Morgunblaðið - 21.12.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Storkufangans
Matthíasar Mána
Erlingssonar er
enn leitað. Hann
strauk frá Litla-
Hrauni fyrir
þremur sólar-
hringum.
Að sögn lög-
reglu er verið að
púsla saman
þeim upplýs-
ingum og vísbendingum sem fyrir
liggja. Ekki var eins fjölmennt lið
við leitina í gær og tók þátt í henni
á miðvikudaginn.
Engar myndbandsupptökur eru
til af flótta Matthíasar þar sem
hreyfiskynjarar í myndavél virk-
uðu ekki. Matthías er 24 ára, 171
cm á hæð, um 70 kg. Síðast þegar
sást til hans var hann klæddur
grárri hettupeysu, með svarta húfu
og í dökkum buxum.
Leit að stokufang-
anum hefur ekki
enn borið árangur
Matthías Máni
Erlingsson
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar
sem tók þátt í leitinni að stroku-
fanganum Matthíasi Mána Erlings-
syni í fyrradag fann við leitina hest
sem var frosinn fastur úti í miðri
tjörn. Ef ekki hefði verið fyrir leit-
ina hefði hesturinn líklega drepist.
Ákveðið var að breyta leitinni í
björgun og var þyrlunni lent við
næsta sveitabæ. Þar ræddu gæslu-
menn við bóndann sem ætlaði að
aka á staðinn og bjarga hrossinu.
Þyrlusveitin hélt því næst leitinni
að fanganum áfram en sá að bónd-
inn átti í erfiðleikum með að kom-
ast á svæðið þannig að þyrlunni var
lent hjá honum, hann tekinn upp í
og flogið með hann að hestinum.
Tókst að brjóta ísinn, losa hestinn
og koma honum á þurrt land.
Þyrlusveit LHG
bjargaði hesti
Karlmaður lést þegar eldur kom
upp í íbúðarhúsi í Grundarfirði í
fyrrinótt. Hinn látni hét Smári Örn
Árnason, fæddur 19. ágúst 1971.
Smári Örn bjó í Grundarfirði nær
allt sitt líf. Hann var ókvæntur en
lætur eftir sig tvö börn.
Slökkviliðið í Grundarfirði var
kallað út þegar klukkuna vantaði
tíu mínútur í þrjú í fyrrinótt þegar
tilkynning barst um eld í íbúðar-
húsinu. Þegar komið var á vettvang
logaði mikill eldur í húsinu. Reyk-
kafarar fundu Smára Örn sem var
einn í húsinu og var hann þá látinn.
Upptök eldsins eru enn ókunn og
er málið í rannsókn hjá lögreglu.
Lést í eldsvoða
í íbúðarhúsi
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Fjárlagafrumvarpið var samþykkt
sem lög frá Alþingi í gær með 28 at-
kvæðum en 26 þingmenn sátu hjá og
9 voru fjarverandi.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
Framsóknarflokksins og Hreyfing-
arinnar auk Lilju Mósesdóttur, þing-
manns Samstöðu, Atla Gíslasonar,
utanflokka, og Jóns Bjarnasonar,
þingmanns Vinstri grænna, sátu hjá.
Þingmenn stjórnarflokkanna sam-
þykktu það og það gerðu einnig Guð-
mundur Steingrímsson og Róbert
Marshall, þingmenn Bjartrar fram-
tíðar.
Þá var einnig samþykkt breyting-
artillaga meirihluta efnahags- og við-
skiptanefndar en í henni var lagt til
að fallið yrði frá hækkunum m.a. á
bensíni, dísilolíu og áfengi auk
þungaskattsins og útvarpsgjaldsins.
Með breytingunni minnka tekjur
m.a. af vörugjaldi af bensíni um 218
milljónir frá því sem áætlað var og af
sérstöku vörugjaldi um 348 milljónir.
„Það kom fram við umfjöllun um
frumvarpið að þar væri lengra gengið
en þörf væri á í að afnema svokall-
aðan afdráttarskatt á vexti sem
greiddir eru úr landi, það var í frum-
varpinu gert ráð fyrir að falla alveg
frá þeim skatti en við teljum rétt að
falla aðeins frá honum vegna þeirra
lána sem tekin eru á mörkuðum og
það eykur tekjur ríkissjóðs um 1.600
milljónir frá því sem frumvarpið
gerði ráð fyrir,“ segir Helgi Hjörvar,
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar, spurður af hverju fallið hefði
verið frá þessum gjaldhækkunum.
„Þá var það niðurstaðan að verja
þessum 1.600 milljónum í að falla frá
þessum hækkunum. Það hefur þá já-
kvæð áhrif á verðlagsþróun og dreg-
ur úr neikvæðum áhrifum á verð-
tryggðar skuldir heimilanna.“
Ánægður með breytinguna
Að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarson-
ar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins
og fulltrúa í efnahags- og viðskipta-
nefnd, er hann ánægður með að fallið
hafi verið frá ofangreindum gjald-
hækkunum. Hann bendir á að þó að
það sé jákvætt að menn hafi hlustað á
stjórnarandstöðuna þá sé ennþá útlit
fyrir að lán heimilanna hækki um 4-5
milljarða en áður stóð til að þau
myndu hækka um rúmlega sex millj-
arða að hans sögn.
Í drögum að nefndaráliti meiri-
hluta efnahags- og viðskiptanefndar
um frumvarp til laga um ráðstafanir í
ríkisfjármálum er lagt til að aðgangs-
eyrir að íslenskum kvikmyndum
verði ekki lengur undanþeginn virð-
isaukaskatti en vafi er talinn leika á
því hvort undanþágan samrýmist 36.
gr. EES-samningsins. Bæði Hilmar
Sigurðsson, formaður Sambands ís-
lenskra kvikmyndframleiðenda, og
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formað-
ur Félags kvikmyndagerðarmanna,
segja að þessi breyting sé gerð í fullu
samráði og sátt við félög þeirra. „Ég
vona að svo verði ekki,“ segir Hilmar,
aðspurður hvort hann telji að þetta
muni leiða til þess að aðgangseyrir á
íslenskar kvikmyndir muni hækka í
verði.
Umdeild fjárlög afgreidd
Morgunblaðið/Eggert
Stutt er í að Alþingi fari í jólafrí en þing mun halda áfram í dag og eflaust
einnig á morgun. Þó svo að búið sé að afgreiða fjárlög ársins 2013 eru enn
nokkur mál eftir sem þarf að klára fyrir áramót en þau varða fjármál rík-
isins. Má þar helst nefna hinn svokallaða bandorm, þ.e. frumvarp um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum (tekjuöflunaraðgerðir, kjarasamningar, verð-
lagsbreytingar o.fl.).
Þingfundur stóð enn yfir á tólfta tímanum í gærkvöldi og hafði hann þá
staðið yfir frá því klukkan 10.31 um morguninn. Þá hefst þingfundur að
nýju klukkan 10.00 í dag og mun hann líklegast standa yfir eitthvað fram á
kvöld.
Bandormurinn enn eftir
Strekkingur verður á landinu öllu á
Þorláksmessu, víða 10-15 m/s en
gæti orðið hvassviðri á Austurlandi.
Veður fer kólnandi næstu daga og
frost verður á öllu landinu á að-
fangadag. Á aðfangadag verður
bjartviðri, 10-15 m/s og frost á bilinu
núll til sex gráður, éljagangur verð-
ur á Norður- og Austurlandi.
Útlit er fyrir hvít jól á Norður- og
Austurlandi en rauð jól fyrir sunnan.
„Akstursskilyrði geta verið leið-
inleg á aðfangadag, norðan- og aust-
anlands, þegar él og hvassviðri fara
saman,“ segir Teitur Arason, veður-
fræðingur hjá Veðurstofu.
Á jóladag, annan og þriðja í jólum
er útlit fyrir ákveðna norðanátt með
snjókomu eða éljum á norðanverðu
landinu, en úrkomulaust að kalla
syðra. Víða hörkufrost á landinu,
segir á vef Veðurstofu.
Norðanáttinni sem verður milli
jóla og nýárs á landinu fylgir kald-
asta gerðin af lofti sem hægt er að
fá, „hvasst og ískalt, auk þess verður
ofankoma norðantil,“ segir Teitur.
Í megindráttum telur Teitur að
veðurspáin muni ekki breytast mikið
en þó gæti orðið einhver blæbrigða-
munur. Í dag og laugardag verður
hitastigið á bilinu eitt til sjö stig.
Rigning og sums staðar slydda
sunnan- og austanlands en þurrt
annars staðar.
thorunn@mbl.is
Strekkingur á Þorláksmessu
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Jólaveðrið Hvasst verður á Þorláksmessu víða um land og ekkert sérstakt
ferðaveður verður á aðfangadag og kólnar hressilega milli jóla og nýárs.
„Þetta var
búið að vera í
nefndinni í
nokkurn
tíma, þetta
er ekki eitt
af þessum
málum sem
koma inn í
flýti fyrir
jól,“ segir
Unnur Brá
Konráðsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og fulltrúi í vel-
ferðarnefnd, um eftirlitsgjald
sem til stóð að leggja m.a. á
smokka, tannþræði og barna-
bleiur. Unnur Brá bendir á að á
fundi nefndarinnar í október sl.
hafi hún spurt hvort ekki ætti að
endurskoða þetta eitthvað og að
hún hafi gert ráð fyrir því að slíkt
yrði gert.
Greint var frá því að eftirlits-
gjaldið myndi leggjast á fyrr-
nefnda vöruflokka í frétt sem
birtist á forsíðu Morgunblaðsins
1. nóvember sl. „Það er ekki
hægt að segja að enginn hafi vit-
að af þessu og ef það er þannig
að ráðherra veit ekki hvers efnis
frumvörpin sem hann leggur
fram eru þá vakna ennþá fleiri
spurningar,“ segir Unnur Brá.
Ekki náðist í Guðbjart Hann-
esson velferðarráðherra en hann
lýsti því yfir í fyrradag að þetta
yrði dregið til baka.
Rætt í nefnd
í október
UMDEILT EFTIRLITSGJALD
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Fallið var frá hækkunum á ýmsum gjöldum Þar á meðal vörugjaldi á bensíni
og olíugjaldi Til stendur að leggja virðisaukaskatt á íslenskar kvikmyndir