Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 28
B ókin Súpur allt árið eftir Sigurveigu Káradóttur er komin út hjá bókaútgáfunni Sölku en Sigurveig er þekktur matgæðingur og matreiðslubókahöfundur. Það eru fjölbreytilegar súpuuppskriftir í bókinni, sem endurspegla titilinn, að súpur séu matur sem gengur allan ársins hring. Góðar haustsúpur eru til dæmis rauðrófusúpa og rófu- súpa með beikoni, kjötsúpa frá Marokkó og lauksúpa ylja um vetur og í sumarhita er kjörið að gæða sér á grænbauna- og myntusúpu eða gazpacho. Nú er ekki úr vegi að spyrja höfundinn: Hvað er svona sniðugt við súp- ur? „Það er hægt að gera þær úr svo mörgu. Margir átta sig ekki á því hvað þetta er góður og þægilegur matur og þær geymast vel. Fólk gerir oft sömu súpurnar aftur og aftur,“ segir Sigurveig en bók hennar ætti sann- arlega að gefa fólki hugmyndir. Hún bendir á hversu fjölhæfur matur súpur séu, að þær geti bæði verið léttur forréttur og síðan séu matarmiklar súpur kjörinn veislumatur. Sigurveig gefur líka uppskriftir að kjarngóðu grænmetis- og kjötsoði. „Þetta er eitthvað sem fólk gerði alltaf í gamla daga en svo komu súpu- teningarnir. Það er mikill munur að gera soðin sjálfur,“ segir Sigurveig og bætir við að þetta sé vissulega tímafrekara en maður komist fljótt upp á lagið með það. Sjálf frystir hún kraftinn gjarnan í ísmolaboxi, þá er líka hægt að nota einn og einn í sósugerð. „Soðið er svo bragðmikið, rétt eins og krydd,“ segir hún en ítrekar að ef fólk noti teninga verði það að vanda valið á þeim og passa upp á saltmagnið. Að lokum, geturðu gefið lesendum eitt gott ráð í súpugerð? „Tíminn er mikilvægur, það þarf að leyfa þeim að malla og hafa þær ekki á of háum hita. Alls ekki láta bullsjóða í pottinum, þá drepurðu bragðið. Svo bara smakka til og bæta við kryddi ef þér finnst þurfa. Og nota gott hráefni.“ Ljósmynd/Gunnar Sverrisson SÚPUR ERU SÉRSTAKLEGA FJÖLHÆFUR MATUR Forréttur og veislumatur BÓKIN SÚPUR ALLT ÁRIÐ INNIHELDUR TUTTUGU OG FIMM GIRNILEGAR OG NÆRANDI SÚPUUPPSKRIFTIR ÚR SMIÐJU SIGURVEIGAR KÁRADÓTTUR. HÚN SEGIR SÚPUR VERA EINSTAKLEGA GÓÐAN OG ÞÆGILEGAN MAT SEM GEYMIST VEL. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Sigurveig Káradóttir vandar alltaf val- ið á því hráefni sem hún notar. ÍTÖLSK FISKISÚPA Fyrir 2-3 Ansjósurnar gefa súpunni góðan undirtón og gera hana kraftmikla. Þetta er án efa fljótlegasta leiðin til að komast til Ítalíu. 4–5 ansjósur 2–3 msk ólífuolía eða olían af ansjósunum 50 g skalottlaukur 50 g sellerí 100 g gulrætur 50 g púrrulaukur 100 g fennel 100 g rauð paprika 1–2 hvítlauksrif 50 ml hvítvín 2 tsk tómatpúrra 200 g tómatar 300–400 ml vatn 1 lárviðarlauf nokkrir dropar af Worchestershire-sósu 300 g hvítur fiskur – t.d. lúða eða skötuselur 300 g rækjur – helst í skelinni sjávarsalt hvítur pipar svartur pipar sítrónusafi handfylli af ferskri steinselju – helst ítalskri Látið ansjósurnar í pott ásamt olíu. Skerið græn- metið í meðalstóra bita og bætið út í. Látið mýkjast á frekar lágum hita í 6–8 mínútur. Saxið hvítlaukinn og bætið honum við. Hvítvínið fer svo út í strax þar á eftir. Þá fer tómatpúrran í pottinn og næst koma smátt saxaðir tómatarnir. Leyfið vökvanum að gufa aðeins upp (í 1–2 mínútur) og bætið svo vatninu saman við. Látið lárviðarlaufið út í ásamt Worchestershire-sósunni og smakkið súpuna til með salti og pipar. Bætið nú fiskinum og rækjunum út í. Gott er að bitarnir séu þéttir og heilir. Það er ekki verra að hafa fiskinn heilan og með beini, það gefur súpunni enn meiri kraft. Eins má nota skelflettar rækjur í súpuna, hafið þær ósoðnar þegar þær fara í pottinn svo þær verði ekki seigar. Bullsjóðið í 2–3 mínútur. Skreytið með smátt saxaðri steinselju, kreistið sí- trónusafa yfir eða berið sítrónubáta fram með súp- unni. * Morgunblaðið/Golli Matur og drykkir Salt eldhús er nýr áfangastaður í heimi sælkerans í Reykjavík »32

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.