Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 52
Menning 52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012 Myndlistarmennirnir Sirra Sigrún Sigurð- ardóttir og Erling T.V. Klingenberg opnuðu í liðinni viku sýninguna „Make a Mountain Out of a Molehill“ í 68 sqm galleríinu í Kaup- mannahöfn. Þegar sýningin var opnuð voru efni til sköpunar til reiðu, allt sem til þurfti, og bjóða listamennirnir gestum síðan að taka þátt í að búa verkin til í sýningarrýminu. Sýningin verður því ekki fullbúin fyrr en henni lýkur, en Erling og Sirra Sigrún vinna iðulega með eðli umbreytinga í verkum sín- um. Þau hafa verið áberandi í starfi hópsins sem stendur að Kling & bang-galleríinu. SIRRA OG ERLING SÝNA SÝNING BREYTIST Þau Erling Klingenberg og Sirra Sigrún Sigurð- ardóttir sýna í 68 sqm galleríi í Kaupmannahöfn. Morgunblaðið/Kristinn Ágúst Ólafsson flytur sönglögin ásamt Sesselju Kristjánsdóttur og Evu Þyrí Hilmarsdóttur. Á Tíbrártónleikum í Salnum í Kópavogi í dag, laugardag klukkan 16, skyggnast Sesselja Kristjánsdóttir messósópran, Ágúst Ólafs- son, barítón og píanóleikarinn Eva Þyri Hilm- arsdóttir inn í ævintýraheim Gustav Mahlers. Á tónleikunum flytja þau safn laga eftir Ma- hler við texta úr safni þýskra þjóðkvæða sem ber heitið Des Knaben Wunderhorn. Textar þessara þjóðkvæða spila veigamikið hlutverk í mörgum frægustu verkum Mahlers. Kvæðin fjalla um ástina, hermennsku, sársauka og sorg en á milli eru glettnir textar. SÖNGLÖG MAHLERS Í SALNUM ÁST OG SÁRSAUKI Kínverski myndlistarmað- urinn Ai Weiwei er í senn einn áhrifamesti myndlist- armaður samtímans og einn óvægnasti gagnrýn- andi kínverskra stjórn- valda. Ai er ósáttur við að sænska akademían hafi kosið að veita landa hans, Mo Yan, Nóbelsverðlaunin að þessu sinni. Á sama tíma og stjórnvöld í Kína fögnuðu ákvörðuninni brást Ai Weiwei reiður við og segir valið „móðgun við mennskuna og bókmenntirnar“. Hann telur höfundinn engan veginn standa jafnfætis fyrri handhöfum Nóbelsverðlaunanna. Í The Guardian er haft eftir prófessor við Lundúnahásóla að Mo Yan takist á við stór málefni en sé ekki pólitískur andófsmaður. AI ÓSÁTTUR VIÐ LANDA SINN GAGNRÝNIR MO Myndlistarmað- urinn Ai Weiwei Því er oft haldið að fullorðna fólkinu aðtölvuleikir og lágmenning sé það einasem krakkar og unglingar hafi áhuga á. Gegn þeirri klisju eru mörg sláandi dæmi eins og unglingahópur í Hagaskóla er dæmi um. Strákarnir voru farnir að kaupa sér árs- kort í Borgarleikhúsið þegar þeir voru krakkar og gera það enn núna á unglingsár- unum. Hrafn Haraldsson var ekki nema ell- efu ára þegar hann tók sig til og fékk vin sinn, Kristján Geir Sigurðsson, sem er oftast kallaður Geir, í lið með sér og keypti árskort í Borgarleikhúsinu. Þeir voru svo ánægðir með sýningar leikhússins að þeir keyptu aft- ur árskort árið eftir. Hrafn hringdi í fleiri fé- laga sína og hópurinn hefur stækkað með ár- unum. Nú kalla þeir sig „Sjömenningana“, piltarnir sjö sem eru orðnir vel þekktir í Borgarleikhúsinu fyrir menningaráhuga sinn. Hópinn skipa, auk Hrafns Haraldssonar og Kristjáns, þeir Sigurður Sævar Magn- úsarson, Páll Nordal Eggertsson, Bergmund- ur Bolli Helgason, Valtýr Örn Kjartansson og Bjarni Ólafsson. Aðspurðir hvort þeir stefni að því að búa til menningarmafíu segir Sigurður Sævar að það sé málið. „Þeir Hrafn stofnuðu til mafí- unnar þegar þeir voru ellefu ára og nú er ég genginn í hana,“ segir hann og hlær. Þeir eru ekki börn leikara, þannig að blaðamanni Morgunblaðsins leikur forvitni á því að vita hvað hafi komið til? „Ætli það hafi ekki verið auglýsingin á einhverju verkinu sem varð til þess að mig langaði í árskort,“ segir Hrafn en segist ekki vera viss um að hann muni þetta nákvæmlega enda fjögur ár síðan hann keypti sitt fyrsta árskort. Hrafn er reyndar ekki alveg ókunnur leik- húsinu því hann lék aðalhlutverkið í uppsetn- ingu Þjóðleikhússins á Skilaboðaskjóðunni ár- ið 2007. Hann er á því að Gauragangur hafi verið skemmtilegasta verkið sem þeir hafi séð fram til þessu. Uppsetningin hafi verið góð, mikið af flottum lögum og svo hafi ekki skemmt fyrir að umfjöllunarefnið er ungling- ar eins og þeir sjálfir. Uppáhaldsverk Sigurðar Sævars er aftur á móti samfélagsádeiluverkið Zombie-ljóð sem frumsýnt var í leikhúsinu í fyrra. „Það var mjög gott verk,“ segir Sigurður. „Það spurði áleitinna spurninga, svona heimspekilegt verk.“ En báðir eru á því að öll verkin sem þeir hafi séð hafi verið góð, þótt þessi standi upp úr. Kvikmyndahús eða leikhús? Aðspurðir hver sé munurinn á að fara í leik- hús og kvikmyndahús byrjar Sigurður á að taka fram að hann fari nú reyndar ekki oft á bíó. „Það er svo gaman í leikhúsi með alla leikarana lifandi fyrir framan mann,“ segir Sigurður. „Svo er líka gaman að vera fínt klæddur, hitta annað fólk og þess háttar. Það er gaman að vera í fína dressinu,“ segir hann aftur og blaðamaðurinn spyr því hvort hann eigi mikið af fínum fötum en hann segir nei við því. „Ekki mikið en það er gaman að fá tækifæri til að nota það sem maður á.“ „Það er líka munur á leikhúsinu og kvik- Unglingarnir með leikhús- bakteríuna MARKAÐSMENN BORGARLEIKHÚSSINS HAFA KANNSKI EKKI STEFNT AÐ ÞVÍ AÐ FÁ KRAKKA OG UNGLINGA Á SÝNINGAR SÍNAR ÞEGAR ÞEIR ÁKVÁÐU AÐ SETJA Á SVIÐ RAUTT, EXISTENSÍALÍSKT VERK UM MYNDLISTARMANN, EÐA VERK INGMARS BERGMANS, FANNÝ OG ALEXANDER, EN ÞAÐ ER SAMT RAUNIN. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is UNGIR MEÐ ÁRSKORT Í LEIKHÚSI Á sýningunni Tómið – Horfin verk Kristins Péturssonar íListasafni Árnesinga í Hveragerði, er sjónum beint aðóvenjulegum myndverkum sem Kristinn (1896-1981) vann að síðustu æviárin. Þau eru óvenjuleg og spennandi niðurstaða á viða- miklum og fjölbreyttum ferli, einkum í ljósi þess að listamaðurinn vann þau í einrúmi, án samtals við íslenska samferðarmenn sína og án þess að sýna þau opinberlega. Markús Þór Andrésson er sýning- arstjóri og hefur hann fengið fjóra samtímalistamenn til liðs við sig, þau Hildigunni Birgisdóttur, Hugin Þór Arason, Sólveigu Aðalsteins- dóttur og Unnar Örn. Forvitni þeirra um verk Kristins birtist á ólík- an hátt í verkum sem sett eru fram sem eins konar athugasemdir við verk Kristins. „Kristinn skildi eftir sig tiltölulega mikið safn verka sem Björn Th. Björnsson og þeir sem voru í stjórn Listasafns ASÍ á sínum tíma björguðu úr dánarbúi hans og hafa verið varðveitt þar síðan,“ segir Markús Þór. Í tengslum við hundrað ára fæðingarafmæli Kristins var eitthvað sýnt af þeim á sínum tíma en að mestu hefur verið hljótt um þennan óvenjulega listamann. „Margir hafa vitað af honum, sögur hafa verið á kreiki um hvað hann gerði og gerði ekki, og hvað hann skildi eftir sig, og að miklu af verkum hans hafi verið hent eftir lát hans og þá aðallega þrívíðum verkum. Ég hef fengið staðfest að svo var,“ segir Markús Þór. Hann bætir við að á þessu síðasta tímabili ferils síns hafi Kristinn unnið í takt við þar sem var að gerast í framsæknustu pælingum um mál- verkið á þeim tíma, og verið að búa til innsetningar úr málverkum. SÝNING UM TÓMIÐ Í LISTASAFNI ÁRNESINGA Framsækin málverk Sýningarstjórinn Markús Andrésson hampar hér mynd af listamanninum, Kristni Péturssyni. Hann sagði verkin fjalla um „tómið, núllið, ekki neitt“. KRISTINN PÉTURSSON VANN Á SJÖUNDA ÁRATUGN- UM Í TAKT VIÐ ÞAÐ FRAMSÆKNASTA ERLENDIS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.