Morgunblaðið - 21.12.2012, Side 34

Morgunblaðið - 21.12.2012, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 ✝ Garðar Hall-dórsson fædd- ist í Reykjavík 6. nóvember 1941. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 16. des- ember 2012. Foreldrar Garð- ars voru Halldór Ágúst Benedikts- son, f. 23. sept- ember 1911 í Bol- ungarvík, d. 13. febrúar 1989 og Þórunn Bjarney Garðarsdóttir, f. 3. september 1918 í Svarf- aðardal, d. 18. janúar 2008. Systkini Garðars eru Kristín Jóna, f. 3. mars 1947, d. 22. febrúar 2011, og Anna Þórunn, f. 9. september 1951, maki Ágúst Þorsteinsson. Systkini sammæðra, Helgi Þór Helga- son, f. 4. janúar 1956, maki Guð- björg Gylfadóttir, og Hanna Ragnheiður Helgadóttir, f. 22. febrúar 1961, maki Steffen Sim- bold. Hinn 6. nóvember 1969 giftist Garðar eftirlifandi eiginkonu sinni Ingu Jónsdóttur frá Herr- reit, Butralda. Garðar og Inga hófu búskap sinn á Grenimel en árið 1974 fluttu þau sig svo í Furugerði þar sem þau hafa bú- ið síðan. Garðar lauk gagn- fræðaprófi í Reykjavík. Hann varð búfræðingur frá Hvann- eyri árið 1960 og sinnti bústörf- um í Lundarreykjadal til ársins 1964. Garðar hóf störf í Lög- reglunni í Reykjavík árið 1965 og útskrifaðist úr Lögregluskól- anum árið 1969. Garðar starfaði sem aðstoðarvarðstjóri frá 1977 til 1981. Þá flutti hann sig yfir til Seðlabanka Íslands þar sem hann starfaði sem bílstjóri þar til hann lét af störfum vegna aldurs árið 2011. Garðar sinnti bæði kennslu á bifhjól og bif- reiðar um langt skeið. Garðar var meðal stofnenda Íþrótta- félags lögreglumanna og var liðtækur í skotfimi og hand- bolta. Hann var lengi félagi í Lögreglukórnum, einnig söng hann með Karlakórnum Þröst- um um nokkurt skeið en frá árinu 2005 hefur hann verið fé- lagi í Karlakór Kjalnesinga. Garðar var einnig í KK- kvartettinum með félögum sín- um úr kórnum. Hestamennska skipaði stóran sess í lífi Garðars og þá sér í lagi hestaferðir. Útför Garðars verður gerð frá Langholtskirkju í dag, 21. desember 2012, kl. 13. íðarhóli, f. 3. ágúst 1939. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson og Rósa Runólfsdóttir. Börn Garðars og Ingu eru: 1) Jón Krist- inn, f. 1. mars 1971, unnusta hans er Berglind Sig- urþórsdóttir, f. 29. maí 1980. Dóttir þeirra er Júlía Mar- ín, f. 13. mars 2010. Dætur Jóns eru Gabríela Birna, f. 23. októ- ber 1995, móðir Anna María Jónsdóttir og Edda Sigrún, f. 17. apríl 2003, móðir Sigrún Gréta Helgadóttir. Sonur Berg- lindar er Anton Örn Davíðsson, f. 10. október 2000. 2) Þórunn Bjarney, f. 10. febrúar 1972. Börn hennar eru Garðar Ingi, f. 20. desember 1997, og Ágústa Huld, f. 6. febrúar 2000, faðir þeirra er Gunnar Andrésson. Garðar ólst upp í Reykjavík. Hann fór ungur í sveit að Hóli í Lundarreykjadal og tengdist þeirri sveit órjúfanlegum bönd- um. Þar eiga þau hjónin sælu- Faðir minn er fallinn frá, langt fyrir aldur fram að mér finnst. Hann var vel á sig kom- inn, hraustur og oftast með glettnislegt bros á vörum. Pabbi var að undirbúa komu hestanna þegar hjartað hætti að slá. Þrátt fyrir að útlitið væri svart þá lifði hann af og barðist fyrir lífi sínu. En áfallið varð honum um megn og hann lést síðastliðinn sunnu- dag. Ég hugsa til föður míns með stolti og hlýju. Hann var einstaklega greiðvikinn, hlýr og áreiðanlegur. Hann var mér oft innan handar og það var gott að geta leitað til hans með hin ýmsu mál. Hann aflaði sér upp- lýsinga og leiðbeindi eftir fremsta megni en aldrei tók hann fram fyrir hendurnar á mér. Pabbi hafði mikla ánægju af barnabörnunum og vildi hag þeirra sem bestan. Hann söng með þeim og var ávallt reiðubú- inn að leika við þau. Umtöluð var framganga hans í fótbolta- leik á liðnu sumri þar sem hann varði snilldarlega með því að fara í splitt. Pabbi lagði sig ávallt allan fram, sama hvað hann tók sér fyrir hendur. Það var mjög ánægjulegt að fylgjast með pabba í áhugamálunum, hestamennskunni og söngnum. Þar naut hann sín vel og eign- aðist marga góða vini. Ég var ákaflega stolt af pabba þegar hann söng með KK-kvartettin- um í Lágafellskirkju hinn 14. nóvember síðastliðinn og hafði orð fyrir þeim félögum. Það er dýrmæt minning. Við fjölskyldan eigum hafsjó af minningum um pabba sem munu ylja okkur um ókomna tíð. Með djúpri virðingu og miklu þakklæti kveð ég föður minn, blessuð sé minning hans. Þórunn Bjarney. Kveðja til föður, tengdaföður og afa Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (V. Briem) Jón Kristinn og Berglind, Þórunn Bjarney, Gabríela Birna, Garðar Ingi, Ágústa Huld, Anton Örn, Edda Sigrún og Júlía Marín. Mig langar í fáum orðum minnast Garðars Halldórssonar, fyrrverandi tengdaföður míns. Ég kynntist dóttur þinni Þór- unni árið 1989 og áttum við frá- bær 20 ár saman og eignuðumst tvö yndisleg börn. Það er svo eftirminnilegt þeg- ar þið komuð á Landspítalann ásamt foreldrum mínum kvöldið þegar við Þórunn eignuðumst Garðar Inga. Þetta var mikil gleðistund í lífi okkar en þú hafð- ir þó á orði að þú, lögreglumað- urinn sjálfur, hefðir aldrei verið keyrður á eins miklum hraða og þetta kvöld og skaust augum þín- um glettnislega yfir á föður minn. Það var mikil stund þegar þú hélst á Garðari Inga, sem var skírður í höfuðið á þér og Ingu. Yndislegt var að sjá hversu stolt- ur þú varst að eignast nafna og ég man afar vel það sem þú hvísl- aðir í eyrað á mér að lokinni at- höfn. Þú hugsaðir afskaplega vel um barnabörnin þín og ekki bara þau heldur öll börn sem voru í kringum þig og Ingu. Það var með ólíkindum hvað þú áttir auð- velt með að ná til barna og oft mikil eftirsókn litla fólksins að fá að vera hjá þér. Það var ekkert skrýtið því allir fundu hversu einstakt ljúfmenni þú varst. Það var aðdáunarvert hversu óeigingjarn og ötull þú varst í að bjóða fram hjálp þína sama hvað það var. Það virtist reyndar eins og þú gætir allt og maður leit oft út eins og kjáni þér við hlið við hin ýmsu verkefni á heimilinu. Við gerðum svo margt saman áður en leiðir okkar Þórunnar skildu. Eftirminnilegust af svo mörgum ferðum okkar var lík- lega ferð til Toscana árið 1999 þar sem við náðum að skoða svo margt og upplifa svo mikið sam- an. Þér tókst reyndar líka að brenna þig í sólinni en jógúrtið gerði sitt gagn. Þú fylgdist alltaf náið með mér í boltanum og þótti mér afar vænt um það enda gátum við endalaust spjallað saman um þau mál. Þú hafðir leikið í marki í handbolta í gamla daga með HK og hafðir greinilega mikinn skiln- ing á þessari íþrótt. Mér fannst leiðinlegt að geta ekki tekið þátt með þér og fjölskyldunni í hesta- mennskunni en hún ásamt söngnum var þitt aðaláhugamál. Ég hugsaði það oft er ég sá hvað fólki leið vel í kringum þig að það væri vart til betri fyrir- mynd. Það er mikill sjónarsviptir að þér og söknuðurinn mikill hjá afabörnum þínum. Hugur minn er hjá ykkur, elsku fjölskylda. Guð verði með ykkur á þessum erfiðu tímum. Gunnar Andrésson. Minn kæri frændi Garðar Halldórsson er fallinn frá snögg- lega og allt of fljótt. Hann var elsta barnabarn afa okkar og ömmu Garðars Jónssonar og Jónu Björnsdóttur. Við höfum borið sama nafn, skírðir í höfuðið á afa okkar og báðir vorum við kallaðir Gæi eins og afi. Gæi frændi var 10 árum eldri en ég og var oft nefndur Gæi stóri og ég þá Gæi litli. Ég bar lotningu fyrir þessum stóra og öfluga frænda mínum og kynntist honum nánar þegar hann kenndi mér að aka bíl, því hann var ökukennari. Þá var ég ungur menntskælingur, en Gæi frændi lögregluþjónn. Í einum ökutímanum hjá honum hóf hann skyndilega að ræða við mig um pólitíska róttækni menntskælinga og mótmælaað- gerðir skólafólks, sem þá voru nokkuð algengar á árunum eftir 1968. Ég brást rösklega við og rökræddi við hann af krafti á meðan hann beindi mér um götur borgarinnar. Í lok ökutímans sagði hann brosandi að hann hefði viljað prófa hvort ég héldi athygli varðandi umferðina og akstur bifreiðarinnar þó að hann léti reyna á pólitískar rökræður. Þannig var frændi minn alla tíð eins og ég þekkti hann, rökfast- ur, traustur reglusamur og yf- irvegaður. Hann byggði fyrir fjölskyldu sína sumarhús í sælureit í Lund- arreykjadal. Þar hélt hann ætt- armót, þar sem mæður okkar og systur þeirra komu saman með fjölskyldur sínar. Þar kom Gæi frændi með hesta og leyfði yngra fólkinu að reyna sig á hestbaki og hugaði þá vel að góðri stemningu og um leið öryggi allra. Hann var frændrækinn og fylgdist vel með líðan síns fólks. Hann skemmti sér greinilega vel þegar hann fór með móður sína og fjórar systur hennar akandi norður til Akur- eyrar. Hann hló dátt þegar fjörug ferðasagan var sögð. Garðar hafði margt fyrir stafni, var virkur í félagsstarfi og söng í kórum. Hann var stoltur af fjölskyldu sinni og er fráfall hans mikill missir fyrir hans nánustu. Hugur okkar er hjá Ingu, Jóni Kristni og Þórunni Bjarneyju og fjöl- skyldum þeirra. Ég kveð með söknuði ljúfan frænda. Hann var okkur sem yngri erum góð fyr- irmynd. Garðar Mýrdal. Gæi frændi eða Gæi stóri, eins og við kölluðum hann gjarnan var elstur okkar frændsystkin- anna. Við vorum gáskafullur hóp- ur systrabarna og samgangur náinn, ekki síst í kringum heimili Garðars afa og Jónu ömmu á Vesturgötunni og seinna í Skip- holtinu. Við litum upp til Gæa enda var hann talsvert eldri en við hin. Hann var stór og sterkur, en traustur, ljúfur og umhyggju- samur og passaði vel upp á litlu frændur sína. Hann var okkur líka frábær fyrirmynd alla tíð. Hann var mikill íþróttamaður. Gat hlaupið þindarlaust og spil- aði handbolta með Fram. Hann hafði líka góða söngrödd og var liðtækur í kórum. Hann fékk snemma áhuga á hestamennsku, umgekkst hesta sína af nær- gætni og naut útiverunnar sem því fylgdi. Ég lærði undir bílpróf hjá Gæa og kynntist þá betur ná- kvæmni hans og snyrtimennsku. Öryggi og tillitssemi var í fyr- irrúmi við aksturinn. Þessir eig- inleikar nutu sín vel í störfum hans hjá lögreglunni og hann var flottur þegar hann sveif um göt- urnar sem foringi vélhjólasveitar lögreglunnar. Við frændsystkin- in skildum vel hvers vegna seðla- bankastjórinn treysti honum best til að flytja peningasending- ar um landið. Best var þó að hitta Gæa frænda á góðri stund í fjöl- skylduboðum. Þar nutu eiginleik- ar hans sín vel, traust, kímni og umhyggja. Það var gott að ræða við hann og alltaf stutt í bros og gamansemi. Hann var áhuga- samur um lífið og tilveruna, eink- um um hagi fjölskyldunnar okk- ar. Ég mun sakna GæFa frænda míns og sendi samúðarkveðjur til Ingu, Þórunnar Bjarneyjar, Jóns Kristins og fjölskyldu þeirra. Sigurjón Mýrdal. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Þessar ljóðlínur eiga vel við á kveðjustund móðurbróður míns Garðars Halldórssonar enda hef ég margs að minnast af samfylgd okkar og á honum ótal margt að þakka. Gæi frændi var í mínum huga ímynd hins trausta og trygga sem ekkert fékk haggað. Þétt handabandið þegar hann heilsaði og djúp röddin undirstrikuðu hversu gegnheill hann var. Hann var reglusamur, rammur að afli og einstaklega hraustur. Gæi hafði ákveðnar skoðanir og gat verið fastur fyrir en hafði jafn- framt ríkan húmor. Hann hafði gaman af því að gera grín og var oft virkilega gaman að vera í ná- vist hans. Gæi var bóngóður og greiðvikinn, auk þess að vera mjög barngóður. Naut ég þess í ríkum mæli og síðar börnin mín þegar þau voru um árabil í pöss- un hjá Ingu í Furugerðinu. Í veikindum frænda míns síðustu vikur og við andlát hans hafa ljóðlínur úr kvæðinu Á fætur eft- ir Grím Thomsen sótt fast á huga minn enda var Gæi þéttur á velli og þéttur í lund, þrautgóður á raunastund. Að lokum þakka ég frænda mínum væntumþykju hans, tryggð og greiðvikni í minn garð og fjölskyldu minnar. Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir. Upp á síðkastið hef ég tekið mér göngur um Kleppsholtið. Á leið minni hef ég gengið framhjá húsunum í holtinu. Á hugann hafa leitað minningar um gamla vini sem ég eignaðist þar. Einn þeirra var Garðar Halldórsson. Ekki hvarflaði að mér að svo skjótt bærust mér fregnir af andláti Garðars. Garðar hlýtur að verða allra manna elstur hugsaði ég alltaf, fullur lífsorku alla tíð og hagaði lífi sínu skyn- samlega. Ég fann fljótt í honum traust og vissi alltaf hvar ég hafði hann, fann að það var gott að eiga hann að sem félaga. Það sem hann vildi fást við hafði samhljóm við skilaboðin sem ég fékk frá mínu heimili að halda mig frá öllu óhollu. Með því að halda sig með þeim sem völdu heilbrigðar lífsvenjur væri leiðin til velfarnaðar frekar vel vörðuð. Það fylgdi því ákveðinn stimpill að segja: Ég er með Garðari. Af því þurfti ekki að hafa neinar áhyggjur. Við urðum nánir vinir, allt til þess að við vorum báðir orðnir fjölskyldumenn. Garðar fór í sveit á sumrin. Það voru vonbrigði að tapa félaga sínum í sveitina. Hann fór að Hóli og Hóll var í Lundarreykjadal. Þegar hann kom aftur á haustin sagði hann mér ævintýrasögur. Svo var það um helgi 1958 að Garðar sagði mér að koma með rútunni yfir Uxahryggi og heim- sækja sig. Sagði að ég væri vel- kominn. Ég vissi varla hvað hann var að tala um en þótti tillagan spennandi. Eftir fyrstu heimsókn átti ég líka þessa sveit. Og nú átt- um við saman áhugamál sem sameinaði okkur síðan. Heimilið þar og heimilin og mannlífið í dalnum með öllum sínum ótrú- legu litbrigðum og fjölbreytni. Í dalinn var ekki komin ljósapera heldur logaði á olíuluktum og kertum og samskipti voru um sveitasímann. Við dáðum þennan einfalda lífsmáta, að heimsækja fólkið, hlusta á það, taka þátt í amstri þess. Á milli fórum við til veiða í ám og vötnum. Fórum gangandi og ríðandi og ósjaldan með byssu um öxl. Þetta var eins og að ganga saman í skóla þegar ungir menn eru móttækilegastir. Þetta átti eftir að hafa áhrif á lífs- göngu beggja. Við ferðuðumst saman um byggðir og óbyggðir. Nokkrar ferðir fórum við til Halldórs föð- ur hans og Bensa föðurbróður hans. Þá var amma Garðars á lífi og dekraði okkur. Þetta fólk sá til þess að við nytum daganna okkar við Djúpið sem best. Enda urðu þeir eftirminnilegir ævi- langt. Þótt við síðar hittumst ekki á hverjum degi og langt yrði stundum á milli samfunda fann ég alltaf strenginn sem á milli okkar var. Til þess þurftum við ekki að hittast daglega. Mér þótti Garðar traustur og vinfast- ur. Með tímanum skildi leiðir og við fórum að fást við nýja hluti. Ég gerðist þjónn kirkjunnar en hann lögregluþjónn. Alltaf hafði ég af honum spurnir og það gladdi mig að þessi gamli æsku- vinur kynnti sig vel og hlaut alls staðar lof. Það kom mér aldrei á óvart því hann var samkvæmur sjálfum sér allt til enda. Honum mátti treysta. Að leiðarlokum vil ég þakka Garðari fyrir sam- fylgdina, bið honum, Ingu konu hans og börnunum blessunar. Ólafur Jens Sigurðsson. Garðar vann í Seðlabankanum í um þrjátíu ár sem bifreiðastjóri og þúsundþjalasmiður. Ég kynntist Garðari töluvert áður en ég hélt til Basel á árinu 2004. Þá skynjaði ég kraft hans og áreið- anleika og heyrði af góðu orð- spori hans í bankanum. Hann var alltaf að. Hann var yfirleitt glað- ur og smitaði út frá sér. En kynnin urðu auðvitað mun nánari eftir að ég kom til baka á árinu 2009 og hann keyrði mig, og stundum okkur Elsu, við marg- vísleg tækifæri. Þá kynntist ég af eigin raun hversu góður Garðar var í sínu starfi. Hann virtist þekkja annan hvern lögreglu- mann, sem stundum greiddi okk- ur för. Og þegar við lentum við hliðina á ráðherrabílum virtist hann þekkja bílstjórana þar líka. Hann var viðræðugóður, fróður og skemmtilegur en kunni líka á þögnina þegar á því þurfti að halda. Þegar Garðar fór á eftirlaun áttu flestir von á því að fram- undan væru mörg ár þar sem hann gæti sinnt hugðarefnum sínum. Hann var hraustur og hafði orð á sér fyrir að verða nán- ast aldrei veikur. Hugðarefnin voru líka mörg og hann fór í þau af krafti. En margt fer öðruvísi en ætlað er og nú er hann allur. Ég kveð mikinn höfðingja og við Elsa sendum eftirlifandi eigin- konu og dóttur og syni okkar samúðarkveðjur. Már Guðmundsson. Óvænt er fallinn frá góður og traustur samstarfsmaður til margra ára. Þegar ég hóf störf í Seðlabankanum 1991 var þar fyr- ir margt góðra manna. Einn þeirra var Garðar Halldórsson, en hann starfaði sem bifreiða- stjóri í bankanum og sinnti auk þess störfum í safnadeild bank- ans. Garðar hafði komið úr lög- reglunni í bankann enda ein- kenndi reglufesta og agi öll hans störf. Hann var samviskusamur með afbrigðum, stundvís svo af bar og árum saman hafði hann þann starfa að flytja peninga- seðla í peningageymslur Seðla- bankans út um allt land. Það sýndi best það traust sem hann naut hjá sínu samstarfsfólki. Garðar var mikill útivistar- og náttúrulífsmaður. Hann átti hesta og sinnti þeim fram í and- látið, var góður tamningamaður og hafði yndi af útreiðum í ís- lenskri náttúru. Hann gekk og til rjúpna hér áður fyrr og var feng- sæll. Í nokkur skipti færði hann okkur Sonju rjúpur fyrir jólin, snaraðist þá inn í eldhús, ham- fletti þær og gekk frá þeim til eldunar. Það voru góðar og eft- irminnilegar stundir. Garðar var söngmaður góður og naut þess að taka þátt í kór- starfi. Hann var í lögreglukórn- um um árabil og síðar í Karlakór Kjalnesinga. Hann hafði mikið yndi af því að syngja. Garðar var mikið hraustmenni og lét aldrei illviðri aftra sér frá því að komast á áfangastað. Í nokkur skipti var ég með honum í bíl í vitlausu veðri, snjó og blindhríð. Dáðist ég að harðfylgi hans og hikaði hann ekki við að snarast út og moka snjó ef skafl- ar hömluðu för. Fljótlega eftir kynni okkar setti hann skóflu í bílinn hjá mér og sagði að slíkt verkfæri ætti ég alltaf að hafa í bílnum. Því ráði hef ég fylgt síð- an. Garðar Halldórsson var ein- hver traustasti og áreiðanlegasti maður sem ég hef kynnst. Hann varð góður vinur okkar Sonju og við sendum Ingu og allri fjöl- skyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Birgir Ísl. Gunnarsson. Ef þú myndir velja þér lið til að vinna að erfiðu verki væri Garðar Halldórsson með þeim fyrstu ef ekki sá fyrsti sem þú vildir hafa í þínu liði. Þannig fór- ust einum starfsmanni Seðla- Garðar Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.