Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Mjög léttir, hljóðlátir, litríkir og kröftugir hárblásarar. Aðeins 350 gr. og 14 cm. Ársábyrgð.
REDKEN ONLY SALON
SALONVEHHÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU
VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR
HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI
s. 568 7305 • salonveh.is
ÞÚ FÆRÐ PERSÓNULEGA OG FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ OKKUR
VELECTA HÁRBLÁSARAR
NOTAÐIR AF FAGMÖNNUM
Munið
gjafabréfin
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég tel mig vera í mikluábyrgðarhlutverki að búatil eitthvað sem krakkarvilja lesa, þau eiga jú eft-
ir að verða framtíðarlesendur þess
efnis sem skrifað er fyrir fullorðna.
Barnabókmenntir skipta því gífur-
lega miklu máli og ég held ótrauð
áfram á meðan ég fæ hugmyndir og
hef gaman af starfinu mínu. Ég nýt
þess að skrifa fyrir börn og ég er
alltaf með þreifarana úti,“ segir Sig-
rún Eldjárn, einn ástsælasti rithöf-
undur okkar, en hún sendir frá sér
þrjár bækur þessi jól. Þetta eru
bækurnar Listasafnið, endurútgáfa
á Bétveim og svo eru það Jólakrakk-
ar, en sú bók geymir 26 jólakrakka
sem hægt er að klippa út og einnig
er hægt að klippa út jólaklæði og
hversdagsklæði til að klæða þau í.
„Það er þroskandi fyrir barnaputta
og eflir fínhreyfingar að klippa út
svona fínlegt. Svo getur
verið gott að fá hjálp við
þetta hjá eldri systkinum,
foreldrum eða öfum og
ömmum, þau hafa gott af
því. Öll samvera er af hinu
góða.“
Gerir engan greinarmun
á strákum og stelpum
Fyllsta jafnræðis er gætt í
þessari bók og þar eru því ekki
aðeins jólasveinar heldur líka jóla-
stelpur. „Það er jú jafn mikið af
strákum og stelpum í heiminum,
þannig að mér fannst þetta hið eðli-
legasta mál. Í gegnum tíðina hefur
það ósjálfrátt orðið þannig í mínum
bókum að þær eru bæði fyrir stelpur
og stráka, enda geri ég engan grein-
armun þar á. Strákarnir í Jóla-
krakkabókinni heita hinum hefð-
bundnu jólasveinanöfnum eins og
Stekkjastaur og Stúfur, en hver
þeirra á sér tvíburasystur sem ég
bjó til nöfn á út frá nöfnum strák-
anna. Þarna eru Stekkjastöng,
Stubba, Giljagletta, Askasleikja,
Hurðaskella og fleiri flottar stelp-
ur.“
Tvíburarnir
Bjúgnakrækir og
Bjúgnakrækja eru
þeldökk og systkinin
Kertasníkja og Kerta-
sníkir eru gul á hörund.
„Ég er oft með krakka í
bókunum mínum sem
hafa annan hörundslit en
þann hvíta og ég minnist
ekkert á það í textanum,
heldur sést það bara á
myndunum. Þetta er mitt
innlegg til fjölbreytninnar í
mannlífinu.“
Nnútíma afi og amma
Árið 1986 sendi Sigrún frá sér
bók um geimveruna Bétvo og naut
hún mikilla vinsælda. Ákveðið var að
endurútgefa þessa bók sem segir frá
geimveru sem kemur úr geimnum til
að kynnast því merka fyrirbæri,
bókinni. „Það er ekkert laununga-
mál að þessi saga er áróður fyrir
bókum og bóklestri. Mér fannst bók-
in um Bétvo eiga aftur erindi núna í
ljósi þeirrar umræðu að krakkar séu
farin að lesa minna. Ég gerði alveg
nýjar myndir fyrir þessa nýju útgáfu
Stelpurnar Stekkja-
stöng og Giljagletta
Þar sem jafnmikið er af strákum og stelpum í heiminum, þá fannst henni sjálf-
gefið að allir jólasveinarnir ættu tvíburasystur. Jólakrakkarnir hennar Sigrúnar
Eldjárn eru allskonar og hennar innlegg til fjölbreytninnar í mannlífinu. Sigrún
ólst upp á þjóðminjasafni og það varð kveikjan að bókum sem gerast á söfnum.
Fjölbreytni Þær Kertasníkja og Bjúgnakrækja eru flottar stelpur.
Bloggsíðunni eatdrinkchic.com er
haldið úti af grafíska hönnuðinum
Amy Moss. Hún sérhæfir sig í því að
búa til litríka og fallega smáhluti fyrir
partí, brúðkaup og ýmiss konar við-
burði í daglegu lífi. Nýjasta færsla
Amy sýnir hvernig má búa til flotta
merkimiða með kærleiksríkum skila-
boðum. Ef þig vantar fleiri merkimiða
á jólapakkana ættirðu að kíkja á
þetta og þeir munu eflaust skera sig
úr þetta árið. Á vefsíðunni má finna
mikið af nýstárlegum hugmyndum
fyrir samkvæmi ýmiss konar en líka
sjá uppáhaldshluti Amy fyrir heimilið
hverju sinni svo og áhugaverða hluti
úr tískuheiminum sem hún rekst á.
Fín síða til að fá góðar hugmyndir
eða bara láta hugann reika og njóta
þess að skoða fallega hluti.
Vefsíðan wwww.eatdrinkchic.com
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólapakkar Merkimiðar setja punktinn yfir i-ið á fallegum pökkum.
Óvenjulegir jólamerkimiðar
Íslensku jólasveinarnir hafa nú komið
við daglega kl. 11 á Þjóðminjasafninu.
Nú er von á síðustu sveinunum en
Gáttaþefur kemur hinn 22. desember,
Ketkrókur 23. desember og á að-
fangadag lítur Kertasníkir inn kl. 11.
Jólasveinarnir eru klæddir þjóðlegu
fötunum sínum í þessum heimsókn-
um og finnst þeim gott að koma í
Þjóðminjasafnið því þeir eiga dálítið
erfitt með að átta sig í tæknivæddri
nútímaveröld. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Endilega …
… hittið síðustu
jólasveinana
Morgunblaðið/Golli
Jólaheimsókn Sveinkarnir verða
þjóðlegir svipað og þessir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Daginn í dag 2 er sjálfstætt framhald
af samnefndum mynddiski sem kom
út árið 2010. En þar fáum við að fylgj-
ast með þeim Hafdísi og Klemma
sem snúa hversdagslegum atburðum
í ævintýri. Í sögunum um þau Hafdísi
og Kemma eru dæmisögur um Jesú
yfirfærðar á daglegt líf. Þau takast
þannig á við boðskapinn og uppgötva
gildi hans. Leikstjóri er Þorleifur Ein-
arsson en hann sér einnig um brúðu-
gerð og klippingu.
„Hugmyndin að þáttunum kviknaði
hjá Guðna Má Harðarsyni út frá orð-
um biskups á prestastefnu 2008.
Hann bar hugmyndina síðan undir
mig og meðprest sinn í Lindakirkju,
Guðmund Karl Brynjarsson. Saman
bjuggum við til ramma sem við skrif-
uðum síðan handritið út frá. Fyrri
diskurinn kom út árið 2010 og viðtök-
urnar voru það góðar að við gátum í
raun ekki annað en búið til meira,“
segir Þorleifur. Daginn í dag 2 segir
hann vera sjálfstætt framhald af fyrri
diskinum en í sumar var einnig tekin
upp þriðja sería.
„Markmið okkar var að gera
skemmtilegt barnaefni með þessum
góða boðskap. Í barnaefni má aldrei
vera dauður punktur og það er áskor-
un að halda athygli yngri áhorfenda,“
segir Þorleifur. Hvað varðar brúðu-
gerðina segir hann það hafa komið til
af því að fjármagn var takmarkað.
„Ég hef verið að nördast í þessu
núna í þrjú ár mikið til á netinu en ég
hitti líka Helgu Steffensen stuttlega
og fékk hjá henni góð ráð,“ segir Þor-
leifur. Aðalleikarar eru Hafdís María
Matsdóttir og Jóel Ingi Sæmundsson
en Þorleifur vill nota tækifærið og
koma á framfæri þakklæti til allra
þeirra sem unnu að diskinum. Nánari
upplýsingar má nálgast á Facebook
síðunni www.facebook.com/
daginnidag.
Daginn í dag 2
Uppgötva gildi boðskapsins