Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 18

Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Katrín Fjeldsted, læknir og einn 25 fulltrúa stjórnlagaráðs, segir ýmsa reyna að hindra framgang frumvarps stjórnlagaráðs með útúrsnúningum og háði. Þjóðin eigi betra skilið. Með því svarar hún þeirri gagnrýni sem komið hefur fram á frum- varpið, m.a. af hálfu prófess- oranna Gunnars Helga Krist- inssonar og Sig- urður Líndal. Sal- vör Nordal, formaður stjórn- lagaráðs, baðst undan viðtali. – Sigurður Lín- dal prófessor telur að draga þurfi til- lögur stjórnlagaráðs til baka vegna þeirra athugasemda sem komið hafa fram. Hvernig bregstu við þessu? Opið og aðgengilegt ferli „Allar vel rökstuddar athugasemd- ir er sjálfsagt að yfirfara enda hafa stjórnlagaráð svo og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis gert það. Vert er að minna á hve opið vinnuferli stjórnlagaráðs var og aðgengilegt fyr- ir alla á meðan á verkinu stóð. Ýmsar athugasemdir sem nú koma fram virðast gerðar til þess eins að hindra framgang málsins með útúrsnún- ingum og háði. Almenningur í landinu, sem styður nýja stjórnarskrá, á slíkt ekki skilið.“ – Sigurður segir frumvarpið ýta undir réttaróvissu, það sé sundrung- arplagg. Þá hafi stjórnlagaráð ekki náð lykilmarkmiðum, t.d. með að- skilnaði löggjafar- og framkvæmda- valds. Hvernig bregstu við þessu? „Lykilmarkmið stjórnlagaráðs var að vinna það verk sem Alþingi fól því með samhljóða atkvæðum 28. sept- ember 2010, að endurskoða stjórnar- skrá lýðveldisins Íslands. Þetta gerði stjórnlagaráð og lagði fram frumvarp að stjórnarskrá sem þjóðin gæti sam- einast um, en ekki til að sundra henni. Aðskilnaður löggjafarvalds og fram- kvæmdavalds er mun skýrari í nýrri stjórnarskrá en þeirri sem nú gildir og miðar að því að styrkja löggjafann gagnvart framkvæmdavaldinu. Allar breytingar á stjórnarskrá, hvar í heimi sem er, ýta undir réttaróvissu og það er löggjafans og dómstóla að eyða henni.“ – Gunnar Helgi segir stjórnlag- aráð hafa verið umboðslaust og að það hafi útvíkkað verkefni sitt stór- lega? Fjarri því að vera án umboðs „Stjórnlagaráð var fjarri því að vera umboðslaust heldur var það þingskipuð nefnd þeirra einstaklinga sem höfðu áður verið kjörnir af þjóð- inni í atkvæðagreiðslu á landsvísu. Stjórnlagaráð skrifaði ekki nýja stjórnarskrá frá grunni, fjölmargar greinar eru óbreyttar. Hins vegar var okkur ljóst að ýmsu þyrfti að breyta til hins betra til að efla lýð- ræði í landinu. Breytingar þær sem gerðar voru miða einmitt að því.“ – Gunnar Helgi segir fulltrúa stjórnlagaráðs hafa fallist á að af- greiða allt í samstöðu og að þess vegna hafi útkoman verið óskalisti sem endurspegli sérvisku þeirra sem í hlut áttu. Hvernig svararðu því? „Stjórnlagaráð stefndi að því að ná samstöðu um frumvarp að nýrri stjórnarskrá en ekki var ljóst fyrr en undir lokin að það tækist. Vinnubrögð stjórnlagaráðs voru að mínu áliti til fyrirmyndar. Óskandi væri að fulltrúar okkar á Alþingi til- einkuðu sér þau. Þjóðin á það skilið.“ – Sigurður Líndal víkur að 34. greininni um náttúruauðlindir þar sem segir að auðlindir í náttúru Ís- lands, sem ekki eru í einkaeigu, séu sameiginleg og ævarandi eign þjóð- arinnar. Afstaða Sigurðar er að þjóð geti ekki verið aðili að eða handhafi eignarréttar. Ákvæðið sé mótsagna- kennt. Hvernig bregstu við þessu? Á að vera öllum auðskilið „Það er auðskiljanlegt öllum al- menningi að auðlindir í náttúru Ís- lands eigi að vera sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Þjóðin á þegar ýmislegt svo sem þjóðgarða, þjóðlendur og Þjóðleikhús. Ég sé ekki að þetta þurfi að vefjast fyrir lögspekingum. Þetta er íslenska.“ – Sigurður gagnrýnir jafnframt hversu langt stjórnlagaráð gangi í að opna heimildir til að krefjast þjóð- aratkvæðis. Það veiki stöðu Alþingis. Hvernig bregstu við því? „Stjórnlagaráð taldi mikilvægt að gera stjórnsýsluna gagnsærri, efla Alþingi en jafnframt gera almenningi kleift að skipta sér af því sem þyrfti hverju sinni. Í núverandi stjórn- arskrá er það forseti Íslands einn sem getur vísað málum til þjóð- aratkvæðis. Ég tel ekki að aðkoma al- mennings veiki stöðu Alþingis, en hins vegar geta slíkar heimildir verið aðhald fyrir þingið ef gjá myndast milli þings og þjóðar,“ segir Katrín. Reynt að tefja og snúa út úr  Fulltrúi í stjórnlagaráði svarar gagnrýni á frumvarp til stjórnskipunarlaga  Þjóðin eigi betra skilið en háð og útúrsnúning þeirra sem vilja tefja málið  Segir vinnubrögð stjórnlagaráðs til fyrirmyndar Morgunblaðið/Golli „Þetta er alltof skammur tími. Við fengum um hálfan mánuð til að skila umsögnum og það er alltof stuttur tími til að fara yfir svo viðamikið mál. Það ætti öllum að vera ljóst,“ segir Hjörtur O. Aðal- steinsson, formaður dómara- félags Íslands. Tilefnið er það svar félagsins til eftirlits- og stjórnskipunarnefndar Alþingis, að uppgefinn tími til að fara yfir frumvarp stjórnlagaráðs hafi ver- ið alltof naumur. „Dómstólaráð var sama sinnis. Svar þess var á sömu nótum. Það þyrfti minnst einn og hálfan mán- uð til að fara yfir svo viðamikið mál. Við útilokum ekki að skila inn umsögn ef við fáum lengri frest til þess,“ segir Hjörtur sem vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Hann á sæti dómstólaráði sem fulltrúi dómstjóra. Formaður ráðsins er Símon Sigvaldason. Að sögn Elínar Valdísar Þor- steinsdóttur, rit- ara stjórnskip- unar- og eftir- litsnefndar, hafa ekki margir beð- ið formlega um lengri frest til að skila inn um- sögnum. Sam- band íslenskra sveitarfélaga sé í hópi þeirra sem hafi óskað eftir lengri fresti. Þá muni Hæstiréttur, réttar- farsnefnd og umboðsmaður Al- þingis væntanlega skila umsögn- um um stjórnarskrárfrumvarpið í janúar. Þingnefndir fengu bréf frá for- manni stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar 23. nóv. og höfðu frest til 10. des. til að skila umsögn. Aðrir fengu frest til 13. des. Hinn 7. des. ákvað nefndin að rýmka frestinn. Telja tímann alltof stuttan VIÐBRÖGÐ DÓMSTÓLARÁÐS Hjörtur O. Aðalsteinsson Vilborg Arna Gissurardóttir er hálfnuð á ferð sinni um suðurskautið en hún áætlar að vera komin á leiðarenda um miðjan janúar. Í fyrrakvöld hafði hún lagt helming ferð- arinnar að baki, tæplega 600 kíló- metra, en leiðangurinn er alls 1.140 km. Aðstæður hafa verið misgóðar til göngu síðustu daga, mikið af nýföllnum snjó sem gerir færið þungt. Í dagbók Vilborgar á heimasíðunni www.lifsspor.is segir hún: „Wow þvílíkur gleðidagur í dag. Skíðaði yfir á seinni helming- inn og núna erum við að verð- launa okkur með jólahlaðborði sem samanstendur af 1 pakka af havarti-osti og 1 pakka af ss- pulsum sem tollararnir fundu ekki í Chile.“ Ferðalag Vilborgar Örnu er hálfnað Vilborg Arna Gissurardóttir Mannréttindaskrifstofa Íslands andmælir því að sérfræðinga- nefnd sem skipuð var vegna stjórnlagafrumvarpsins hafi lagt til að orðalagið „allir skulu vera jafnir“ skuli standa óbreytt í 65. gr. stjórnarskrárinnar. Þvert á móti styður skrif- stofan tillögu stjórnlagaráðs um að þarna skuli standa „öll erum við jöfn“, enda hafi breyt- ingar ráðsins m.a. lotið að því „að jafna út karllægni í stjórnarskránni“. MRSÍ gerir athugasemdir við hversu stuttur frestur var til umsagna. Alþingi þurfi að gefa sér góðan tíma og ná samstöðu „án þess þó að hverfa frá þeim tillögum sem stjórnlagaráð og þjóðfundur hafa sett fram“. Karllægni sé strokuð út ÁRÉTTING MRSÍ Katrín Fjeldsted Fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Þingnefndir höfðu frest til 13. des. til að skila umsögn um frumvarpið. YçÜ|Ü )ö áxÅ {≠ÇÇâÇ Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.