Morgunblaðið - 21.12.2012, Qupperneq 52
FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 356. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Lést í eldsvoða í Grundarfirði
2. Hættur að halda útskriftarveislur
3. Það sem konur vilja alls ekki í …
4. Annþór og Börkur fá 6 og 7 ára …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bókaverslanir Eymundsson hafa
tekið við 1012 íslenskum bókartitlum
til sölu í ár og hafa þeir aldrei verið
fleiri. Í fyrra voru titlarnir 1010. Við
titlana 1012 bætast svo ríflega 100
rafbókartitlar. 1012. titillinn var bókin
Wayne Rooney – áratugur í úrvals-
deildinni sem kom í verslanir
Eymundsson í gær.
AFP
Metfjöldi bókartitla
hjá Eymundsson
Michael Bill-
ington, gagnrýn-
andi breska dag-
blaðsins The
Guardian, telur
sýningu leikstjór-
ans Benedicts
Andrews á Þrem-
ur systrum í
Young Vic-leik-
húsinu í Lundúnum eina af þremur
bestu sýningum ársins í Bretlandi.
Andrews stýrir jólasýningu Þjóðleik-
hússins í ár, Macbeth.
Sýning Andrews ein
þeirra bestu
Úlfar Þormóðsson hlaut í gær við-
urkenningu úr rithöfundasjóði Rík-
isútvarpsins auk 500 þúsund króna
framlags úr sjóðnum. Úlfar hefur
starfað bæði sem
blaðamaður og rit-
höfundur og gefið út
skáldverk og
ljóðabækur.
Fyrsta skáld-
saga hans, Sód-
óma Gómorra,
kom út árið
1966.
Úlfar hlaut viður-
kenningu og framlag
Á laugardag Austlæg átt, víða 8-13 m/s. Rigning og sums staðar
slydda S- og A-lands, en þurrt að kalla annars staðar. Hiti 1 til 7
stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan- og austanátt, víða 8-15 m/s.
Rigning eða skúrir S- og A-lands, annars úrkomulítið. Hiti yfirleitt á
bilinu 2 til 8 stig.
VEÐUR
Allt bendir til þess að Arnar
Grétarsson verði ráðinn
yfirmaður knattspyrnumála
hjá belgíska félaginu Club
Brugge en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins eru
viðræður þar að lútandi á
lokastigi. Arnar gegndi
sama starfi hjá gríska félag-
inu AEK í tvö ár og myndi
hefja störf strax um ára-
mótin. Hann lék áður í sex
ár í Belgíu, þá með liði Loke-
ren. »1
Arnar á leið til
Club Brugge?
Alexander Petersson glímir við
meiðsli sem gætu bundið enda á
handknattleiksferil hans og þarf á
hvíld að halda til að fá bót meina
sinna. Alexander hefur á undan-
förnum árum fórnað sér af heilum
hug og líkama fyrir ís-
lenska landsliðið. Ósk
hans um frí ber að virða
og gefa honum þann
tíma sem gefst í
janúar. Sjá nánar
viðhorfsgrein Ív-
ars Benedikts-
sonar í
íþrótta-
blaðinu.
»3
Ósk Alexanders um frí
frá HM ber að virða
Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjáls-
íþróttakona glímir við brjósklos í baki
og óvíst er hvenær hún getur hafið
æfingar og keppni á nýjan leik. „Eins
og staðan er í dag ríkir óvissa og ég
ætla bara að leyfa hlutunum að ráð-
ast. Það getur vel verið að árið fari
bara í vaskinn,“ segir Helga Margrét
við Morgunblaðið. »2
Helga úr leik með
brjósklos í baki
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ef við hefðum ekki haldið áfram að
smíða jólaskeiðina þegar byrjað var
að láta smíða jólaskeiðar erlendis
hefði kunnáttan horfið úr landinu og
fyrirtækið lognast út af,“ segir Ás-
geir Reynisson, gullsmiður í Gull-
og silfursmiðjunni Ernu í Reykja-
vík. Hann áréttar að smiðjan sé eina
fyrirtæki landsins sem smíði silfur-
borðbúnað og jólaskeiðin, sem afi
hans hafi byrjað að framleiða 1946,
sé hluti af þessari mikilvægu iðn-
grein.
Fjórir starfsmenn vinna hjá fyr-
irtækinu og þrír bætast við á álags-
tímum. Sóley Þórisdóttir hannaði
jólaskeiðina í ár en skeiðin er mis-
jöfn milli ára. Bergsveinn Elíasson
hefur smíðað hana í 21 ár. „Eftir því
sem mynstrið er meira er slípivinn-
an minni,“ segir hann og bætir við
að hann geti gert um 10 skeiðar á
dag.
Þríkrossinn seldur í Þýskalandi
Ekki fer mikið fyrir smiðjunni í
Skipholti 3 en í rýminu eru öflug tól
og tæki, sem notuð eru við smíðina á
borðbúnaðinum. Meðal annars
höggpressa sem var smíðuð í Belgíu
1949. „Það þarf ákveðna þekkingu
til þess að smíða borðbúnað og með
þessum tækjum getum við gert það
á mjög hagkvæman hátt, erum vel
samkeppnisfær við erlenda fram-
leiðendur,“ segir Ásgeir. „Þessi tæki
og þær aðferðir sem við notum við
borðbúnaðarsmíðina nýtast okkur
mjög vel í fjöldaframleiðslu á skart-
gripum,“ heldur hann áfram og vís-
ar meðal annars í framleiðslu á þrí-
krossinum, sem þau hafa framleitt í
um tvo áratugi eftir að hafa átt hag-
stæðasta tilboðið í útboði Blindra-
vinafélagsins. Í fyrra hafi útflutn-
ingur á þríkrossinum síðan hafist til
Þýskalands og á dögunum hafi
fulltrúar þýska dreifingarfyrirtæk-
isins komið í heimsókn og gert
myndband um framleiðsluna. „Þetta
er mjög spennandi og mjög ánægju-
legt að eina heilbrigða hagkerfið
sýni þessari framleiðslu áhuga.“
Framleiðslan er fjórskipt. Borð-
búnaður, ferðamannavörur, skart-
gripir og þríkrossinn auk þess sem
þau byrjuðu nýlega að framleiða úr
undir nafninu Yrsa. „Það hefur
gengið ótrúlega vel, en aðalatriðið
er að halda þekkingunni í landinu.
Það er mikil áskorun en mér finnst
ánægjulegt að takast á við nýja
tíma,“ segir Ásgeir. Hann bætir við
að fyrirtækið standi ekki frammi
fyrir neinum innlendum hindrunum
heldur sé alþjóðlegt verð á gulli og
silfri helsta vandamálið. „Þessi
óvissa í heiminum er verst, en við
erum vel samkeppnisfær og með
lægra verð en nágrannaþjóðirnar.“
Halda vel í gamlar hefðir
Eina fyrirtækið
hér sem smíðar
silfurborðbúnað
Morgunblaðið/RAX
Í versluninni Bergsveinn Elíasson, Sara Steina Reynisdóttir með mynd af frumherjunum og Ásgeir Reynisson.
Guðlaugur A. Magn-
ússon gullsmiður byrj-
aði með gull- og silf-
ursmíðaverkstæði á
Ísafirði 1924 og flutti
starfsemina til Reykja-
víkur 1927. Árið 1936
hóf hann framleiðslu á
borðbúnaði úr silfri.
1947 var fyrirtækið
gert að hlutafélagi
undir nafninu Gull- og
silfursmiðjan Erna hf. Verkstæðið
var fyrst við Laugaveg í tengslum
við verslun Guðlaugs A. Magn-
ússonar, en engin
tengsl eru nú á milli
þeirrar verslunar og
verkstæðisins.
Reynir Guðlaugsson
tók við verkstæðinu af
föður sínum og börn
hans, Sara Steina,
Ragnhildur Sif og Ás-
geir, hafa séð um rekst-
urinn síðan hann féll
frá fyrir rúmum áratug.
Reynir, sonur Ásgeirs, vinnur líka í
fyrirtækinu og þar með hafa fjórar
kynslóðir komið að því á 88 árum.
Kynslóð eftir kynslóð
GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNA Í FJÖLSKYLDUNNI FRÁ 1924
Íslenskur
borðbúnaður.