Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Side 23
2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Hágæða sæn
gurverasett
og sloppar -
Mikið úrval
Jólagjöfin í ár
20%
afslát
tur
Heilbrigðisyfirvöld á
Bretlandi hafa skorið
upp herör gegn vefsíð-
um sem hvetja ungar
stúlkur til átröskunar til
að halda sér grönnum.
Áætlað er að vefsíður af
þessu tagi séu á bilinu
fjögur til fimm hundruð
og þúsundir stúlkna
heimsæki þær á degi
hverjum. Á síðum þess-
um má nálgast upplýs-
ingar um það hvernig
halda má sér grönnum,
meðal annars með því
innbyrða einungis fjögur
til fimm hundruð kalorí-
ur á dag í stað tvö þús-
und sem er æskilegur
dagskammtur fyrir kon-
ur. Ekki er óalgengt að
vefsíður þessar haldi á
lofti ljósmyndum af fræg-
um grönnum konum, svo
sem tískudrósinni Victo-
riu Beckham og leikkon-
unni Keiru Knightley.
Dæmi eru um að
stúlkur allt niður í sex
ára gamlar hafi nýtt sér
upplýsingar af téðum síð-
um með skelfilegum af-
leiðingum.
BRESK HEILBRIGÐISYFIRVÖLD
Victoria Beckham þykir
ekki góð fyrirmynd með
tilliti til holdafars.
AFP
Vilja uppræta átröskunarsíður
Virtur húðsjúkdómalæknir á Bret-
landi hefur varað við notkun ung-
lingabólulyfsins Roaccutane sem
grunur leikur á að geti leitt til þung-
lyndis. Tony Chu segir lyfið gróflega
ofnotað, fæstir sem fá því ávísað hafi
raunveruleg not fyrir það. „Að mínu
viti á ekki að nota Roaccutane nema
í neyðartilvikum, þegar ungmenni
eru útsteypt í bólum. Að skrifa upp á
lyfið út af fjórum eða fimm bólum er
fráleitt,“ segir Chu.
Á síðasta ári fyrirfór 24 ára gamall maður sér eftir að hafa notað Roac-
cutane og telur fjölskylda hans lyfið hafa spilað þar inn í. „Hann var þung-
lyndur vegna unglingabólnanna en lyfið gerði illt verra,“ segir faðir hans
við vef breska ríkisútvarpsins, BBC.
Talsmaður breska lyfjaeftirlitsins, June Raine, er á öndverðum meiði,
segir lyfið hafa reynst tugþúsundum ungmenna vel.
UMDEILT LYF VIÐ UNGLINGABÓLUM
Ungmenni geta verið viðkvæm.
AFP
Gæti valdið þunglyndi
Ofneysla lyfseðilsskyldra lyfja send-
ir um fimmtán þúsund Bandaríkja-
menn í gröfina ár hvert. Það er
þrefalt meira en fyrir áratug. Svo
rammt kveður að þessum vanda að
bandaríska sóttvarnaeftirlitið hefur
lýst yfir faraldri. Þrátt fyrir að vera
innan við 5% íbúa heimsins nota
Bandaríkjamenn 80% lyfseð-
ilsskyldra verkjalyfja í heiminum.
Sala á slíkum lyfjum hefur fjórfald-
ast á aðeins tíu árum, nemur nú ell-
efu milljörðum Bandaríkjadala.
Fleiri látast nú í Bandaríkjunum
af völdum lyfseðilsskyldra lyfja en af
völdum heróíns og kókaíns til sam-
ans og í sautján ríkjum deyja fleiri af
þeim sökum en í bílslysum. Mörg
Evrópuríki hafa líka vaxandi áhyggj-
ur af þessari þróun.
LYFSEÐILSSKYLD LYF
Pillur geta verið ávanabindandi.
AFP
Verða æ fleir-
um að fjörtjóni
viðhorfi margra til gervisætuefna í
seinni tíð, þrátt fyrir áframhaldandi
notkun.
Ekki nóg vitað – spurning
um að börnin njóta vafans
Auk þess að vera ekki útbúin af
náttúrunnar hendi er því víða haldið
fram í dag að ýmiskonar aukaverk-
anir geti fylgt neyslu matvæla sem
innihalda aspartam, allt frá aukinni
tíðni svima og höfuðverkja yfir í að
neysla efnisins sé tengd skemmdum
á miðtaugakerfi fólks.
„Vandamálið er samt að við vitum
í raun og veru ekki nóg – sér-
staklega ekki gagnvart viðkvæmum
hópum eins og börnum og þung-
uðum konum. Einstaka vísbendingar
hafa komið fram, sbr. tvær faralds-
fræðilegar rannsóknir sem gáfu til
kynna óæskileg áhrif af neyslu syk-
urlausra (diet) gosdrykkja meðal
þungaðra kvenna. Það mun taka
nokkur ár þar til hugsanleg lang-
tímaáhrif þessarar neyslu fara að
koma að fullu í ljós,“ segir Ingibjörg.
Þrátt fyrir fyrrnefndar gagnrýn-
israddir hefur notkun sætuefnisins
engu að síður snaraukist á und-
anförnum árum. Benda rannsóknir
nú einnig til þess að neysla sætuefna
á meðal barna hafi snaraukist. „Á
meðan ekki meira er vitað, ættu
börnin kannski á meðan að njóta
vafans,“ bætir hún við.
Hrásykur, agave og nátt-
úruleg sætuefni sækja á
Í kjölfar gagnrýninnar umræðu um
hollustu sætuefna, auk vaxandi al-
mennrar vakningar um neyslu
hreinna, náttúrulegra vara, á und-
anförnum árum, leitast framleið-
endur sem fyrr við að bæta sínar
vörur enn frekar og reyna aðrar
leiðir.
Í tilfellum jógúrtvara hér á landi
má sjá þessa breytni t.d. í auknu
framboði á vörum sem sykraðar eru
með náttúrulegum sætugjöfum á
borð við hrásykur, agave-safa, sykr-
aða ávexti o.þ.h.
Sé dregin ályktun frá slembiúrtaki
Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins,
sem sjá má í töflu, virðist ekki sem
hróplegur munur sé á næring-
arinnihaldi vara sem sykraðar eru
með hefðbundnum sykri, agave-
þykkni eða hrásykri eins og sjá má.
Hreinar afurðir hollastar
en stöku jógúrt í hófi í lagi
Í ráðleggingum Landlæknis um mat-
aræði og næringarefni er áréttað að
tvö mjólkurglös á dag uppfylli nauð-
synlega kalkþörf mannsins. Lítil jóg-
úrt- eða skyrdós er þar sögð sam-
svara einu glasi. Er fólk eftir sem
áður hvatt til að velja fituminni
vörur og sykurlitlar.
Bent skal á að mjög sætar mjólk-
urvörur í handhægum umbúðum,
sem finnast í kælum matvöruversl-
ana, eiga margar hverjar meira skylt
við eftirrétti en jógúrt, þar sem syk-
urinnihald þeirra er áberandi hátt
auk þess sem þeim fylgja sem dæmi
súkkulaðikúlur til að blanda saman
við þykknið o.s.frv. Eru umræddar
vörur ekki taldar með hér þegar
rætt er um jógúrt.
Spurð að því hverju hún mæli
öðru fremur með ef ekki bragð-
bættri jógúrt segir Ingibjörg hreinu
jógúrtina og aðrar hreinar sýrðar af-
urðir, næringarríka kosti. „Það er
t.d. hægt að hræra út í þær rúsínur
eða banana ef óskað er eftir sæt-
leika, og börn venjast því sem þeim
er boðið.“
Í stóra samhenginu eru mjólk-
urvörur ekki aðalsykurgjafi fæð-
unnar og ber því að gæta skynsemi í
málum jógúrtarinnar sem annarra
vara. „Fyrir manneskju sem notar
eiginlega aldrei gos og borðar ekki
kex og kökur ætti alveg að vera
pláss fyrir þetta. Ef sætar mjólk-
urvörur eru ekki hluti af öllum mál-
tíðum dagsins, ætti það allavega ekki
að skaða heilsuna,“ segir Ingibjörg.
Næringargildi í 100 g af mismunandi jógúrt-tegundum
Framl. kj kkal Prótein (g) Kolv. (g) Fita (g) Sætuefni:
Lífræn AB jógúrt með skógar-
berjum og agave Biobú 381 91 2,5 12,3 3,5 Agaveþykkni
Óskajógúrt m/jarðarberjum MS 379 90 3,3 11,9 3,2 Sykur
Lífræn jógúrt jarðarber Biobú 347 82 2,7 11,6 2,8 Lífrænn
hrásykur
Létt Jógúrt með jarðarberjum Sætuefni
(án viðbætts sykurs) MS 179 43 3,6 3,9 1,4 (aspartam og
asesúlfam-K)
Létt drykkjarjógúrt jarðarber MS 337 80 3,4 13,6 1,3 Sykur
Heimild: Umbúðir vörutegunda
Næringargildi í 100 g af öðrum mjólkurvörum
kj kkal Prót. (g) Kolv. (g) Fita (g) Sætuefni:
Skyr.is / jarðaber 356 84 9,2 11,3 0,2 Sykur
Kea-skyr m. jarðab. 394 93 11,2 11,1 0,4 Sykraðir
ávextir
Skyr / hrært hreint 301 71 13,3 3,3 103
AB-mjólk / hrein 183 43 3,8 3,7 1,5
Léttsúrmjólk / hrein 176 42 3,4 3,7 1,5
Engjaþykkni með
jarðarb. og morgunk. 623 149 3,3 17,5 7,2
Heimild: Umbúðir vörutegunda
* „Í stóra samhenginueru mjólkurvörur
ekki aðalsykurgjafi
fæðunnar.“