Morgunblaðið - 21.12.2012, Síða 22

Morgunblaðið - 21.12.2012, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 STUTTAR FRÉTTIR ● Landsframleiðsla á mann, leiðrétt fyrir kaupmætti í hverju landi fyrir sig, var 11% yfir meðaltali ESB landanna hér á landi á síðastliðnu ári samkvæmt töl- um sem hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í síðustu viku. „Er þessi mælikvarði oft notaður á velferð og virðist hún vera nokkuð viðunandi á Ís- landi í þessum samanburði þrátt fyrir allt sem hér hefur gengið á í efnahags- málum á undanförnum árum,“ sagði í morgunkorni greiningar Íslandsbanka í gær. Þar kemur jafnframt fram að þótt staða landsins sé betri en gerist að meðaltali í ESB og að hún sé betri en gerist í flestum ríkjum innan EES hafi hún á þennan mælikvarða versnað um- talsvert á undanförnum árum. Ísland hafi verið 32% yfir meðaltali ESB land- anna fyrir 10 árum. Þá hafi Ísland verið í 6. sætinu á þessum lista Eurostat yfir Evrópuþjóðir. Í samkeppni þjóða um að bjóða sem best lífskjör hafi Ísland því dregist umtalsvert aftur úr á síðustu ár- um. Það land sem komi einna best út úr þessum samanburði sé Noregur. Landsframleiðsla á mann í Noregi hafi verið 89% yfir meðaltali ESB ríkjanna á síðastliðnu ári og 68% yfir því sem hún var hér á landi. Landsframleiðslan hér 11% yfir meðaltali ESB BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu lífeyrissjóða og Landsbankans, hefur notað hina ýmsu ráðgjafa til að annast sölu á hlutabréfum í eigu sjóðsins. At- hygli vekur að sjóðurinn hefur einung- is einu sinni notað Landsbankann, líkt og sjá má á meðfylgjandi töflu, en hann er stærsti eigandi sjóðsins með 28% hlut. Hafliði Helgason, upplýsinga- fulltrúi Framtakssjóðsins, segir í sam- tali við Morgunblaðið að fagleg sjón- armið ráði ávallt vali sjóðsins á ráðgjöfum. Framtakssjóðurinn keypti eignar- haldsfélagið Vestia af Landsbankan- um árið 2010 og við það eignaðist bankinn hlut í sjóðnum. Átta félög fylgdu með Vestia í kaupunum: Húsa- smiðjan, Icelandic, Plastprent, Voda- fone og fjögur tæknifyrirtæki sem síð- ar sameinuðust undir merkjum Advania. Viðskiptabankarnir Viðskiptabankarnir þrír, Arion, Ís- landsbanki og Landsbankinn, fengu fjölmörg fyrirtæki í fangið eftir bankahrun og hafa verið þeir sem hafa selt hvað flest fyrirtæki í sínu eigna- safni eftir hrun. Bankarnir hafa nýtt eigin ráðgjafa við söluna þegar fyrir- tækin eru að öllu leyti í eigu þeirra, en Morgunblaðið þekkir eitt dæmi um annað, þegar Kontakt seldi Sigurplast fyrir Arion, en Kontakt sérhæfir sig í minni og meðalstórum fyrirtækjum. „Misjafnt er hver annast sölu á fé- lögum sem Íslandsbanki hefur tekið yfir. Í sumum tilvikum annast bankinn sölu umræddra eigna sjálfur enda er það hluti af kjarnastarfsemi bankans auk þess sem starfsmenn bankans búa yfir viðeigandi sérþekkingu. Í öðrum tilvikum þar sem kröfuhafar eru margir þá koma þeir sér saman um hvaða aðila er falið að annast sölu eigna,“ segir í svari frá Íslandsbanka. Innan hvers banka er sagt að þeir hafi yfir að ráða öflugum hópi ráð- gjafa sem þeir treysti best til að sinna fyrirtækjasölu. Sumir segja að það mætti jafnvel túlka það sem einhvers konar vantraust á eigið starfsfólk að nýta það ekki, til að sinna sölu á eigin eignum, en á sama tíma selja þjón- ustu þeirra dýrum dómum til ann- arra. Aðrir segja að bankarnir eigi að ráða til sín þriðja aðila til að aðstoða við söluna til að auka trúverðugleika sölunnar út á við, þar sem verið sé að selja eigin eignir. Sem sagt, til að að- stoða þeirra ráðgjafa en ekki yfirtaka alfarið verkefnið. Ósanngjarnt sé að biðja þá um að sleppa alfarið höndum af verkefninu, þar sem þeir séu einnig sérfræðingar á þessu sviði. Framtakssjóðurinn fær víða aðstoð við eignasölu  Landsbankinn á 28% hlut í sjóðnum  Viðskiptabankarnir selja eigin félög Borgartún Mörg fyrirtæki hafa komið sér fyrir í Borgartúninu. Athygli vekur að FSÍ hefur einungis einu sinni notað Landsbankann. Morgunblaðið/Frikki Umsjón með sölu á fyrirtækjum í eigu Framtakssjóðsins *Skráning á markað. FSÍ seldi 60% Umsjónaraðili Fyrirtæki í eigu FSÍ sölu Vodafone* Íslandsbanki Plastprent Straumur Húsasmiðjan Landsbankinn Bandarísk starfsemi Icelandic Merrill Lynch Icelandair (10% hlutur) Íslandsbanki Icelandair (7% hlutur) Straumur                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-.+ ,/0.12 +,2.11 ,,.,/+ ,,.11- +3.+/4 +05.+0 +.143 +30.+2 +2-.22 +,-.1 ,/0.3- +,2.4+ ,,.,22 ,,.-++ +3.+21 +05.-+ +.1301 +30.51 +22.+, ,,5.0344 +,-.5 ,/1.11 +,5.+4 ,,.00+ ,,.-55 +3.,, +05.43 +.1354 +31.0, +22.-4 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, spurði í viðtali við Við- skiptablað Morgunblaðsins fyrir viku hvort það sé „eðlilegt að eig- endur eða stórir lánardrottnar sjái jafnframt um sölu á hlutabréfum“. Hann sagði að það væru von- brigði að MP banki hefði ekki haft aðkomu að skráningu þeirra félaga sem hafa farið á hlutabréfamarkað á síðustu tólf mánuðum. „Ég átti von á því að við myndum taka að okkur skráningarverkefni en það hefur ekki gengið eftir og ég er pínulítið óánægður með það.“ Spurður hvort MP banki geti ekki keppt við stóru bankana á þessu sviði, segir Sig- urður Atli svo alls ekki vera. „Við höfum alla burði til að keppa við aðra en það virðist hafa vegið þungt að þar sem tengsl eru við viðkomandi viðskiptabanka hafa verkefnin viljað enda þar. Nú þurfa fjárfestar, sem eru líklegir kaupendur að slíkum bréfum, að fara að leggja línurnar hvernig þeir vilja að haldið sé á þessum mál- um.“ Lánardrottnar ráða miklu EIGENDUR OG LÁNARDROTTNAR MEÐ PÁLMANN Í HÖNDUNUM Sigurður Jónsson Fyrirtæki á heimsvísu hafa selt ruslbréf til fjárfesta fyrir metupp- hæð á þessu ári. Fjárfestar eru nú reiðubúnir til að fallast á talsvert lægri ávöxtunarkröfu á slíkum bréfum en áður hefur tíðkast – jafnvel undir 5%. Fram kemur í frétt Financial Times að útgáfa ruslbréfa hafi numið 419 milljörðum Bandaríkja- dala á árinu. Fyrra metið var sett árið 2010 þegar útgáfa slíkra bréfa nam ríflega 350 milljörðum dala. Fjármagnskostnaður fyrirtækja með lánshæfi í ruslflokki er tölu- vert hærri borið saman við skulda- bréfaútgefendur sem flokkast fjár- festingarhæfir og því er aðgengi slíkra fyrirtækja að lánsfjármagni að öllu jöfnu bæði takmarkaðra og dýrara. Að sögn greinenda ætti aukin út- gáfa ruslbréfa ekki að koma á óvart á meðan bankar halda að sér hönd- um í útlánum til raunhagkerfisins og vextir eru í sögulegu lágmarki. Fjárfestar sjá tækifæri í hávaxta- bréfum með lélegt lánshæfismat við slíkar aðstæður. Í frétt Financial Times er haft eftir Stephan Jaeger, forstöðu- manni markaðsviðskipta með há- vaxtabréf hjá Bank of America, að það væri kannski ekki lengur rétt að tala um „hávaxtabréf“ í ljósi sí- fellt lægri ávöxtunarkröfu sem slík bréf eru seld á. Útgáfa fyrirtækjaskuldabréfa sem flokkast fjárfestingarhæf hef- ur ennfremur aldrei verið meiri en á þessu ári. Samtals nam útgáfa slíkra bréfa 1,71 billjón dala á árinu, samkvæmt bráðabrigðatöl- um breska greiningafyrirtækisins Dealogic, en það er 46% aukning frá fyrra meti sem var sett árið 2009. hordur@mbl.is AFP Wall Street Sökum lágra vaxta sækja fjárfestar í ruslbréf. Aldrei meiri ásókn í ruslbréf  Fjárfestar sækja í hávaxtaskuldabréf Thermowave plötuvarmaskiptar Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði  Eimsvalar fyrir sjó og vatn  Olíukælar fyrir sjó og vatn  Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu  Fyrir orku iðnaðinn  Glycol lausnir fyrir byggingar og sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali Títan–laser soðnir fyrir erfiðar aðstæður svo sem sjó/Ammoníak Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði www.frost.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.