Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 42

Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er alltaf gaman að skiptast á skoðunum við fólk í öðru starfi. Misskilning, sem upp er kominn, má rekja til þess að deiluaðilar hafa ekki yfirsýn yfir málið. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að ganga frá smáatriðum sem tengjast skatta- og tryggingamálum. Líf þitt gæti ekki verið betra en nú. Njóttu þess í botn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þig langar til þess að breyta til en vantar herslumuninn upp á að drífa hlutina í gegn. Mundu að sýna þeim örlæti sem lögðu þér lið þegar þú þurftir á því að halda. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft ekki að hlaupa til þótt fólkið í kringum þig sé með einhver látalæti. Brátt mun allt falla í ljúfa löð í stórfjölskyldunni þér til mikils léttis. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú er tilvalið að fást við fasteignamál eða hluti sem tengjast framkvæmdum á heimilinu. Ef þú gengur fram af ættingjunum munu þeir svara þér fullum hálsi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst eins og þú eigir í togstreitu við ákveðna persónu. Heimspekikenningar og góðar hugmyndir hafa mikil áhrif á þig í dag. Láttu heilsuna ganga fyrir öllu öðru. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt sjálfsagt sé að vera gagnrýninn á sjálfan sig máttu ekki fara út í öfgar á því sviði frekar en öðrum. Sættu þig við hvernig aðrir skemmta sér og lyftu þér upp líka. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Talaðu varlega. Hvers vegna þykir þér nauðsynlegt að gera allt fyrir jól? Veltu því fyrir þér, sérstaklega ef eitthvað virðist heltaka þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú heldur þig auðvitað innan þess ramma, sem yfirmenn þínir hafa sett þér. Jákvæð áhrif vinar ýfa upp frelsisþrána. 22. des. - 19. janúar Steingeit Eyddu tímanum með fólki sem hefur jákvæð og hvetjandi áhrif á þig og segðu skilið við annað. Hentu, gefðu og seldu það sem hægt er. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er alltaf auðveldara að sjá hvað fór úrskeiðis eftir að allt er um garð gengið. Sláðu á létta strengi til að laga and- rúmsloftið heima fyrir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er sjálfsagt að hjálpa öðrum þegar maður er í aðstöðu til þess. Líttu svo á að allir séu að reyna að gera sitt besta með þeim verkfærum sem þeir hafa yfir að ráða. Pétur Stefánsson segir trega-þrungnu jólalögin alveg við það að drepa sig úr leiðindum „með ástarívafi sem glymja í útvarpinu þessa dagana. Grátklökkir söngv- arar stynja textunum uppúr sér með ekkasogum. Almáttugur. Hvar er jólagleðin?“ Og hann yrkir: Lífsfjör fer á lægsta stig, leiði og drungi eflast mjög. Tíðum eru að trufla mig tregaþrungin jólalög. Sigmundur Benediktsson lýkur lofsorði á bók Jóns Gissurarsonar, Fjallagróður, sem hefur að geyma ljóð og vísur eftir föður hans Gissur Jónsson, bónda í Valadal á Skörð- um: Blóm af hjalla búandans ber hinn snjalli óður, þíðir allar þrautir manns þessi Fjallagróður. Pétur Pétursson orti heilsu- heilræði á vef Akureyrarbæjar fyr- ir nokkrum árum mánaðarlega í heilt ár. Hver sem tóbaksruddann reykir reynir frelsissviptingu. Hann æðar skemmir, krabba kveikir og kæfir holdsins lyftingu. Viagra ýmsum er til bjargar, sem áður litu ei glaðan dag, en ef þú tekur alltof margar áttu á hættu reiðarslag. Ef þig feita(n) fýsir að forðast kvilla, best mun víst að borða það, sem bragðast illa. Þótt sumir flái feitan gölt og flestöll hafi úti spjót, ég sannfrétt hef, að rörarölt reynist engum heilsubót. Við grillið þar hentar ei galsi né spé og gæta þar hreinlætis átt, einkum ef matbýrðu fiðurfé, framliðið, mengað og hrátt. Þegar hendist hausinn á hrokafullur glanni, dável hjálmur dugir þá drukknum hestamanni. Og hann greip einu sinni til limruformsins. Ef þitt farvatn er illfært og ýfið og ergir þig baslið og kífið, þá veit ég það vízt, sem væntir þig sízt, að hláturinn lengir lífið. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af lífsgleði, jólalögum og heilsuráðum í bundnu máli Í klípu „NÚ ER NÓG KOMIÐ AF ÁÆTLUNUM OG SKIPULAGNINGU! HUNSKASTU ÚT OG DREPTU EITTHVAÐ!“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JAHÁ, TÆKNIN NÚ TIL DAGS! 47 HÆÐIR Á SEX SEKÚNDUM!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... gleðin við að skipuleggja brúðkaup. Boðskort Gesta- listi VIÐ ERUM SKO MEÐ DYRABJÖLLU, EF ÞAÐ HEFUR FARIÐ FRAMHJÁ YKKUR, SKO! ÞÚ FINNUR SKO ALDREI HVAR ÉG FALDI GJAFIRNAR Í ÁR, GRETTIR! JÆJA JÁ? VIÐ SKULUM NÚ SJÁ TIL MEÐ ÞAÐ! VONANDI FINNUR HANN ÞÆR, ÉG MAN EKKI HVAR ÞÆR ERU.Vilhjálmur Hjálmarsson, rithöf-undur og fyrrverandi alþing- ismaður og ráðherra, á Brekku í Mjóafirði er með hressari mönnum og lætur aldurinn ekki þvælast fyrir sér. Hann hefur sent frá sér hverja bókina eftir aðra undanfarna þrjá áratugi og nýverið kom út bókin Glettur og gamanmál, þar sem þessi 98 ára gamli sögumaður fer á kost- um. x x x Í bókinn segir meðal annars af fram-boðsmálum fyrir austan: „Árni Pálsson var tvisvar í kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suður- Múlasýslu, 1931 og 1933, og var þungróið. Mjófirðingar fylgdu allir Sveini [Ólafssyni í Firði, Framsókn- armanni. Innsk. blm.] nema prest- urinn [séra Haraldur Þórarinsson]. Og þegar Árni spurði þennan flokks- bróður sinn hvort ekki hefði nú eitt- hvað aukist fylgi Sjálfstæðisflokksins í Mjóafirði síðan seinast, þá svaraði prestur: „Nei, biddu fyrir þér. Það er frosið fyrir öll skilningarvit á þeim!““ x x x Eftirfarandi saga er líka í bókinni:„Siggi átti heima á Breið- dalsvík. Pabbi hans fór oft suður fyr- ir á og Siggi fékk að fara með. Það var hylur við brúna. Pabbi var með veiðistöng. Hann stoppar á brúnni, kastar og er fyrr en varir kominn með stærðar silung upp á brú. Siggi var heldur ekki iðjulaus og farinn að klifra utan á handriðinu þegar pabbi hans leit um öxl. Skelfingu lostinn gat hann laumast að syni sínum og kippt honum inn yfir handriðið. Og segir nú – með meiru: „Hvað hefðir þú gert, Siggi minn, ef þú hefðir dott- ið í ána?“ Siggi leit brosandi á föður sinn: „Ég hefði bitið á öngulinn, pabbi.““ x x x Og svo var það Magnús bóndi:„Slyngur sölumaður bauð Magnúsi bónda spánnýjan mykju- dreifara á hagstæðu verði. Bónda leist vel á vöru og verð – en átti gaml- an fyrir og hélt að hann myndi duga enn um sinn. Sölumaður herti róð- urinn – enginn færi með peninga sína til himnaríkis! En Magnús svaraði að bragði: „Varla gengi mér betur með dreifarann.““ víkverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn minni á bug né tók frá mér miskunn sína. (Sálmarnir 66:20) Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I linan.is Supreme Deluxe svefnsófi Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16 Extra þykk og góð springdýna Svefnbreidd 140x200 Rúmfatageymsla í sökkli kr. 169.800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.