Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 49
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is
Í veiðideild Ellingsen fæst mikið
úrval af gæðavörum fyrir veiði-
ferðina. Byssur, fatnaður og gott úrval
skotfæra frá þekktum framleiðendum,
eins og Browning, Remington, Sako,
Winchester og Devold. Vandaður
búnaður sem stenst kröfur íslenskra
veiðimanna. Í veiðideildinni starfa
sölumenn með víðtæka þekkingu og
mikla reynslu af veiði og veiðisvæðum.
REMINGTON
VERSA MAX SYNTHETIC 26
36.665 kr. léttgr. í 6 mán.
219.990 KR.
FULLT VERÐ 269.990 KR.
REMINGTON
VERSA MAX CAMO 26
40.832 kr. léttgr. í 6 mán.
244.990 KR.
FULLT VERÐ 299.990 KR.
BROWNING
MAXUS 26 COMPOSITE
33.332 kr. léttgr. í 6 mán.
199.990 KR.
FULLT VERÐ 259.990 KR.
BROWNING
MAXUS 26 CAMO
35.832 kr. léttgr. í 6 mán.
214.990 KR.
FULLT VERÐ 269.990 KR.
Fyrirtækið sem Jón er kominn á
samning hjá heitir Epic Records og
tilheyrir Sony-samsteypunni, en meðal
tónlistarmanna sem hafa verið á mála
hjá útgáfunni eru Michael heitinn
Jackson. Bryant Reid er sá sem fylgd-
ist með Jón spila á bar í New York
og kallaði í kjölfarið á hann í prufur
þar sem bróðir hans L.A. Reid, út-
gáfustjóri fyrirtækisins, ásamt hópi
annarra stjórnenda hlýddu á tónlist
Jóns og félaga. L.A. Reid er mörgum
kunnur af sjónvarpsskjánum sem dóm-
ari í hinum amerísku X Factor þátt-
um.
„Ég hitti Jón fyrir um ári og hann
var algjörlega meiriháttar,“ segir
Bryant Reid í spjalli við Sunnudags-
blað Morgunblaðsins.
Hann tekur sérstaklega fram að
það sé mikið afrek hjá Jóni að landa
plötusamningi á einum degi, en Jón
fór ásamt félaga sínum Kristjáni Sturlu
Bjarnasyni að spila fyrir aðstandendur
útgáfunnar í sumar en náði aðeins að
spila tvö lög af þeim fimm sem þeir
ætluðu að spila. Þá voru þeir stopp-
aðir af og stjórnendurnir vildu ráða
ráðum sínum.
Hefur „stjörnueiginleika“
Ef marka má orð Reid gerist þetta
ekki oft að svona stór útgáfufyrirtæki
bjóði óþekktum tónlistarmanni samn-
ing eftir tvö lög. „Að vera boðinn
samningur sama dag og þú spilar fyrir
stjórnendur útgáfunnar er aðdáun-
arvert og sýnir hvað Jón er hæfi-
leikaríkur.“
En hvað er það við Jón Jónsson
sem heillaði þá bræður L.A. og
Bryant Reid? „Það sem ég féll fyrir
er stíllinn hans, röddin og persónu-
leikinn. Hann hefur mikla útgeislun á
sviði og tengir vel við áhorfendur.
Hann hefur þennan „stjörnueiginleika“
og hefur alla burði til að ná langt.
Hann er einstakur lagahöfundur, hefur
skilning á melódíu og semur frábær
lög,“ segir Reid og bætir við að það
sé engin hætta á að karakter Jóns
týnist þótt hann sé kominn á mála
hjá stóru útgáfufyrirtæki.
„Jón er frábær gaur, hann er af-
slappaður, fyndinn og alltaf í góðu
skapi. Það er frábært að vinna með
honum. Það eru engin áform um að
breyta Jóni Jónssyni. Hann á að vera
hann sjálfur,“ segir Reid.
Aðdáunarvert að
fá plötusamning
samdægurs
Bryant Reid er ekki óvanur í að uppgötva
nýtt hæfileikafólk. Það var hann sem benti
bróður sínum á rónlistarmanninn Usher
UMBOÐSMAÐUR JÓNS JÓNSSONAR ER HÆSTÁNÆGÐUR MEÐ AÐ
HAFA FENGIÐ HANN Á MÁLA HJÁ SONY OG SEGIR HANN EIN-
STAKAN LAGAHÖFUND MEÐ MIKLA ÚTGEISLUN Á SVIÐI.
Mér fannst bara ekki þægilegt að fara út
fyrir minn ramma og tala við einhvern
Sigga hjá Jóni Bakan.“
Finnst öll óvissa óþægileg
Jón segist eiga góða að og það skipti máli.
„Ég hef verið heppinn með vinina í kringum
mig, fjölskylduna og kærustuna sem ég
eignaðist og hef verið með í nærri tíu ár.
Þegar manni líður vel í sínu umhverfi fær
maður þetta sjálfstraust sem maður þarf, án
þess að ég sé bara umkringdur einhverju já-
fólki. Það er alls ekki þannig. Það eru lög á
plötunni minni sem kærastan mín vill ekki
hlusta á, biður mig að skipta um lag. Það er
líka mikilvægt að fá gagnrýni en samt fá
hvatningu.“
Jón segir blöndu af kvíða og tilhlökkun
bærast í brjóstinu nú þegar hann hefur rit-
að undir plötusamning við Sony. „Mér finnst
öll óvissa yfirleitt óþægileg. Staðan er svolít-
ið þannig núna að maður veit ekkert næstu
skref. Ef ég ætti að stjórna þessu alveg þá
myndi ég bara vilja vera hér heima og taka
upp og fara svo bara í styttri ferðir út. En
ég veit alveg að það virkar ekkert þannig,
ég þarf að leggja heilmikið á mig til að upp-
fylla þennan samning og ábyggilega vera
mikið í burtu. En þetta er auðvitað eitthvað
sem hefur verið draumur lengst aftast í
hausnum. Þetta gerðist geðveikt hratt og
þótt þetta hafi verið klárað fyrir tveimur
mánuðum liggur við að ég sé enn að melta
þetta. Ég vona allavega að ég geti gert
þetta þannig að ég verði sáttur við sjálfan
mig,“ segir þessi hógværi poppari.
Jón Ragnar Jónsson er sann-
kölluð fyrirmynd, en auk þess
að vera atorkusamur tónlist-
armaður er hann hreystin
uppmáluð og hógvær með
eindæmum. Hann stundar
knattspyrnu af kappi og
snertir ekki áfengi eða tóbak.
Morgunblaðið/Árni Sæberg