Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Síða 42
*Fjármál heimilannaMenntun borgar sig þrátt fyrir að afborganir af námslánum taki sinn tíma
A
ð vera læs á flókna fjármálaútreikn-
inga er ekki forsenda þess að geta
haldið utan um eigin buddu og sett
sér markmið í fjármálum. Markmið
Stofnunar um fjármálalæsi er að hvetja almenn-
ing til að ná betri tökum á eigin fjármálum og
tryggja þannig fjárhagslegan stöðugleika í lífi
sínu og fjölskyldna sinna.
Breki Karlsson, forstöðumaður stofnunar-
innar, segir að fjármálalæsi sé engin geimvís-
indi heldur almenn skynsemi. Breki og Áslaug
Pálsdóttir, starfsmaður stofnunarinnar, munu
skrifa pistla tengda fjármálum heimilanna í
Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
Breki segir að persónuleg reynsla sín hafi
vakið áhuga á því að auka læsi almennings á
fjármál. „Það sem kveikti í mér á sínum tíma
var persónuleg reynsla, þ.e.a.s. ég hafði ábyrgst
skuldabréf sem féll á mig af fullum þunga og ég
var í mörg ár að klára að borga af. Ég hugsaði
með mér að ég hafði aldrei lært neitt um þetta
í skóla, vissi allt um Snorra Sturluson og hvern-
ig hann lifði og dó, en ekkert um hvernig ætti
að haga fjármálum heimilisins í dag.“
Hann segist drifinn áfram af þeirri vissu að
heimurinn verði örlítið betri eftir því sem fleiri
verði læsir á eigin fjármál. Breki segir mikil-
vægt að flækja ekki hlutina heldur halda sig við
einfaldar reglur til að taka fjármál heimilisins
traustum tökum: Peningar þurfa ekki að vera til í bunkum til að hægt sé að hafa gagn af einföldum ráðum fyrir heimilisbókhaldið.
Morgunblaðið/Golli
BREKI OG ÁSLAUG SKRIFA PISTLA UM FJÁRMÁL
Engin
geimvísindi
PENINGAR ERU EKKI ALLT EN ÞAÐ SKIPTIR MÁLI AÐ GERA
SÉR GREIN FYRIR STÖÐUNNI. STOFNUN UM FJÁRMÁLALÆSI
GEFUR GÓÐ RÁÐ FYRIR HEIMILISBÓKHALDIÐ
* Halda bókhald(vita hvaðan maður
kemur)
* Greina stöðuna(vita hvar maður er)
* Gera áætlun(vita hvert maður
ætlar að fara)
* Eyða ekki meiraen maður aflar
(sníða sér stakk eftir
vexti)
* Láta peninganavinna með sér en
ekki á móti
* Gera ráð fyrirhinu óvænta (eiga
varasjóð, greiða fyrir
tryggingar, huga að
lífinu eftir vinnu o.fl.)
* Muna að peningar eru ekki allt
(þeir kaupa jú ekki
hamingju)
Foreldrar eru gjarnir á að segja börnum sínum aðmenntun borgi sig, en gerir hún það raunverulega?Menntun fylgir mikill kostnaður, t.d. skráningar-
gjöld og bókakaup, svo þarf auðvitað að framfleyta sér
meðan á námi stendur. Til að ráða við kostnað sem nám-
inu fylgir neyðast margir til að taka námslán sem seinna
meir þarf að greiða með til-
heyrandi kostnaði.
Spurningin er því – borgar
það sig að fara í nám?
Samkvæmt tölum frá Hag-
stofu Íslands eru laun þeirra
sem lokið hafa háskólaprófi
síður undir lágtekjumörkum
en laun þeirra sem einungis
hafa lokið grunn- eða fram-
haldsskólaprófi. Árið 2011
voru 4% háskólamenntaðra með laun undir lág-
tekjumörkum en 8,2% þeirra sem lokið höfðu framhalds-
skólaprófi. Tölurnar sýna líka að atvinnuleysi er minna á
meðal háskólamenntaðra, árið 2011 voru 5,2% háskóla-
menntaðra atvinnulaus, 5,6% þeirra sem klárað höfðu
starfs- eða framhaldsskólamenntun en atvinnuleysi var
14,6% á meðal grunnskólamenntaðra.
Tökum dæmi um störf sem krefjast oftast menntunar:
Samkvæmt launakönnun VR eru meðallaun stjórnenda
og sérfræðinga 564.000 krónur á mánuði. Ef miðað er
við þessar tekjur og 4,5 milljóna króna námslán er árleg
afborgun námslána 253.800 krónur í 20 ár. Að þessum
forsendum gefnum þarf menntun að hækka mán-
aðarlaun um 21.150 krónur á mánuði til að hún borgi sig.
Samkvæmt launakönnun VR frá 2011 eru laun þeirra
sem lokið hafa meistara- eða doktorsnámi 64% hærri en
laun þeirra sem lokið hafa grunnskólamenntun eða
minna.
Séu þessar niðurstöður teknar saman má álykta að
aukið nám dragi úr líkum á atvinnuleysi og auki líkur á
hærri launum. Ef við bætum svo við gleðinni sem fylgir
því að vera í uppbyggilegu námsumhverfi og læra það
sem okkur þykir áhugavert er auðvelt að komast að nið-
urstöðunni: Já, foreldrar þínir hafa rétt fyrir sér:
Menntun borgar sig!
Aurar og
krónur
BORGAR MENNTUN SIG?
ÁSLAUG
PÁLSDÓTTIR
NÁM ÍTÖLUM
21.000 krónur
er upphæðin sem þarf á mánuði til að greiða námslán
*Meirihluti þessa hóps er með háskólapróf Launaupplýsingar miðast við LaunakönnunVR 2011
564.000 krónur
eru meðallaun stjórnenda og sérfræðinga f. skatt*
389.000 krónur
eru meðallaun fólks með framhaldsskólamenntun
175.000 krónur
er upphæðin sem háskólamenntaðir hafa umfram hina
sem hafa framhaldsskólamenntun á mánuði