Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Síða 19
Brúðhjón framan við hofið Pura Ulun Danu Bratan við Bratan-vatn.
með bílstjóra heilu dagana. Yf-
irleitt er um að ræða minivan sem
tekur fimm farþega. Dagurinn
kostar 7-10.000 kr.
Þegar haldið er norður til Ubud
úr mesta kraðakinu í suðurhlut-
anum tekur allt á sig annan blæ.
Þar er miðstöð handverks- og
listamanna. Hægt er að gera góð
kaup í ýmsum listmunum svo sem
batik, útskurði, silfurskartgripum
og málverkum. Þar er einnig Apa-
skógurinn frægi, þar sem hundruð
makakí-apakatta stela öllu steini
léttara af ferðamönnum. Ófáir hafa
tapað gleraugum sínum í hendur
apanna. Nauðsynlegt er að hafa
með sér vænan poka af banönum
ef haldið er þangað, en þeir eru
seldir við innganginn í skóginn.
Norðan við Ubud fer landslagið að
hækka. Við taka hrísgrjónaekrur,
oft í stöllóttum hlíðum eða gljúfr-
um og fjallstindarnir klæðast
dökkgrænum gróðrinum.
Á norðurhluta eyjarinnar má
finna þó nokkra tinda sem ná yfir
3.000 metra. Vinsælt er að fara í
jeppasafarí að eldfjallinu Gunung
Agung, en það er virkt eldfjall
sem nær 3.142 m hæð. Fjallið er
heilagt í augum Balíbúa, en sagt
er að þeir trúi að þar safnist sálir
forfeðra þeirra saman. Síðast gaus
í fjallinu árið 1963 og fórust þá
þúsundir manna.
Smábærinn Petulu er þekktur
fyrir sérkennilegt fyrirbrigði sem
snertir trúarvitund margra Balí-
búa. Í ljósaskiptunum á hverju
kvöldi safnast fyrir í trjánum í
þorpinu hundruð, jafnvel þúsundir
hvítra hegra og dvelja þar alla
nóttina. Mikið sjónarspil er að
fylgjast með hegrunum flykkjast
hvaðanæva til lendingar í trjánum.
Hófust undur þessi skömmu eftir
borgarastríðið á árunum 1965-
1966. Sumir vilja trúa því að sálir
þeirra sem létust í stríðinu hafi
tekið sér bólfestu í hegrunum.
Bratan-vatn er annar helgur
staður. Þar er Pura Ulun Danu
Bratan, ellefu hæða hof frá
sautjándu öld, á lítilli eyju úti í
vatninu. Þarna er einstök nátt-
úrufegurð, gott loftslag og þægi-
lega svalt, enda í 1.200 m hæð yfir
sjávarmáli. Hægt er að leigja báta
til að fara um vatnið og fá fylgd-
armenn í leiðangra á fjallstindana í
kring. Skammt frá er jurtagarð-
urinn Eka Karya, en þar má m.a.
finna 320 tegundir af orkídeum.
Yfir garðinum vakir tröllaukin
stytta af Kumblakarna Laga í bar-
áttu við apaherinn sem Rama
stjórnar.
Á Suðvestur-Balí er hið sér-
stæða hof Tanah Lot á háum kletti
í fjörunni en er aðeins aðgengilegt
eftir tveggja metra breiðri nátt-
úrulegri steinbrú. Þar eru engin
handrið en fólkið flykkist yfir.
Þegar líður að kvöldi fer fólk
hundruðum saman í fjöruna til að
fylgjast með sólinni steypa sér í
sjóinn framan við Tanah Lot. Fyr-
ir þá sem vilja vera á róm-
antískum stað við sólsetur verður
varla á betra kosið.
Helgasta vatnahof hindúa á Balí er Pura Ulun Danu Bratan við Bratan-vatn, en
það er byggt árið 1663.
Líkfylgdir eru afar skrautlegar athafnir.
* Balídansarhafa gjarnanflókinn söguþráð
sóttan í gamlar
þjóðsögur.
Umferðin á Balí er kapítuli út af fyrir sig. Um 70% allra ökutækja á eyjunni eru
mótorhjól og oft eina farartæki fjölskyldunnar.
Hvítu hegrarnir setjast að í trjánum í þorpinu Petulu rétt fyrir sólsetur.
Börnin á Balí eru yndisleg, eins og alls staðar.
2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Pöntunarsími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is Holtagörðum
Í FULLUM GANGI!
Jóla-
tilboð!
Dúnsæng + dúnkoddi kr. 15.900,-
Trölla-dúnsæng kr. 13.900,-
Stakur dúnkoddi kr. 4.900,-
TVENNU
TILBOÐ
Sæng+kodd
i
Dorma sængurverasett kr. 5.592,-
JÓLA-
AFSLÁ
TTUR20%
Sæng: 30% dúnn/70% smáfiður. Koddi:15% dúnn/85% smáfiður.