Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 33

Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 ✝ Þuríður JónaÁrnadóttir fæddist í Miðdölum, Dalasýslu, 8. sept- ember 1920. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Grund 14. des- ember 2012. Foreldrar henn- ar voru Sigurjóna Jónsdóttir frá Arn- arstapa, Snæfells- nesi, f. 4.10. 1894, d. 29.7. 1959, og Árni Jónasson ull- armatsmaður frá Stóra- Vatnshorni í Haukadal, fæddur 30.6. 1892, d. 10.6. 1968. Þuríður var einkabarn for- eldra sinna og ólst upp í for- eldrahúsum í Skriðukoti í Haukadal. Fluttist hún þaðan með foreldrum sínum til Reykja- víkur árið 1934. Árið 1941 giftist Þuríður Ingólfi Jónssyni, frá Stöðvarfirði, f. 5.6. 1908, d. 19.2. 1998. Þau skildu. Þuríður og Ingólfur eignuðust eina dóttur, Steinunni, f. 7.7. 1943. Maki Gylfi Geirsson frá Vík í Mýrdal, f. 21.10. 1948. Börn þeirra: 1) Geir Gylfason, f. 25.9. 1977, og 2) Jóhanna Gylfadóttir, f. 7.7. 1979. Barn hennar og Bjarna Þ. Sig- urbjörnssonar er Katla, f. 24.5. fræðaskólapróf í Reykjavík. Síð- ari á ævinni stundaði hún nám við öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð. Hún vann lengi við verslunarstörf í Reykjavík, m.a. hjá kvenfataverslununum Ninon og Feldinum. Ljósmyndun var Þuríði mjög hugleikin og starfaði hún m.a. hjá ljósmynda- stofu Vigfúsar Sigurgeirssonar og ljósmyndastofu Lofts. Á sjötta áratugnum fór Þuríður til Bandaríkjanna og starfaði þar við ýmis þjónustustörf. Eftir að heim kom starfaði hún í mörg ár hjá Sambandi ísl. samvinnu- félaga við verslunarstörf og kenndi þar m.a. á Singer- saumavélar eftir að hafa sótt nokkurra mánaða námskeið þar að lútandi í London. Þuríður stundaði ritstörf, skrifaði sögur og ljóð. Auk þess sem hún tók fjölmörg viðtöl við alþýðuhetjur víða um land sem birtust í Lesbók Morgunblaðsins undir stjórn Gísla Sigurðssonar ritstjóra. Þuríður var vel hag- mælt og ættingjar hennar gáfu út ljóðasafn hennar „Hvaðan og hvert“ á nýræðisafmæli hennar 2010. Þuríður og Einar bjuggu í Reykjavík, lengst af á Háaleit- isbraut og síðar í Mávahlíð. Eftir lát Einars bjó Þuríður áfram í Mávahlíð en flutti á Dvalarheim- ilið Grund haustið 2011. Útför Þuríðar verður gerð frá Háteigskirkju föstudaginn 21. desember 2012 kl. 13. Meira: mbl.is/minningar 2012. Árið 1958 giftist Þuríður Ein- ari Alberti Magn- ússyni leigu- bifreiðastjóra frá Leirubakka í Land- sveit, f. 11.11. 1917, d. 20.8. 1992. Þur- íður og Einar eign- uðust Árna Kristin, f. 1.3. 1959. Árni á soninn Hákon Örn, f. 5.6. 1986, með Sú- sönnu Þ. Jónsdóttur, f. 23.7. 1959. Þau slitu samvistum. Maki Árna er Ómar Ellerts- son, f. 8.12. 1966. Synir hans eru Jón Óli og Ellert Björn. Sonur Einars af fyrra hjónabandi er Gunnar Magnús, f. 29.2. 1948. Maki Ingibjörg Sigríður Guð- mundsdóttir, frá Húsatóftum á Skeiðum, f. 13.5. 1949. Dætur þeirra: 1) Sólveig Hrönn, f. 17.12. 1973. Maki Gísli Ragnar Kristjánsson, f. 29.9. 1972. Þeirra börn: Kristján, Ingibjörg og Einar Örn. 2) Bergdís Saga, f. 4.6. 1975, maki Júlíus Björg- vinsson, f. 29.9. 1968. Synir þeirra: Gunnar Hans, Ari Hauk- ur og Andri Karel, sonur Júl- íusar af fyrra hjónabandi. Þuríður tók barna- og gagn- „Vitur maður hefur sagt að næst því að missa móður sína sé fátt hollara úngum börnum en missa föður sinn.“ Mér er í barnsminni hversu reið móðir mín var eftirlætis- skáldi sínu Halldóri Laxness að byrja Brekkukotsannál á þessum orðum. Hún skyldi vera börnum sínum skjól til að vaxa og verða að góðum manneskjum á sama hátt og hún hafði notið óskiptrar at- hygli og atlætis hjá foreldrum sínum. Móðir mín lifði næstum heila öld, ólst upp í torfbæ, sá Reykja- vík byggjast úr bæ í borg, ferðað- ist yfir hálfan hnöttinn. Ók Route 66 í amerískum kagga yfir þver Bandaríkin til að vinna á Cos- mopolitan í New York. Hún hélt heim með nýja drauma og strauma. Hún fyllti bernskuár mín með ferðalögum, sveitadvöl og sumar- búðaheimsóknum. Unglingsárun- um stýrði hún með svipbrigðum og þögn ef henni fannst ærslin verða of mikil. Hún vildi að við fé- lagarnir ættum frekar athvarf heima en úti í sjoppu. Menntun var nauðsyn og sjálf sótti hún sér menntun fram á fullorðinsár. Hún leiðbeindi um áhuga fyrir verkum annarra og elfdi sjálfs- virðingu. Tillitssemi við aðra án undanlátssemi og mikilvægi þess að kunna að halda samræðum lif- andi og innihaldsríkum vorum við minnt á daglega í samskiptum við hana. Veldur ekki sá er varar var henni óþrjótandi umboð til að leggja manni lífsreglurnar jafn- vel eftir að við börnin vorum orð- in harðfullorðin. Það var oft freistandi að ganga gegn góðum ráðum. Hún átti góð ár með föður mín- um en missti hann allt of fljótt. Hún var sjálfstæð og sjálfbjarga og bjó ein fram yfir nírætt þegar hún fluttist á Grund þar sem hún andaðist eftir stutt veikindi. Ég vil að lokum þakka móður minni samfylgdina og veganestið sem hún gaf mér með ljóði sem hún orti og birtist í ljóðasafni hennar Hvaðan og hver sem út kom 2010. Megi ferðalag þitt halda áfram. Lengi hef ég undrast og spurt um spor mín, sem liggja hér um sendna strönd. Um nótt bar mig að landi Má vera að ég sé skipbrotsmaður sem bylgja skolaði á land, en braut skip sitt á leið um víðari höf. Eða kom ég hér aðeins til að hvílast um stund eins og fugl frá annarlegri stjörnu úti í geimnum, á flugi áfram til óþekktra heima? Spurningu minni um hvaðan og hvert er enn ósvarað. En hitt veit ég: að innan skamms verða spor mín grafin í gljúpan sand og ósýnileg þeim, sem koma og hafa viðdvöl hér á eftir mér. Árni Kristinn Einarsson. Amma mín og stórvinkona er fallin frá. Amma Þu eins og við systkinin kölluðum ömmu var ekki bara amma í þeirri merkingu heldur var hún svo miklu meira. Amma var mikil vinkona mín og trúnaðarvinur og var ávallt gott að tala við ömmu um það sem manni lá á hjarta. Í gegnum árin þróuðust samtölin okkar frá því að vera samtal lítillar ömmu- stelpu við ömmu sína yfir í það að tvær vinkonur voru að spjalla saman. Ég varð snemma forvitin um ævi ömmu minnar og þann tíma sem hún lifði, andstæðurnar og breytingarnar sem amma og fólk af hennar kynslóð upplifðu og endurspeglaðist í frásögnum af gömlum tíma. Fyrir mér var amma mín stórmerkileg kona. Kona sem fæðist í sveit í Dala- sýslu snemma á seinustu öld, flyst með foreldrum sínum til Reykjavíkur á unglingsaldri á krepputímum og tengist borginni strax sem sinni. Flyst svo tíma- bundið til Los Angeles í Banda- ríkjunum ásamt stoppi í New York. Þessi ár ömmu í Ameríku á fimmta áratug seinustu aldar urðu heillandi og ljóslifandi þegar amma sagði frá þessum tíma, tíma þegar ung kona siglir til Bandaríkjanna á algjörlega nýjar og framandi slóðir og kemur til baka með reynslu og þekkingu sem lifðu með henni fram á sein- ustu ár. Amma átti fjölbreyttan starfs- feril, allt frá því að kenna á saumavélar og sníðagerð yfir í að taka viðtöl og skrifa greinar í Lesbók Morgunblaðsins. Fyrir utan þetta var amma mikil ljóða- kona, hagmælt og hagorð eins og sést svo vel á ljóðunum hennar sem hún orti allt frá bernsku. Mörg af ljóðunum fjalla um gamla tíma, tímana sem voru ömmu svo hugleiknir og birtust á svo varfærinn og fallegan hátt í ljóðunum hennar. Lífshlaup ömmu var litríkt og fróðlegt og mikið er ég þakklát fyrir að hafa fengið að skyggnast svo vel inn í líf ömmu sem gaf mér hlutdeild í minningum sínum og lífshlaupi. Amma færði mér áhuga á gömlum tíma og því sem liðið er og kenndi mér að meta reynslu og frásagnir liðinna tíma sem fylgja mér ætíð og fyrir það er ég mikið þakklát. Það er svo margt sem hægt væri að minnast á í sam- bandi við ömmu, bæði það sem einkenndi hana sem einstakling og sem ömmu. Frásagnir, ljóð og skemmtileg samtöl ásamt hlýju og ástríku viðmóti voru það sem einkenndi ömmu og hennar nær- veru. Minningin um sniðuga, skemmtilega og yndislega mann- eskju og þann mannvin sem amma var verður ljóslifandi. Ég er fegin að hafa fengið tækifæri til að óska þér góðrar ferðar, amma mín, rétt áður en þú lagðir af stað í hið stórmerkilega ferðalag þitt á föstudaginn var. Ferðalagið sem við vorum búnar að ræða mikið í gegnum árin og hvernig við skynjuðum það sem var, það sem er og það sem koma skal. Góða ferð, amma mín, og takk fyrir allt sem þú kenndir mér, stuðning þinn sem var ómet- anlegur og vinskapinn sem ég sakna mikið en geymi í hjarta mínu. Við hugsumst á, amma mín, eins og þú sagðir svo oft. Þín Jóhanna. Fallin er frá elskuleg amma mín Þuríður Jóna Árnadóttir, hún lést á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík á 92. aldursári. Ljúfar og góðar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til Þuríðar ömmu og Ein- ars afa eða ömmu og afa í Mávó eins og við sögðum alltaf. Ég man vel eftir tilhlökkuninni sem fylgdi því að hitta ömmu og afa. Hlýjan og kærleikurinn sem þau sýndu var mikill og vildu þau allt fyrir okkur barnabörnin gera. Mér eru minnisstæðir bíltúrar á fína Bensanum hans afa þar sem kom- ið var við í ísbúðinni, ferðalögin í Landsveitina, allar sögurnar, samræðurnar, himneski matur- inn og kökurnar hennar ömmu og margt margt fleira. Amma fylgdist vel með öllu því sem var að gerast í þjóðfélaginu, las mikið og var fróðleiksfús. Einnig fylgdist hún alltaf vel með lífi og starfi sinna nánustu, gaf sér tíma til að hlusta og vildi vita að öllum liði vel. Amma átti oft löng og góð samtöl við börnin mín þrjú, Einar Örn, Ingibjörgu og Kristján, sem öll sakna lang- ömmu sinnar. Það var sérstaklega gott að leita til hennar ömmu. Hún var réttsýn og hafði djúpan skilning á lífinu og tilverunni auk þess sem hún bjó yfir góðri íslensku- og tungumálakunnáttu. Oft og iðu- lega fékk ég aðstoð hjá ömmu við enskuverkefnin mín í grunnskóla, auk þess sem amma veitti mér dýrmæta aðstoð við ritgerðar- smíð á fyrsta árinu mínu í Há- skóla Íslands. Á námsárum mínum bjó ég um tíma hjá ömmu í Mávó og naut ég þá hennar ómældu umhyggju og hlýju. Við amma gátum oft spjall- að langt fram á nótt um allt milli himins og jarðar, hvort sem það var um skólamál, strákamál eða framtíðarplön, alltaf var amma tilbúin að hlusta og sýna áhuga. Elsku amma, söknuðurinn er mikill nú þegar komið er að kveðjustund, en minningin um yndislega ömmu mun lifa með okkur um ókomna tíð. Þín Sólveig Hrönn. Mér bárust þau döpru tíðindi um helgina að hún Þuríður hefði látist eftir skammvinn veikindi. Ég var nýkominn á unglingsár er Gylfi bróðir minn trúlofaðist og stuttu seinna giftist Steinunni dóttur Þuríðar. Það skapaðist strax góður vinskapur og tengsl milli foreldra minna og Þuríðar og Einars, stjúpföður Steinunn- ar, sem entist þar til þau eitt af öðru kvöddu þennan heim. Þess- ar fjölskyldur voru afskaplega samstilltar og tel ég að Þuríður með sinni alúðlegu framkomu í allra garð hafi átt mikinn þátt í að svo varð. Ég á margar minningar um fjölskyldufundi hvort sam það voru samverustundir í sumar- bústaðnum í Skorradal, í for- eldrahúsum mínum á Dunhagan- um, heima hjá Gylfa og Steinunni eða á heimili Þuríðar og Einars. Á þessum árstíma vakna óneitan- lega minningar um jól á Íslandi og eru mér ófá jóla- og áramóta- boðin minnisstæð, þó sérstaklega jólin 2002, en það voru síðustu jól er ég dvaldi heima hjá bróður mínum og mágkonu. Þá hafði gestunum tekið að fækka þar sem báðir foreldrar okkar Gylfa voru þá fallnir frá og Þuríður hafði misst sinn mann þó nokkrum ár- um áður. Engu að síður var and- inn sá sami og við nutum þess að vera saman. Það var alltaf gott að sækja þau Þuríði og Einar heim, enda bæði gestrisin með afbrigðum auk þeirrar hlýju og kærleika sem stafaði frá þeim báðum. Nokkuð sem lýsti sér vel í þeirri umhyggju sem þau sýndu móður minni eftir að hún var orðin ekkja og ég hafði lagt land undir fót og hafið nám hér á Bretlandi. Þur- íður var einnig tíður gestur móð- ur minnar eftir að hún lagðist inn á hjúkrunarheimili og Þuríður stytti henni oft dægur allt fram á hinstu stund. Þuríður var vel máli farin og fékkst á tímabili við blaðaskrif, sem oft voru byggð á viðtölum er hún átti við fólk á landsbyggðinni. Hún hafði heilbrigða forvitni og bjó yfir víðsýni, auk þess sem hún hafði áhuga á mörgum málefnum. Þuríður var dygg við að rækta tengsl við vini og ættingja og í því sambandi má geta að hún hafði ætíð náið og gott samband við Gunnar son Einars af fyrra hjónabandi og hans fjölskyldu sem hún tók sem sína eigin. Eftir að móðir mín féll frá átti Þuríður það til að slá á þráðinn til mín hér á Bretlandi til að athuga hvernig högum mínum sætti og fræðast um þau verkefni sem ég var að fást við. Mér finnst það mjög lýs- andi dæmi um þá umhyggju sem hún bar fyrir öðrum. Ættingjar og vinir Þuríðar eru of margir til að telja upp hér, en hugur minn dvelur með ykkur svo mörgum sem ég hef haft ánægju af að kynnast. Ég kveð þig Þuríður með kærri þökk fyrir góða viðkynn- ingu og góðar minningar. Pétur J. Geirsson. Elsku Þuríður mín, takk fyrir okkar elskulegu og yndislegu ár saman, þó að þau hafi ekki verið mörg, næstum tugur. Okkar fyrstu kynni voru einlæg og vina- leg. Þú hrein og bein, svo ótrú- lega víðsýn og fróð. Ég minnist alltaf hversu nákvæm og ákveðin þú varst í öllu, stjórnaðir þessari yndislegu litlu og góðu fjölskyldu. Þú varst leiðtogi þeirra. Mér þótti alltaf gaman að heyra þig tala um þinn fallega og yndislega Einar. Glæsileg baráttukona varstu og ert enn í okkar huga. Ég var boð- inn velkominn í fjölskylduna og þakka þér fyrir góð orð í minn garð. Að gefa þér eitthvað var alltaf mjög gaman, sérstaklega ef þú vissir að ég hefði búið það til, hógværð þín er ógleymanleg og minnisstæð. Það var gaman að ræða við þig um heima og geima, þrjósk gastu verið eins og þinn/ okkar Árni (já brostu bara) takk. Að lokum, elsku Þuríður mín, þessi fáu og stuttu orð mín geyma margt gott og skemmtilegt í minningu minni um þig. Sérstak- lega mörg símtöl okkar: „Er hann Addi minn heima? Hvað eruð þið að bardúsa núna? Eru margar íbúðir í bígerð?“ Þú hafðir áhuga á öllu sem við vorum að gera. Takk og aftur takk fyrir allt og allt. Ég veit að þér líður núna vel hjá Einari þínum. Njóttu vel, minning þín lifir. Þinn Ómar. Þuríður Jóna Árnadóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, JÓHANNS EINVARÐSSONAR, Heiðargarði 29, Keflavík. Við óskum ykkur öllum friðsældar um jólin. Guðný Gunnarsdóttir og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu hlýhug og samúð við andlát og útför MARÍU RAGNARSDÓTTUR saumakonu frá Akureyri. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri fyrir góða umönnun. Ættingjar og vinir hinnar látnu. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og lang- afa, ÁRMANNS J. LÁRUSSONAR, Digranesvegi 20, Kópavogi, sem jarðsunginn var 26. nóvember frá fríkirkjunni Kefas. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki B-7 á Landspítalanum fyrir hlýja og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Björg R. Árnadóttir, Helga R. Ármannsdóttir, Páll Eyvindsson, Sverrir Gaukur Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STURLA JÓNSSON, Tungusíðu 14, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 18. desember. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 4. janúar kl. 13.30. Anna Soffía Þorsteinsdóttir, Drífa Björk Sturludóttir, Steingrímur Benediktsson, Atli Þór Sturluson, Júlíanna Þöll og Benedikt Sturla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.