Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Page 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Page 23
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Gerðu gæða- og verðsamanburð FINNDU MUNINN Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00 *3,5% lántökugjald ÝMIR rúm 153x203 aðeins kr. 124.900 ÝMIR, SAGA, FREYJA, ÞÓR OG ÓÐINN Hágæða svæðisskiptar heilsudýnur 12 mánaðavaxtalausargreiðslur* LOKAÐ laugardaginn 13. október vegna árshátíðar starfsmanna öðruvísi en annarra Íslendinga. Sú vanga- velta kom til vegna fjölda hlaupara sem Steinar mætti á vegi sínum á Seltjarnarnesi sem voru mun fleiri en hann mætti í Reykja- vík „Þetta varð kveikjan að því að ráðast í rannsóknina.“ Marktækt á fimm búsetusvæðum Að loknum vikunum sex var fólk aftur mælt og tók árangurspróf á ný. Þátttakendur sem svöruðu spurningalista voru 73 í upphafi rannsóknarinnar en 42 í lokin. Aðrir heltust úr lestinni, eins og geng- ur og gerist, og varð til þess að ákveðin svæði töldust ekki marktæk vegna þess hve fáir búsettir þar tóku þátt frá upphafi til enda. Rannsóknin þótti marktæk varðandi íbúa fimm búsetusvæða (póstnúmera) af ell- efu. „Í þeim rannsóknum sem ég hef skoðað kom oft fram að í útvherfum hreyfi fólk sig minna en annars staðar; keyri til dæmis meira í vinnuna frekar en fara gangandi eða á hjóli, enda lengra að fara. Fólk sinni þar stærri görðum og stórum húsum, en meiri almenn hreyfing sé á miðju svæðanna.“ Þarna er um að ræða erlendar niðurstöður en þessir þættir hafa ekki verið rannsakaðir á Íslandi svo vitað sé, að sögn Eddu. Hún segist spennt fyrir því að leggjast í frekari rannsóknir á þessu sviði, en ekkert sé ákveðið ennþá. „Ég ætla að klára þessa gráðu fyrst og sjá svo til. En þetta er vissu- lega heillandi vettvangur.“ Morgunblaðið/Eggert Edda Hermannsdóttir hagfræðinemi og líkamsræktarkennari * Vildi ekki einblínabara á kíló og senti-metra, þó ég hafi kannað þá þætti í leiðinni Ég skil bara ekkert í því hvers vegna þær íslensku konur sem ný-lega sendu inn fantasíur sínar í samnefnda bók hafa hvergiminnst á Mister Bond, James Bond. Ófáar konur þekki ég sem eiga feitar fantasíur með þeim eitursvala njósnara. Enda vart til sú kona sem staðist getur þann hristing sem líkamnast í kyntröllinu: Hann er eðalblanda af stólpagreindum, fjallmyndarlegum, heims- bjargandi herramanni hvers kynþokki er í svo miklu magni að hvort sem á hann er litið að aftan, framan eða á hlið, þá kikna konuhné. Nánast daglega tekur hann æðrulaus að sér að bjarga breska heims- veldinu ef ekki veröldinni allri. Og háskinn, hann er við hvert fótmál. En Bond hikar aldrei, ekki heldur við að nota óspart sterkasta vopnið, kyn- þokkann, í baráttunni við hin illu öfl. Sagt er um Bond að allir karlar vilji vera hann og að allar konur vilji sænga hjá honum. Þetta er hverju orði sannara, því þegar þessi útsendari hennar hátignar fer af stað þá gildir einu hversu viljasterk glæpakvendin eru og slóttug sem á vegi hans verða, honum tekst alltaf að bræða hjörtu þeirra og brjótast gegnum varnir þeirra gegn eðlunarlöngun- inni. Það er ekki á nokkurrar konu færi að standast óttalaus karlmennið Bond með byssu við belti, girndarglóð í auga og goðumlíkan skrokk. Svo ekki sé talað um baneitraðan og flugbeittan húmorinn. Hann einn og sér kemur hormónaflæðinu af stað hjá þeim fljóðum sem þurfa að kljást við hann. Þeir eru nokkrir sem tekið hafa að sér að túlka Bond á þeim fimmtíu árum sem liðin eru frá því fyrsta myndin um hann kom fram á sjónar- sviðið. Hver hefur gert það með sínum hætti, en enginn kemst með tærnar þar sem Sean Connery hefur hælana þegar litið er til þokkans. Hann er killer. Enda falla þær fyrir honum í löngum röðum, eins og flugur. Reyndar var Bond frekari til kvenna hér áður, hann fór létt með að sofa hjá hverju því sprundi sem á vegi hans varð. Núna liggur hann ekki nema eina eða tvær í hverri mynd. Ætli hann sé að gefa sig? Að lokum er vert að geta þess að ég hitti sjálfan Bond um daginn, á lestar- palli í útlandinu. Og hann talaði íslensku. Fjölhæfur helvítið á’onum. Sjóðheit stund í uppsiglingu í myndinni From Russia with Love. KILLER AF BESTU GERÐ KRISTÍN HEIÐA Stigið í vænginn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.