Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 47
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
allar hugmyndir eigi að skoða í þessu sam-
hengi, þar á meðal þessa [að banna glæpa-
samtök]. Það er þó engin töfralausn heldur
ein leið af mörgum sem skoða þarf. Brýnasta
verkefnið að mínu mati er að efla starfsemi
lögreglu þannig að unnt sé að fylgja okkar
starfi enn betur eftir á þessu sviði,“ sagði
hann.
Lagaumhverfið þykir um margt gott hér á
landi þegar kemur að því að bregðast við
starfsemi meintra glæpasamtaka. Nefna má í
því sambandi fjölmörg tilvik þar sem erlend-
um félögum í slíkum samtökum hefur verið
snúið burt strax við komuna til landsins. Eft-
ir slíkum málum hefur verið tekið víða og
þykja þau bera viðbrögðum og staðfestu lög-
reglu á Íslandi gott vitni.
Sumir telja þetta þó ekki duga, t.a.m. lýsti
Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands lögreglumanna, því yfir á dög-
unum að bæta þyrfti lagaumhverfið. Þá hef-
ur lögreglan vakið máls á því að heimildir
hennar hér á landi verði færðar til samræm-
is við það sem þekkist á Norðurlöndum. Það
hefur verið til skoðunar í innanríkisráðuneyt-
inu.
Hvað eru 1%-samtök?
En hvers vegna óttast fólk Outlaws-
samtökin?
Outlaws MC eru yfirlýst 1%-samtök en
það er viðtekinn skilningur lögreglu, þar sem
Outlaws hefur haslað sér völl, að það þýði að
þau hafi sagt sig úr lögum við samfélagið og
telji í raun bræðralagið æðra landslögum.
1%-skilgreiningin er dregin af því að lög-
regla lítur svo á að 99% allra vélhjóla-
samtaka hafi á að skipa venjulegum, lög-
hlýðnum borgurum. 1% lýtur eigin lögum og
reglum.
Hugtakið 1% var fyrst notað af lands-
samtökum vélhjólafólks í Bandaríkjunum
seint á fimmta áratug síðustu aldar til að
skilgreina öfgamenn innan sinna vébanda.
Voru þeir sagðir harðskeytt partíljón með
tilhneigingu til að synda á móti straumnum.
Hvergi var minnst á lögbrot á þeim tíma en
lögregla tók þá skilgreiningu upp síðar, lík-
lega á níunda áratugnum. Halda ber því til
haga að 1%-klúbbarnir hafa aldrei fallist op-
inberlega á skilgreiningu lögreglu og segja
hana diktaða upp í því skyni að slá ryki í
augu almennings og dómstóla. Menn kalli sig
einfaldlega „1%-ara“ til að undirstrika köllun
sína og tryggð við vélhjólin og bræðralagið.
Þannig hefur Outlaws MC aldrei gengist við
því opinberlega að vera glæpasamtök, heldur
bara vélhjólaklúbbur.
Saga Outlaws á Íslandi er ekki löng. Í maí
á síðasta ári fékk hópur vélhjólamanna inn-
göngu í „fjölskyldu“ Outlaws undir nafninu
Black Pistons og skömmu síðar gekk annar
hópur, Berserkir í Hafnarfirði, í Black Pi-
stons. Í ágúst 2011 tóku samtökin upp nafnið
Probationary Outlaws, það er Útlagar á skil-
orði. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því
að ástæða sé til að ætla að sá hluti Proba-
tionary Outlaws sem áður hét Berserkir
verði fullgilt félag í Outlaws MC á næstu
mánuðum. Samkvæmt sömu heimildum fer á
hinn bóginn lítið fyrir starfsemi hins upp-
runalega Black Pistons-hóps um þessar
mundir.
Hvort fullgilding aðildar breytir einhverju
fyrir Outlaws á Íslandi, lögreglu og íbúa
þessa lands mun tíminn leiða í ljós.
Outlaws MC er bræðralag vélhjóla-
manna og gilda þar strangar innri
reglur. Eru þær æðri landslögum?
Ljósmynd/Pressphotos.biz
The McCook Outlaws Motorcycle Club var
stofnaður í McCook, Illinois, árið 1935. Ró-
legt var yfir starfinu fyrstu árin en eftir að
samtökin fluttu sig um set til Chicago 1950
fór þeim að vaxa fiskur um hrygg. Á sama
tíma varð höfuðkúpa helsta tákn félagsins.
Árið 1963 gekk Outlaws í bræðralag 1%-
samtaka vélhjólamanna og árið 1969 varð
mottó til: „Guð fyrirgefur en Útlagar ekki.“
Outlaws færðu jafnt og þétt út kvíarnar í
Bandaríkjunum og árið 1978 var fyrsta að-
ildarfélagið sett á laggirnar erlendis, í Iowa
í Kanada. Fyrsta vígi Outlaws í Evrópu varð
til í Frakklandi 1993 og skömmu síðar hösl-
uðu samtökin sér einnig völl í Noregi, Bret-
landi, Belgíu og víðar í álfunni.
Enda þótt Outlaws MC segist ekki vera
glæpasamtök hafa margir meðlimir í sam-
tökunum átt aðild að sakamálum víðsvegar
um heim á umliðnum árum. Skoðum dæmi:
Árið 2000 var Kevin O’Neill, forseti Out-
laws í Wisconsin, dæmdur í lífstíðarfangelsi
fyrir ítrekuð brot. Sama ár voru þrír Out-
laws-liðar í Belgíu dæmdir í lífstíðarfangelsi
fyrir að myrða félaga sinn á knæpu.
Árið 2006 voru nokkrir Outlaws-liðar í
Mosbach í Þýskalandi dæmdir í fangelsi fyr-
ir tilraun til manndráps. Eftir það var fé-
lagsdeildin í Mosbach leyst upp.
Árið 2008 voru sjö Outlaws-liðar í Lund-
únum dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á
félaga í Hells Angels árið áður.
Árið 2010 fann dómstóll í Milwaukee for-
seta Outlaws í Bandaríkjunum, Jack Rosga,
sekan um fjárglæfrastarfsemi og samsæri
um að beita ofbeldi. Þótti það mikið högg
fyrir samtökin. „Það að hjóla á Harley gerir
menn ekki að glæpamönnum en menn fara
yfir strikið þegar þeir beita ofbeldi í við-
skiptaskyni,“ sagði Neil MacBride saksókn-
ari Virginiu-ríkis. Við réttarhaldið yfir
Rosga komu fram gögn sem þóttu sýna, svo
ekki verður um villst, að Outlaws-samtökin
séu skipulögð glæpasamtök. Sama ár týndi
Thomas Mayne, meðlimur í Outlaws, lífi í
skotbardaga við sérsveit lögreglu í Maine.
Outlaws MC og Hells Angels hafa lengi
eldað grátt silfur saman og hafa samtökin
víða borist á banaspjót um yfirráð yfir til-
teknum svæðum. Skemmst er að minnast
þess að einn fullgildur meðlimur Outlaws í
Belgíu, enn upprennandi meðlimur, og fé-
lagi þeirra voru myrtir af liðsmönnum Hells
Angels í fyrra. Fjöldi manna hefur verið
handtekinn í tengslum við rannsókn málsins
en enginn dæmdur ennþá enda er þagn-
arskylda, svonefnd „omerta“, við lýði bæði
innan vébanda Outlaws og Hells Angels.
„Guð fyrirgefur
en Útlagar ekki“
RÓTGRÓIN SAMTÖK