Morgunblaðið - 21.12.2012, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 21.12.2012, Qupperneq 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 Gálan bbbmn Breiðskífa Júlíusar Guðmundssonar sem kallar sig Gáluna. Geimsteinn gefur út. Júlíus Guðmundsson hefur feng- ist við músík alllengi og á ekki langt að sækja áhuga eða hæfileika. Hann á það til að gera sólóskífur og bregður þá fyrir sig listamanns- nafninu Gálan sem lét fyrst í sér heyra á þeirri frábæru plötu Fyrsta persóna eintölu fyrir fjórtán árum. Á fyrri plötum hefur Júlíus samið flestallt sjálfur, en stöku texti verið eftir aðra eða unninn í samvinnu. Að þessu sinni sækir hann í textasafn föður síns, G. Rúnars Júlíussonar og tileinkar plötuna móður sinni Maríu Baldursdóttur, enda flestir ortir til hennar. Lögin á Júlíus sjálfur og leikur að auki á flest hljóðfæri, syng- ur og stýrir upptökum. Rúnar Júlíusson var laginn texta- smiður og þó lítið fari fyrir stór- brotnum átökum í textum hans rista þeir djúpt þegar grannt er skoðað og víða smekklega orðað: Hvers er að vænta / hvað er að ske? / Rennum við saman / í eilífðarte? Júlíus nær líka að gæða þá frek- ara lífi með fjölbreyttum lögum og hugmyndaríkum útsetningum. Nóg er til að mynda framúrskarandi lag með skemmtilegum drunga sem á vel við textann, Ég mun þarfnast þín er ekki síður vel heppnað. Kannski finnst einhverjum þessi lög hljóma dáldið gamaldags, en réttara að kalla þau klassísk. I Will Die And You Will Die And It Will Be Alright bbbbn Breiðskífa Þóris Georgs Jónssonar. Kimi Records gefur út. Í upphafi þessarar fínu skífu hljómar Þórir Georg eins og hann hafi vaknað upp við vondan draum; áhyggjuleysi æskuáranna að baki og fram- undan dauðans óvissu tími: Ef það er annað líf eftir þetta líf vona ég það sé staður þar sem við fáumst þrifist, segir hann í upphafslaginu. Á plötunni er Þórir reyndar með fleiri liti á spjaldinu en oft áður þeg- ar hann dregur upp sínar svartkrít- armyndir og nú er treginn tempr- aður, góðlátleg depurð. Heyr til að mynda lokalag plötunnar og titillag hennar: Ég dey og þú deyrð og það er í fínu lagi. Álíka má heyra í laginu Afmæli, hreinræktað íslenskt ást- arlag með þeim boðskap að mæta mótlætinu með bros á vör, fagna hverjum degi. Lagasmíðar eru almennt mjög fín- ar, áðurnefnt upphafslag, Thrive, er gott dæmi um það, raddir skemmti- lega notaðar og eins gerir klif- unarkenndur gítar í You Know mik- ið fyrir lagið. Lokalag plötunnar er líka frábært í einfaldleika sínum. Ölduslóð bbbbn Hljómplata Svavars Knúts Krist- inssonar. Dimma gefur út. Útsetningar á Ölduslóð eru til fyr- irmyndar, víða eru hugvitssamleg innskot og skraut sem gæðir lögin lífi. Nefni sem dæmi blástur í upphafslagi þegar ástsjúk básúna stingur sér inn í man- söng. Það þarf þó ekki endilega aukaskraut, eins og heyra má í snyrtilegu kassagítarspili í Sound- tracks. Vert er líka að geta um framlag Makéta Irglóva, því allt sem hún kemur að breytist í snilld. Heyr til að mynda þegar rödd hennar leggst við rödd Savars í Humble Hymn og gerir lagið að sannkölluðum sálmi. Frábært lag. Hápunktur plötunnar finnst mér þó vera lagið Vetrarsól þar sem allt helst í hendur, fínt lag, góður texti, hugvitssamleg útsetning og óaðfinnanlegur flutningur. Text- inn við Spor finnst mér líka vel heppnaður. Það eru ekki flugeldasýningar á Ölduslóð, enginn hamagangur og engin læti; hér er enginn að sýnast og gera sér upp tilfinningar, þetta er allt ekta. Einlægnin sigrar. God’s Lonely Man bbbbm Plata Péturs Þórs Benediktssonar. Hann gefur sjálfur út. Það verður varla annað sagt en að hér sé farið af stað með miklum metnaði, um það vitnar allur umbún- aður þessarar plötu, en ekki síður hátimbruð mús- íkin sem tekur á móti hlustanda þegar í fyrsta lagi, geysiþéttur taktur, strengir, celeste og rafgít- ar hrífa okkur af stað í ferðalag út á ísinn og ofan í djúpið. Tónlistarlega er þessi plata hreint afbragð, lagasmiðar og spila- mennska eru upp á fimm stjörnur. Það er erfiðara að átta sig á text- unum, eða orða má það svo að þeir þurfi meiri yfirlegu. Víða er getið um Guð í textunum og fyrsta lagið greinilega byggt á sköpunarsögunni, en þá þeirri sköpunarsögu þar sem Elohim er í aðalhlutverki, upphafinn ópersónulegur andi. Í næsta lagi, tit- illagi plötunnar, er Guðsímyndin mannlegri, frekar Jahve en Elohim, en þar vitnar Pétur líka í orð Thom- as Wolfe um einmanaleikann – er hér vísað í kalvíníska einsemd sem Max Weber lýsti eða í einmanaleika þess sem segir skilið við samfélagið eins og Travis Bickle í Taxi Driver? Margföld einherjajól Árni Matthíasson arnim@mbl.is Einherjaplötur Þóris Georgs, Péturs Ben, Svavars Knúts og Gálunnar teknar til kosta Í haust kom út hljómplatan Fantasía með 12 lögum eftir Gunnar Ó. Kvar- an en hann syngur lögin ásamt hinni góðkunnu söngkonu Helgu Möller og leikur einnig á harmoniku. Aðrir hljóðfæraleikarar á plötunni eru Þorleifur Gíslason sem leikur á saxó- fón, Laufey Njálsdóttir á fiðlu og Birgir Jóhann Birgisson á gít- ar, píanó, hljómborð og fleiri hljóðfæri. Birgir stýrði auk þess upp- tökum á disk- inum. Lagatexta samdi Bjarni Jóns- son, utan eins sem barnabarn Gunnars, Unnur Líf Kvaran, samdi við lagið „Ást“. Allt milli himins og jarðar Fantasía er önnur breiðskífa Gunnars en sú fyrri, Sælureitur, kom út árið 2007. Gunnar segist snemma hafa farið að leika á hljóð- færi, hann hafi verið farinn að leika með hljómsveitum árið 1964 og næstu 20 árin hafi hann verið viðloð- andi hljómsveitarbransann. „Á þess- um tíma var ég að spila á hljómborð og píanó en í dag er mitt aðalhljóð- færi harmonika, sem ég ákvað að taka föstum tökum og læra á.“ – Hvers konar plata er Fantasía? Er eitthvert þema á ferðinni eða rauður þráður í tónlist og textum? „Lögin á Fantasíu eru flest með suðrænum blæ. Allir textarnir falla mjög vel að lögunum mínum og þeir fjalla um allt milli himins og jarðar,“ svarar Gunnar. Hann hafi verið svo heppinn að fá til liðs við sig eina af fremstu söngkonum landsins, Helgu Möller, til að hjálpa sér við sönginn. Hún syngi í nokkrum laganna auk þess að syngja með honum og radda í nokkrum lögum. Gunnar segir diskinn hafa fengið góðar viðtökur og að hann muni halda áfram að semja lög og þá m.a. jólalag líkt og hann hafi gert sl. fimm ár. helgisnaer@mbl.is Fantasía með suðrænum blæ  Önnur plata Gunnars Ó. Kvaran Í hljóðveri Helga Möller við tökur á breiðskífunni Fantasíu. Lagasmiður Gunnar Ó. Kvaran. Saknað fornaldar nefnist fyrsta sóló- plata tónlistarkonunnar Önnu Maríu sem heldur útgáfutónleika í kvöld kl. 20 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Anna hóf að vinna að plötunni fyrir þremur árum þegar hún var við nám í Rythmic Music Conserva- tory í Kaupmannahöfn. Kveikjan að tónlistinni voru gamlar íslenskar ljóðabækur sem hún erfði frá ömmu sinni og afa, ljóð eftir ljóðskáld sem eiga það nær öll sameiginlegt að hafa búið í Kaupmannahöfn og verið þar við nám á öldum áður. Ljóð- skáldin ættu að vera flestum Íslend- ingum kunn, þeir Matthías Joch- umsson, Eggert Ólafsson, Sigurjón Friðjónsson, Jón Thoroddsen eldri og Tómas Guðmundsson. Auk þess má finna á plötunni lög við tvö ljóð íslensks ungskálds, Sölva Björns Sigurðssonar. Anna segir að greina megi þjóðleg áhrif í tónlistinni, hún sé magnþrungin og tilfinningarík, á köflum drungaleg og að greina megi áhrif frá síðrokki og nýaldartónlist, poppi, spunatónlist og elektróník. En af hverju ákvað hún að semja tónlist við þessi gömlu ljóð? „Við það að flytja frá Íslandi fékk ég áhuga á einhverju íslensku,“ svarar Anna. Ljóðin, allt að 300 ára gömul, hafi heillað hana og smám saman hafi orðið til safn laga út frá þeim. Anna María hefur áður komið að plötusmíð, gaf út geisladisk með norrænu spunasöngshljómsveitinni IKI og hlaut sú plata Dönsku tón- listarverðlaunin í fyrra. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Önnu, annamaria.is. helgisnaer@mbl.is Tónlist við ljóð þekktra ljóðskálda Ljóð Anna María fagnar fyrstu sóló- plötu sinni í Fríkirkjunni í kvöld.  Fyrsta sólóplata Önnu Maríu Langtímaleiga www.avis.is 52.100 kr. á mánuði og allt innifalið nema bensín!* Hafðu endilega samband við okkur í síma 591 4000 eða kíktu á avis.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. *Hyundai l10, árgerð 2011, í 36 mánaða leigu. Komdu í langtímaleigu Avisog láttu dæmið ganga upp!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.