Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Side 18
Í búar Indónesíu tóku hindúatrú í fornöld, en smám saman náði búddismi mikilli útbreiðslu. Eftir aldalöng viðskipti við arabaþjóðir á miðöldum náði ísl- amstrú yfirhöndinni í mestallri Indónesíu á fimmtándu öld. Eyj- arskeggjar á Balí voru ekki á því að láta snúa sér til íslam. Hindúar frá öðrum eyjum Indónesíu tóku að flytjast þangað og trúin festist í sessi. Hindúatrú Balíbúa hefur auk þess blandast ýmsum fornum trúarbrögðum frumskógarins auk búddisma. Á eyjunni eru um 20.000 hindúahof, flest í einkaeigu. Á Balí búa tæplega fjórar millj- ónir manna, þótt eyjan sé ekki nema einn átjándi partur af Ís- landi að stærð. Menningin á Balí á sér fornar og djúpar rætur. Hand- verk ýmiss konar hefur þróast í margar aldir. Dansarnir eru heillandi skrautsýningar, sem fara fram í kyndlabirtu. Balídansar hafa gjarnan flókinn söguþráð sóttan í gamlar þjóðsögur sem fjalla um ástina og dauðann þar sem ýmsir guðir blanda sér í bar- áttuna. Ekki er síður athyglisvert að fylgjast með líkfylgdum og öðr- um trúarathöfnum sem verða oft á vegi manns. Balí komst á kortið hjá menn- ingarvitum Vesturlanda á fjórða áratug liðinnar aldar. Menn fóru þá að veita menningarlífinu at- hygli, einkum listamönnunum og dönsunum. Ekki var farið að byggja upp strandhótel fyrr en á sjöunda áratugnum. Strandbæirnir eru allir á suðurhluta eyjarinnar. Sá stærsti og þekktasti er Kuta þar sem djammið er villtast, en þar var einmitt sprengjutilræðið árið 2002 sem grandaði 202 mannslífum. Í Nusa Dua eru lúx- ushótelin, en fjölskyldufólkið er best geymt í Sanur þar sem und- irritaður dvaldi fyrir spottprís. Meðfram Sanur er 5 km löng sandströnd með plássi fyrir alla. En það er ekki strandlífið sem gerir Balí eftirsóknarvert. Um að gera er að nota tímann til að fara sem víðast að upplifa þessa dul- arfullu og heillandi eyju. Varla er hægt að tala um nothæfar almenn- ingssamgöngur. Hægt er að leigja bíl eða mótorhjól, en það er varla nema fyrir þá ævintýragjörnustu. Löggan er afskiptasöm við erlenda ökumenn, en oftast má leysa málið sem smá „sekt“ á staðnum. Varast ber þó að bjóða mútur að fyrra bragði. En þeir skipta sér lítt af því þótt heilu fjölskyldurnar af innfæddum þjóti um göturnar hjálmlausar á einu mótorhjóli. Flestir landsmenn ferðast um á mótorhjóli og umferðin er yf- irþyrmandi í mesta þéttbýlinu. Ekki er hættulaust fyrir gangandi vegfarendur að komast leiðar sinn- ar, ekki síst þar sem taka má hægri beygju á rauðu ljósi, svo vélfákarnir koma að manni úr öll- um áttum við gangbrautirnar, þar sem hinir gangandi virðast engan forgang hafa. Besta leiðin til að ferðast um landið er að leigja bíl Ubud er miðstöð handverks og lista á Balí. Einkum er þar að finna skartgripi, batik, útskurð og málverk. Sjálfsagt er að prútta um verðið og hægt er að gera góð kaup, einkum í málverkum. FJÖLBREYTT EYJAMENNING Balí – perla Indónesíu ÞAÐ YNDISLEGA VIÐ INDÓNESÍSKU EYJUNA BALÍ ER ÖLL SÚ FRAMANDI FJÖLBREYTNI SEM HÚN HEFUR UPP Á AÐ BJÓÐA. ÞAR HEFUR ÞRÓAST MENNING SEM VARLA Á SÉR HLIÐSTÆÐU ANNARS STAÐAR. Ljósmyndir og texti: Ómar Óskarsson omar@mbl.is Balídansar snúast gjarnan um ástina og dauðann, þar sem ýmsir guðir blanda sér í atburðarásina. Í apaskóginum í Ubud. Hér er einn við Hof hinna framliðnu, Pura Dalem Agung. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2012 Ferðalög og flakk MEMORY FOAM heilsuinniskór OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-17 og sunnudaga frá kl. 13-16 JÓLATILBOÐINSHAPEB Y N AT U R E ’ S B E D D I N G n Inndraganlegur botn n 2x450 kg lyftimótorar nMótor þarfnast ekki viðhalds nTvíhert stál í burðargrind nHliðar- og enda- stopparar svo dýnur færist ekki í sundur nBotn er sérstaklega hannaður fyrir Shape heilsudýnur nVal um lappir með hjólum eða töppum n 5 ára ábyrgð C&J + Shape dýna Stærð cm. Með still. botni 2x 80x200 375.800,- 2x 90x200 399.800,- 2x90x210 407.800,- 2x100x200 429.800,- 120x200 230.900,- 140x200 257.900,- Tilboðsverð * afborgun pr. mán. í 12 mán. Vaxtalaust lán. 3,5% lántökugj. STILLAN- LEGT • STÆRÐ 2X90X200 Aðeins kr. 34.754,- í12mánuði* He ils ui nn is kó r s em lag ar sig að fætinum - einstök þæ gindi 1 par kr. 3.900,- 2 pör kr. 6.980,- 3 pör kr. 9.990,- Heilsusamleg jólagjöf á frábæru verði!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.