Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 20
* Hvernig á að kasta bolta Það sem þarf að hugaað hér er að koma olnboga upp fyrir öxl og draga hönd-
ina upp í circa 90 gráður, með úlnliðinn aðeins út fyrir og
boltann fyrir ofan höfuð. Nú ertu kominn í rétta kast-
stöðu og þá er kom-
ið að kastinu sjálfu.
Þá þarf að stíga fram
í gagnstæðan fót og
kasta beint í brjóst-
hæð. Þegar komið er
út í lengri sendingar
er gott að láta fótinn
sem er samfara
hendinni fylgja eftir
með hreyfingunni.
Hvernig á að grípa
boltann: Byrjar á því að mynda skál með höndunum og
hafa mýkt í þeim þannig að þegar boltinn kemur þá gefur
þú aðeins eftir með boltanum. Algeng mistök hjá ungum
iðkendum eru að rétta út stífar hendurnar sem boltinn
skýst af.
L
andsliðsmenn og silfurdrengir frá Ólympíu-
mótinu í Peking árið 2008 hafa tekið sig saman
og búið til kennsludisk í handknattleik í sam-
starfi við Ogfilms. Áætlað er að diskurinn komi
út í nóvember en þeir hafa lokið tökum og eru í frá-
gangi á efninu. Bjarni Fritzson, Sturla Ásgeirsson og
Ingimundur Ingimundarson sjá um gerð disksins en
gestir og ráðgjafar við myndbandið eru allt frá Ólafi
Stefánssyni og Snorra Steini Guðjónssyni til Björgvins
Páls Gústavssonar.
Markmið verkefnisins er þríþætt. Í fyrsta lagi að út-
vega ungum iðkendum hjálpartæki til þess að geta bætt
sig í íþróttinni upp á eigin spýtur. Í öðru lagi að ýta
undir áhuga á íþróttinni og kenna krökkum að leika sér
í handbolta. Í þriðja lagi að hjálpa til við útbreiðslu
handknattleiks. „Við teljum að slíkur diskur gæti komið
sér vel fyrir bæjarfélög úti á landi sem hafa ekki ríka
handboltahefð,“ segir Bjarni. „Við höfum áætlað að
dreifa disknum samfara kynningu á íþróttinni út um allt
land, ef áhugi er fyrir því hjá HSÍ og bæjarfélögunum.“
Disknum er skipt niður í fimm kafla. „Í fyrsta kafla
er sóknarleikur tekinn fyrir þar sem er farið yfir skot,
sendingar, fintur og knattrak og fjöldi góðra gesta úr
landsliðum Íslands kemur með ráðleggingar,“ segir
Bjarni. Aðspurður hvað fintur sé, segir hann að það sé
annað orð yfir gabbhreyfingar.
Í öðrum kafla verður varnarleikur tekinn fyrir en
þeim kafla er stýrt af landsliðsmönnunum Ingimundi
Ingimundarsyni og Sigfúsi Sigurðssyni. Í þriðja kafla er
farið í líkamsþjálfun og í þeim fjórða er krökkum kennt
að leika sér í handbolta utan vallar. Í fimmta og síðasta
kaflanum koma landsliðsmenn og konur með góð ráð til
ungra iðkenda, eins og til dæmis Stella Sigurðardóttir
og Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliði íslenska landsliðs-
ins.Handbolti er íþrótt þar sem ekki aðeins líkamlegur styrkur og baráttuandi skiptir máli heldur einnig tækni og lipurð.
Morgunblaðið/Golli
HANDBOLTI
Kennum
krökkum
KENNSLUMYNDBAND Í HANDBOLTA
ER AÐ KOMA ÚT Í NÓVEMBER OG Á AÐ
ÝTA UNDIR ÍÞRÓTTAIÐKUN UNGS FÓLKS.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
* Undirhandarskot á samstæðum fæti Það erframkvæmt á þann hátt að sótt er að markinu með hönd-
ina uppi, síðasta skrefið er tekið í samstæðan fót og að-
eins út fyrir varnarmanninn, hendinni sveiflað niður á við,
undir hendur varnarmannsins og skotinu fylgt á eftir með
sterkri úlnliðshreyfingu. Þetta skot getur komið sér mjög
vel ef upp koma snöggar opnanir í vörn andstæðinganna.
* Maður á mann Þegar það er vont veður úti, þáfærum við okkur inn og spilum handbolta þar. Skemmtilegt
er að spila maður á mann leik með einn í marki. Reglurnar
eru afar einfaldar, það má bara taka þrjú skref og bannað
að brjóta fólsku-
lega af sér. Við
fengum handbolta-
sérfræðingana Ein-
ar Örn og Þorkel
Gunnar til að taka
smá sýnikennslu í
maður á mann
leiknum.
Keppt í vító: Við
Snorra Sturlu.
Annar skemmtilegur leikur sem hægt er að spila innan
dyra er hefðbundin vítakeppni, þar sem keppendur skiptast
á að taka víti og vera í marki. Sturla Ásgeirs skoraði á
handboltasérfræðing Sport.is, hann Snorra Sturlu, í vító, en
samkvæmt óáreiðanlegum fréttum þá er Snorri Sturlu
svakaleg vítaskytta.
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Golli
*Þeir sem ætla að ná miklum árangri í líkamsrækt á stuttum tíma gefast frekar upp »22Heilsa og hreyfing