Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 27

Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 Dyrhólaey Það var sannarlega mikil sýning sem náttúruöflin settu á svið í rokinu við suðurströndina í gær. Við Dyrhólaey skullu voldugar öldur á klettunum með miklum látum. RAX Eitt frægasta álitamál varð- andi tollheimtu kom til kasta hæstaréttar Bandaríkjanna þegar listamað- urinn Brancousi flutti til landsins listaverkið „Fugl í geimi“ Að mati yfirmatsmanns tollgæslunnar þyrfti hreinlega of mikið ímyndunarafl til að sjá fugl úr því sem sannanlega væri ekk- ert annað en bronsklumpur og ætti því að bera 40% toll. En það eru fleiri mannanna verk sem krefjast auðugs ímyndunarafls. Eitt af því er hvernig tollheimta, sem í eðli sínu er skerðing lífsgæða, á að geta bætt lífsgæði? Vissulega getur verið flókið að útskýra hvernig sérhagsmunir, t.d. eins og kvótakerfið geti farið saman við almannahagsmuni (sem það reyndar gerir) en hinsvegar ætti að vera einfalt að benda á sérhagsmuni eins og tollavernd sem augljóslega ganga gegn almannahags- munum og almennri skynsemi að auki. Tollar eru ekki ein- ungis dýrir og flóknir í inn- heimtu (rekstur tollstjóra kostar skattborgarana 2,4 milljarða á ári) heldur rýra þeir mest kaupmátt þeirra tekjulægstu. Að auki valda tollar margháttuðum trufl- unum og kostnaðarauka fyrir hagkerfið í heild. Í daglegu tali er jafnan tal- að um tekjur af tollum en þess í stað ætti að tala um árlegan kostnað sem nemur meira en 6 milljörðum. Tollar eru oft réttlættir til að vernda inn- lendar framleiðslugreinar sem í eðli sínu getur aldrei gengið út á annað en að hygla verða hjá smyglurum landsins. Einnig hefur svo komið í ljós að við komu í hina rangnefndu „fríhöfn“ geta grunlausir lent á sakaskrá fyrir það eitt að geta ekki fært sönnur á að greiddur hafi verið tollur af hversdagslegum hlutum á borð við lesbretti og snjallsíma auk þess sem tollvörðum er heimilt að fjarlægja grun- samlega dýr gleraugu af nefi ferðamanna þar til menn ná að sanna sakleysi sitt. Af ein- hverjum ástæðum eru erlendir ferðamenn þó ekki toll- „afgreiddir“ með sama hætti við komuna til landsins sem er augljós mismunun á grundvelli þjóðernis. Landsmenn geta allavega notið síðasta jóla- bakstursins án ríkisforsjár þessi jól. óhagkvæmri framleiðslu á kostnað neyt- enda. Rökin fyrir því að vernda innlenda fram- leiðslu eru ein- hver helberasta ósannsögli sem stjórnmálamenn og hags- munaaðilar bera á borð neytenda í orðsins fyllstu merkingu og eru þá Vaðla- heiðargöng meðtalin. Með við- bættri sk. „neyslustýringu“ verður svo kokteillinn enn eitraðri. Til að setja hlutina í samhengi má nefna að gámur af sykri sem nú kostar kr. 9 m. mun hækka í 22 m. frá og með mars á næsta ári. Innflytj- endur á sykri hugsa sér að sjálfsögðu gott til glóðarinnar og hafa pantað margra ára birgðir enda fyrirhuguð tolla- hækkun ígildi yfir 200% rík- istryggðrar ávöxtunar! Eðli málsins samkvæmt mun ríkissjóður ekki fá krónu úr sykurskatti ætluðum til smásölu næstu árin en al- menningur mun hinsvegar verða fyrir tugmilljarða bú- sifjum með hækkun vöru- verðs auk þess sem hver 0,1% hækkun vísitölu neysluverðs, hækkar verðtryggðar skuldir landsmanna um 25 milljarða! Til að gæta samræmis, munu svo sætuefni kosta meira en vandaðasta fíkniefni og því viðbúið að áherslubreytingar Eftir Arnar Sigurðsson »Hver 0,1% hækk- un vísitölu neysluverðs, hækk- ar verðtryggðar skuldir landsmanna um 25 milljarða. Arnar Sigurðsson Höfundur starfar á fjármálamarkaði. Síðustu smákökujólin? ,,Bronsklumpurinn", átti síðar eftir að seljast á $27,5m eða um 3,5 milljarða króna. Jólahátíð heið nálgast okkur enn með þessum óútskýrðu töfrum og þó augljósu í raun. Aldrei sem þá leitar hugur til þeirra sem erf- iðast eiga af svo mörgum og mis- munandi ástæð- um og skal ekki rakið frekar, aðeins það að þannig á það auðvitað að vera allan ársins hring. Til þessa eiga allir að líta í raun, allra helzt er það nauðsyn hjá þeim sem á hvers konar valdataumum halda, því þar geta áhrifin til góðs orðið mest og mikil-virkust ef sönn samhjálparsjónarmið ráða för. Fátækt er hér alltof al- geng, allt yfir í hreina neyð og geta margar orsakir að baki legið, oftast þó ein- hverjar þær sem viðkomandi fær ekki rönd við reist. En auðvitað eru eins og alltaf sjálfskaparvítin verst alls og einnig þau koma stundum við sögu. Okkur er einnig hollt að líta í eigin barm og kanna rækilega verk sem vilja á alla lund. Það fer einkar vel á því í aðdraganda hátíðar ljóss og friðar í myrkasta skammdeginu og þá vill hugur hverfa út fyrir landsteinana til þeirra hræðilegu stríðsátaka sem alltof víða viðgangast, átaka sem oft eru kennd við „hug- sjónir“ en skapa svo skelfi- legar hörmungar meðal sak- lausra borgara. Þar megum við prísa okkur sæl, enda skyldum við aldrei gleyma greinarmun að gjöra á hóf- legum og hneykslanlegum drykkjuskap frá sjónarmiði bindindismanns, þá verður maður að segja, að hóf- drykkjan er skaðlegri að því leyti sem hún er eftirdæmi, en ofdrykkjan viðvörun.“ Hvað sem menn vilja taka hér mikið eða lítið undir þá er hér einmitt litið til sam- hengis hlutanna. Aldrei sem um jól á barnanna björtu há- tíð á áfengisneyzla verr við, að ekki sé nú um ofneyzlu talað sem gjörir oft dökkan sorta úr birtunni. Börn eiga það engan veginn skilið að sá sorti sé leiddur yfir, raunar á engin sál það skilið, allra sízt í nafni einhverrrar óút- skýrðrar menningar sem er þó í órofa samhengi við hina verstu ómenningu: Heitt er ákall mitt til allra í okkar góða og gjöfula landi að leyfa barninu að blómstra, líka barninu í okkur sjálfum þó eldri séum. Það gerist ekki með valdboði vímunnar. Við bindindisfólk óskum landslýð öllum gleðilegra jóla, þar sem gæfan verði á vegferð æðst. því hversu yf- irgnæfandi gott við höf- um það sem þjóð, þrátt fyrir allt fjas- ið sem alltof oft er inni- stæðulaust sem betur fer. Efst í hug okkar bind- indisfólks eins og alltaf, en aldrei frekar en um jól, eru þau býsn sem viðgangast svo víða af vímunnar völdum, allt yfir í endalok lífsins. Því hvað sem öllum lofsöng líður um hina sönnu „vínmenn- ingu“, sem hvergi má falla blettur eða hrukka á, þá eiga margir verulega bágt vegna þeirra öfugmæla að „hóflega drukkið vín gleðji mannsins hjarta“, þ.e.a.s. þegar menn- ingin er lofuð sem mest gleymist nær alltaf að greina frá því böli, þeirri óham- ingju, þeim slysum, þeim mannfórnum sem þessi „gleðigjafi“ getur leitt af sér. Við bindindisfólk viljum setja þessa hluti í samhengi, án þess samhengis er allt tal um þessa svokölluðu menningu marklaust hjal. Við neitum því alls ekki að margir kunna oftast þokkalega með þennan „gleðigjafa“ að fara, en þó skal þess minnst sem svo mörg dæmi eru um, að óvænt getur þó út af brugðið í einstökum tilvikum. Það var fróðlegt að lesa til- vitnun þess merka manns Guðlaugs Guðmundssonar, alþingis- og sýslumanns, í Morgunblaðinu um þessa helgi úr þingræðu hans frá 1895: „Ætti maður nokkurn Eftir Helga Seljan » Aldrei sem um jól á barnanna björtu hátíð á áfengisneyzla verr við, að ekki sé nú um ofneyzlu talað sem gjörir oft dökkan sorta úr birtunni. Helgi Seljan Höfundur er form. fjölmiðlanefndar IOGT. Áfengislaus jól – öllum til góðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.