Morgunblaðið - 21.12.2012, Side 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Heimsendaspár koma ekki í veg fyrir að Diljá Mist Ein-arsdóttir haldi afmælisdaginn sinn hátíðlegan í faðmi vinaog fjölskyldu í dag. Hún segir umheiminn einungis skynja
að eitthvað stórkostlegt eigi sér stað enda markar afmælisdagur
Diljár jafnan þau skil þar sem skammdegið lætur hægt og bítandi
undan fyrir hækkandi sól en afmælisdag Diljár ber upp á vetr-
arsólstöður í ár. Hún er heimakær athafnakona sem lauk prófi til
lögmannsréttinda í haust og starfar í dag sem lögmaður á stofunni
Lögmál. „Lögfræðin á vel við mig og lögmannsstarfið er skemmti-
legt og krefjandi. Laganámið undirbjó mig vel en lögfræðin er lif-
andi fag og því læri ég alltaf eitthvað nýtt í mínu starfi,“ segir Diljá
sem útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands vorið 2011.
Hún er fædd og uppalin í Grafarvogi þar sem hún segist taka sín
léttustu spor og þótt hún sé nú flutt úr hverfinu verður stefnan tekin
þangað aftur innan skamms. „Það fara allir alltaf á endanum heim
og ég stefni óðfluga í Grafarvoginn, mína heimabyggð, aftur enda
mikill Grafarvogsbúi í mér.“
Diljá er trúlofuð hagfræðingnum Róberti Benedikt Róbertssyni
og þau stefna á að gifta sig í júlí árið 2014. Þá segist Diljá rækta sál-
ina jafnt sem líkama en með hugarrækt getum við tamið hvatir okk-
ar og bætt líkama og sál. Góð bók finnst Diljá gulli betri og hún
hlakkar til að eyða tíma með fjölskyldunni yfir jól og áramót.
Diljá Mist Einarsdóttir er 25 ára
Lögmaðurinn Diljá Mist með unnusta sínum Róberti Benedikt hag-
fræðingi og fyrrverandi blaðamanni á góðri stundu.
Ung athafnakona
og bókaormur
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Jón Helgi
Hálfdan-
arson í
Hveragerði,
er sjötíu og
níu ára í dag,
21. desember.
Hann verður
að heiman og
ver deginum í
faðmi fjöl-
skyldunnar.
Árnað heilla
79 ára
Akranes Vigdís Bríet fæddist 1. mars
kl. 18.28. Hún vó 4.070 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru Sigurrós
Harpa Sigurðardóttir og Ingibjörn
Þórarinn Jónsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Egill fæddist 6. mars kl.
9.16. Hann vó 3.515 g og var 50 cm
langur. Foreldrar hans eru Auður Sig-
urðardóttir og Kristján Ragnar Hall-
dórsson.
Á
sdís fæddist í Reykjavík
21.12. 1962 en ólst upp
í Garðabæ. Hún gekk í
Flataskóla og Garða-
skóla, lauk stúdents-
prófi frá FG 1983, lauk B.ed. gráðu
í uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ
1989, diplómagráðu í hagnýtri fjöl-
miðlun 1991 og lauk MA-gráðu í
fjölmiðlafræði með áherslu á
skemmtimennt frá Ohio University
1994.
Nám í heilsu og hamingju
Þá hefur hún lagt stund á nám í
jákvæðri sálfræði við Pennsylvania
State University, núvitund við
Center for Mindfulness Research
Ásdís Olsen, aðjunkt við HÍ – 50 ára
Fjölskyldan Ásdís og Karl Ágúst, ásamt dætrunum, tengdasyninum og barnabörnunum.
Ásdís og hamingjan,
hugleiðsla og heilbrigði
Á frumsýningu Ásdís, ásamt Auði, systur sinni og foreldrum sínum, Alfred og
Halldóru , á frumsýningu heimildarkvikmyndar um Loftleiðir, vorið 2009.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
Við óskum Kattholti
til hamingju með nýja vefinn
Vantar þig heimasíðu?
www.tonaflod.is - Sími 553 0401
www.kattholt.is