Morgunblaðið - 21.12.2012, Síða 23

Morgunblaðið - 21.12.2012, Síða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 Verkfræðifyrirtækið Mannvit hefur hlotið 40 milljóna evra styrk vegna jarðvarmaverkefnis í Ungverja- landi. Er þetta eitt af 23 verkefnum sem hljóta styrki vegna NER300- áætlunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um græn orkuverkefni. Markmið verkefn- isins er að örva jarðvarmakerfi til raforkuframleiðslu í suðaust- urhluta Ungverjalands. Ráðgert er að vinna verkefnið á næstu árum í nánu samstarfi sérfræðinga á sviði verkfræði og jarðvísinda í Ung- verjalandi og á Íslandi. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá Mannviti. Framlag ESB til verkefnis Mann- vits í Ungverjalandi nemur um 40% af heildarkostnaði verksins sem er áætlaður ríflega 100 milljónir evra. Sjá nánar á mbl.is Morgunblaðið/Ómar Búdapest Mannvit hefur rekið dótturfélag í Búdapest í Ungverjalandi frá árinu 2007. Mannvit fékk fjörutíu milljónir evra í styrk Gerður Rík- harðsdóttir rekstrarhag- fræðingur hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri Cintamani frá og með næstu ára- mótum. Gerður var fram- kvæmdastjóri IKEA í þrjú ár, framkvæmdastjóri Útilífs í fimm ár og undanfarin sex ár hefur hún verið framkvæmdastjóri sérvöru- fyrirtækja Haga, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Gerður er með meistara- gráður, annars vegar í rekstr- arhagfræði og hins vegar starfsmannastjórnun. Ráðin framkvæmda- stjóri Cintamani Gerður Ríkharðsdóttir Þriðji stærsti banki Grikklands, Eurobank, tapaði 1,095 milljörðum evra, 182 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum ársins. Þurfti bankinn að afskrifa á tímabilinu 6 milljarða evra af skuld- um gríska ríkisins. Vegna þessa þarf Eurobank á endurfjármögnun að halda upp á 5,8 milljarða evra. Grískir bankar munu alls fá 50 milljarða evra úr björgunarsjóði Evrópu til endurfjármögnunar. Tapaði yfir milljarði evra á níu mánuðum STUTTAR FRÉTTIR Íslendingar hafa á síðustu þremur árum eytt umfram efni og í flestum mánuðum duga tekjur ekki fyrir út- gjöldum. Þetta kemur fram þegar tölur frá Meniga um heildarútgjöld og neyslu eru skoðaðar. Niðurstaðan sýnir aukna skuldasöfnun þrátt fyrir að á tímabilinu hafi ríkissjóður fjór- um sinnum verið með vaxtaniður- greiðslu, fólk hafi tekið út tugi millj- arða úr séreignarsparnaði og bankarnir hafi lækkað skuldir eða greitt fólki til baka hluta vaxta- greiðslna. Á sama tíma hafa yfir- dráttaskuldir og óverðtryggð skuldabréfalán heimilanna sem ekki eru íbúðalán hækkað nokkuð. Meðalhalli einstaklings í hverjum mánuði er samkvæmt þessum tölum 1,9%, en það er töluvert önnur nið- urstaða en Hagstofan kemst að í Hagtíðindum hinn 6. desember síð- astliðinn þar sem afgangur heimil- anna er 14% á mánuði á árunum 2009 til 2011. Í tölum Meniga er tímabilið 2010 til 2012 skoðað, en meðalhalli var mestur árið 2010 og hefur farið lækkandi síðan. September er sá erfiðasti Mikill munur er á útkomu ein- stakra mánaða og fer það meðal ann- ars eftir því hvort barna- og vaxta- bætur séu greiddar út, auk þess sem vaxtaniðurgreiðsla ríkissjóðs hefur áhrif. September er sá mánuður sem er fólki erfiðastur en á síðustu 3 ár- um hefur hann samtals verið nei- kvæður fyrir hvern og einn um 110 þúsund krónur, eða um 33 þúsund á mánuði. Nánari umfjöllun á mbl.is thorsteinn@mbl.is Morgunblaðið/Golli Eyðslusemi Í flestum mánuðum duga tekjur ekki fyrir útgjöldum. Íslendingar eyða um efni fram  Aukin skuldasöfnun undanfarin 3 ár Skráðu bílinn þinn frítt inn á diesel.is Kletthálsi 15 · 110 Reykjavík · Sími: 578 5252 þegar þú ætlar að selja bílinn Munið að slökkva á kertunum Aldrei má skilja eftir logandi kerti eða kertaskreytingu í mannlausu herbergi s.s. í fundarherbergi eða á kaffistofu vinnustaðar. Slökkvilið höfuborgasvæðisins Föstudagur 21. des., Laugadagur 22. des., Sunnudagur 23. des. frá kl. 12:00 til 20:00 Skata, Saltfiskur, Kartöflur, Rófustappa, Hangiflot Studio 29, Á horni Laugaveg Snorrabrautar, sími 511 3032, 861 2319 Skata - Skata - Skata

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.