Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012
Matur og drykkir
Þ
að er ekki sama hvar bjórinn er fram-
leiddur, hvaðan vatnið er fengið og hvern-
ig hann er bruggaður. Þekkt bjórhéruð
eru í Belgíu, Þýskalandi og Tékklandi en
sömu héruð eru ekki eins þekkt fyrir vínfram-
leiðslu nema í Þýskalandi þarsem landsvæðið er
svo margbreytilegt að í stóru landinu finnast einn-
ig upplögð vínhéruð. Tékkland er gjarnan kallað
Mekka bjórsins enda aðstæður þar fyrir hum-
alræktun með afbrigðum góðar. Þessvegna flytja
Tékkar ekki aðeins út bjór í miklum mæli heldur
einnig humalinn óunninn fyrir bruggverksmiðjur í
öðrum löndum. Við bætist að bjórkúltúrinn hjá
þjóðinni er mikill og þar hefur varla verið hægt að koma tveimur þremur húsum saman
öðruvísi en að byggja krá. Flest stræti Prag-borgar hafa sína eigin krá og sum þeirra með
krá fyrir hvern stigagang. Ófá þorpin hafa sín eigin brugghús. Tékkarnir þóttu frekar
herská þjóð fram að 30 ára stríðinu á 17. öld en hafa síðan þá verið þekktir fyrir að vilja
helst aldrei grípa til vopna og er bjórdrykkjunni kennt um. Það er sama hversu viðbjóðs-
legar herraþjóðir hafa drottnað yfir þeim, þeir hafa aldrei gert uppreisn. Frægasti hermaður
Tékklands er góði dátinn Svejk, sem vissulega vildi aga í hernum, en helst vildi hann bjór.
Úr bruggverksmiðju Plzenský Prazdroj í Tékklandi.
Skálað í Plzenský Prazdroj.
Frá verksmiðju Budejovický Budvar.
BJÓRMENNING
Mekka bjórsins í Evrópu
HINAR SUÐRÆNU ÞJÓÐIR EVRÓPU HAFA ÖFLUGA VÍNMENNINGU EN BJÓRMENNINGIN EFLIST ÞEGAR NORÐAR DREGUR.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Góði dátinn Svejk.
Tvær þekktustu bjórtegundir Tékka eru
Plzenský Prazdroj sem oftast er kallaður
Plzen og Budvar. Plzenský Prazdroj var
bruggaður fyrst í borginni Plzen árið 1842
og sló samstundis í gegn og var í langan tíma
á eftir aðalútflutningsvara landsins. Slíkar
voru vinsældir hans að af þessari bjórtegund
varð pilsner að alþjóðlegu heiti fyrir ljósan
bjór en pilsner kemur af nafni bjórsins sem
er Plzen. Þótt hér á Íslandi fengi það með
tímanum merkingu óáfengs bjórs. Bjórinn
hét upphaflega aðeins Plzen en þar sem ár-
angur hans varð svona gríðarlegur um heim
allan hófu margir að brugga svipaðan bjór og
þegar nafn bjórsins varð að alþjóðlegu heiti
um allskonar ljósan bjór þurftu Tékkarnir að
bæta við nafn bjórsins Plzenský Prazdroj
sem þýðir á íslensku Pilsner hinn upphaflegi!
Eða eins og hann er nefndur upp á þýsku:
Pilsner Urquell. Enda var Plzenský Prazdroj
fyrsti lagerbjór heimsins en sú tegund bjórs
er vinsælust í heiminum í dag.
Budejovický Budvar er næstfrægasta bjór-
tegund Tékklands en sú tegund átti síðar eft-
ir að verða vinsælasta bjórtegund Bandaríkj-
anna undir nafninu Budweiser. Þangað hófu
Tékkar að flytja bjórinn árið 1871 og varð
hann strax vinsæll bæði á austurströndinni
og í villta vestrinu. Árið 1938 náðu Banda-
ríkjamenn að gera samning við Tékkana um
að selja bjórinn undir sínu merki í landinu,
en deilur um gróðann af sölu Budweiser í
Bandaríkjunum náðu langt fram á þessa öld.
En þess ber að geta að í Tékklandi er núver-
andi bandarísk útgáfa á hinum eðal-Budvar
almennt talin piss.
PLZENSKÝ PRAZDROJ OG BUDVAR