Morgunblaðið - 21.12.2012, Qupperneq 17
síldin að miklu leyti fyrir suðaustan
land. Veiðisvæði gætu eftir sem áð-
ur einnig verið í Breiðafirði.
Flestar tegundir kaldsjávarfiska
eru móttækilegar fyrir Ichthyo-
phonus hoferi en síld og skarkoli eru
þær tegundir sem eru hvað við-
kvæmastar. Smit af völdum
Ichthyophonus hefur verið staðfest í
yfir 80 tegundum fiska, þ.á m. laxi,
silungi, þorski, ufsa, ýsu, lýsu, slétt-
hala, lýr, grásleppu, rauðsprettu og
kolmunna.
Í Norsk-íslenska síldarstofninum
kom upp sýking af völdum Ichthyo-
phonus 1991-1992, en slík sýking
mun ekki hafa verið þekkt fyrr í
stofninum. Um svipað leyti var far-
aldur í síldarstofnum í Norðursjó.
Svo virðist sem faraldrar hafi yf-
irleitt staðið í um tvö ár, en nú hefur
hann verið í íslensku sumargotssíld-
inni í um fjögur ár.
Faraldur í rénun
Faraldurinn í íslensku sumargots-
síldinni var staðfestur með grein-
ingu sníkjudýrsins 28. nóvember
2008, en þá virtist smittíðni taka
stórt stökk og aukast kröftuglega.
Við rannsókn starfsmanna Hafrann-
sóknastofnunar á afla skipa frá 1.
desember 2008 kom í ljós að smit-
tíðni í síld úr Breiðafirði var um 67%
og um 40% í Stakksfirði.
Í haust er talið að sýking í þeim
hluta stofnsins sem hélt sig í Breiða-
firði hafi verið um 27%. Þess má
geta að norska Hafrannsóknastofn-
unin krefst tilkynningar ef smittíðni
fer um og yfir 2% í veiddri síld. Slík
smittíðni er talin benda til þess að
faraldur sé í uppsiglingu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Síldveiðar Hákon EA rétt fyrir framan við Súgandisey, en bátarnir hafa oft veitt síldina uppi í harða landi.
ings um veður á Íslandi í 100 ár kem-
ur fram að veður hafi verið óvenju-
milt í nóvember 1941 og hagstætt til
landsins. Unnið hafi verið að jarða-
bótum og fé hafi gengið sjálfala. Á
fimmtudag í síðustu viku var hins
vegar norðlæg átt og meðalhiti
tveggja gráða frost, mest mínus 3,6
stig.
Heimildarmynd undirbúin
Það er hins vegar af flugslysinu að
segja að þarna fórst Vickers Well-
ington-flugvél breska hersins í norð-
urhamri Svartahnúks. Vélin var á
heimleið úr eftirlitsflugi á hafsvæðinu
milli Íslands og Grænlands. Með flug-
vélinni fórust sex ungir menn, flestir
rétt rúmlega tvítugir. Daginn eftir
fóru hermenn frá Reykjaskóla í
Hrútafirði og Borgarnesi vestur
á Snæfellsnes til leitar. Bærinn Kolg-
rafir var hernuminn og þar var sett
upp stjórnstöð aðgerðanna.
Nú er unnið að undirbúningi að gerð
heimildarmyndar um þessa atburði
og ýmislegt sem þeim tengdist.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Kolgrafafjörður
Loftmyndir ehf.
Kolgrafa-
fjörður
Grundar-
fjörður
Urthvala-
fjörðurKlakkur
Eyrarfjall
Grundarfjörður
Kirkjufell
Föstudagur 21. desember kl. 11.00 – 20.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl 10.00 – 20.00
Laugardagur 22. desember kl. 11.00 – 22.00
Sunnudagur 23. desember LOKAÐ
Mánudagur 24. desember kl. 09.00 – 13.00
Þriðjudagur 25. desember (jóladagur) LOKAÐ
Miðvikudagur 26. desember (annar í jólum) LOKAÐ
Fimmtudagur 27. desember kl. 11.00 – 18.00
Föstudagur 28. desember kl. 11.00 – 19.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 10.00 – 20.00
Laugardagur 29. desember kl. 11.00 – 19.00
Sunnudagur 30. desember LOKAÐ
Mánudagur 31. desember kl. 09.00 – 14.00
Þriðjudagur 1. janúar (nýársdagur) LOKAÐ
OPNUNARTÍMI
UM HÁTÍÐIRNAR
Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri, í Reykjanesbæ og á Selfossi
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is
vinbudin.is
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is