skrifaða bók.
Aðalpersónan er af þeirri gerð að ekki
er víst að allir lesendur nái tengingu við
hana. En svo má auðvitað segja að viss
ánægja geti falist í því að láta skáld-
sagnapersónu fara í taugarnar á sér.
Booker verðlaunabók frá Barnes
* Ást byggist svo mikið á þakklætiog hégómaskap að hún þolir ekkiafskiptaleysi. Jane Austen BÓKSALA 23. sept.-6. okt.
Allar bækur
Metsölulisti bókaverslana byggir á upplýsingum frá flestum
bókaverslunum landsins og öðrum verslunum sem selja
bækur (stórmörkuðum, bensínstöðvum o.fl.) .
1 Fimmtíu gráir skuggar - kiljaE.L. James
2 Létta leiðin - kiljaÁsgeir Ólafsson
3 Stóra Disney heimilisréttabókinDisney
4 Minning um óhreinan engil - kiljaHenning Mankell
5 Flöskyskeyti frá P - kiljaJussi Adler Olsen
6 Eldað með Ebbu í LatabæEbba Guðný Guðmundsdóttir
7 Eldvitnið - kiljaLars Kepler
8 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
9 Hermiskaði - kiljaSuzanne Collins
10 Herbergi - kiljaEmma Donoghue
Uppsafnaður metsölulisti
1.janúar - 6.október
1 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran
2 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir
3 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
4 Fimmtíu gráir skuggar - kiljaE.I. Jones
5 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir
6 Hungurleikarnir - kiljaSuzanne Collins
7 Englasmiðurinn - kiljaCamilla Lackberg
8 Eldar kvikna - kiljaSuzanne Collins
9 Snjókarlinn - kiljaJo Nesbo
10 Konan sem hann elskaði áður- kilja
Dorothy Koomson
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Enginn verður óbarinn biskup.