Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2012
Matur og drykkir
V
ið höldum mjög oft matarboð heima við með dætrum okkar
og erum gjörn á að prófa margt í eldamennsku. Heimilislífið
er alltaf tilefni til að setja upp veislur og prófa hitt og
þetta,“ segir Gísli Egill Hrafnsson, ljósmyndari og matgæð-
ingur.
Þau hjón; Gísli Egill og Inga Elsa Bergþórsdóttir, grafískur hönn-
uður, eru fyrir löngu orðin þekkt fyrir matreiðslubækur sínar sem
eru með þeim fallegustu á markaðnum, með nýjum og sígildum upp-
skriftum. Þau buðu góðum vinum sínum heim í mat þar sem þau
buðu upp á mat í anda nýrrar bók úr þeirra smiðju; Eldað og bakað
í ofninum heima.
„Við buðum upp á taílenskan pottrétt og eldamennskan er fremur
afslöppuð því þetta er einn af þessum réttum sem maður hendir inn
í ofn og hann eldar sig sjálfur. Pottrétturinn inniheldur alls konar
krydd en er fremur mildur. Í gluggakistunni heima ræktum við chili-
pipar og það hitti þannig á að við áttum rosalega mikið af allskonar
chili. Og eins og í öllum austurlenskum mat er í góðu lagi að setja
aðeins meira af chili en er í uppskriftinni ef maður hefur smekk fyrir
því,“ segir Inga. Með réttinum var borið fram heimabakað naan-brauð
og eftirrétturinn er í miklu uppáhaldi á heimilinu – súkkulaðirauðrófu-
brownies. Í kökunni eru rauðrófur eitt af grunnhráefnunum og hún
er án hveitis. Þess í stað er notað mjöl sem búið er til úr heslihnet-
um og rísmjöli þannig að hún er glútenlaus og án viðbættrar fitu.
Uppskriftin er úr bókinni en Inga bætir við að í henni sé engin
heilsupredikun heldur sé ætlunin að koma upplýsingum á framfæri
um hvernig má skipta út hveiti og öðru í bakstri fyrir önnur hráefni
og hvernig hlutföllin breytast þá. Mikið sé til af alls konar mjöli og
hveiti sem fólk er oft hrætt við að prófa. „Kannski líka til að gefa
fólki hugmyndir. Það er svo margt hægt að gera með eina uppskrift
og sérstaklega í bakstrinum en þar eru margir oft hræddir við að
breyta einhverju. Við gefum ákveðnar lykilupplýsingar og leiðbeinum
fólki með það hvernig það getur aðlagað uppskriftir að sínum
smekk.“
Inga segir að í grunninn sé nýja bókin sjálfstætt framhald af bók-
inni sem kom út í fyrra. Hugsunin er sú sama; að elda úr árstíð-
arbundnum hráefnum, reyna að vera sjálfbjarga eins og hægt er en
nú er ákveðið þema – ofninn. Það er svo margt hægt að gera með
ofninn í eldamennsku.“
MATUR SEM ELDAR SIG SJÁLFUR
Hádegi á
Hjallavegi
* „Við buðum upp á taílenskan pottréttog eldamennskan er frem-
ur afslöppuð því þetta
er einn af þessum réttum
sem maður hendir inn
í ofn og hann eldar sig
sjálfur. Pottrétturinn inni-
heldur alls konar krydd
en er fremur mildur.“
HJÓNIN INGA ELSA BERGÞÓRSDÓTTIR
OG GÍSLI EGILL HRAFNSSON BUÐU GÓÐUM
GESTUM HEIM Í HÁDEGISVERÐARBOÐ.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
UM 10 BRAUÐ
2½ tsk. þurrger
2 msk. sykur
200 ml mjólk, ylvolg
600 g hveiti
1 tsk. salt
2 tsk. lyftiduft
4 msk. ólífuolía
200 ml hrein jógúrt eða súrmjólk
1 msk. Maldon-salt
1 msk. indversk kryddblanda (t.d. garam masala eða
eitthvert annað gott krydd sem ykkur dettur í hug)
25 g smjör
2 hvítlauksrif, pressuð
knippi af fersku kóríanderlaufi
Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir.
Látið standa í 15 mínútur. Blandið síðan hveiti, salti, lyfti-
dufti, olíu og jógúrt saman við germjólkina. Hnoðið deigið þar
til það er slétt og mjúkt; bætið við hveiti ef það er of
lint. Látið deigið svo hefast í skál í 1 klukkustund við stofu-
hita. Hitið bakaraofninn í 275°C og stillið á grill. Blandið sam-
an kryddi og Maldon-salti og setjið á disk. Skiptið deiginu í 10
hluta og hnoðið úr því kúlur.
Fletjið síðan hverja kúlu út nokkuð þunnt og þrýstið ann-
arri hliðinni létt ofan í kryddblönduna. Raðið brauð----unum á
ofnplötu. Bakið brauðin í 5–7 mínútur. Bræðið smjör í potti,
setjið pressaðan hvítlaukinn út í og dreypið smjörinu yfir heit
brauðin. Klippið síðan ferskt kóríanderlauf yfir allt saman.
Naan-brauð
HANDA 10–12
400 g rauðrófur, afhýddar og skornar í litla bita
150 g heslihnetur
3 stór egg
180 g sykur eða ljós púðursykur
½ tsk. salt
2 msk. hrísmjöl
3 msk. kakó
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilluessens
200 g súkkulaði, 70%, grófsaxað
Hitið ofninn í 200̊C. Bakið rauðrófubitana í 20 mín-
útur. Smyrjið mót sem er um 27 x 20 cm stórt með ol-
íu. Klippið smjörpappír þannig að hann passi í mótið
og leggið hann þétt upp við kantana. Smyrjið pappírinn
lítillega með olíu.
Malið heslihneturnar í fínt mjöl í matvinnsluvél.
Þeytið saman egg, sykur og salt þar til eggin verða létt
og ljós. Hrærið hnetu- og hrísmjöl saman við ásamt
kakói, lyftidufti og vanillu.
Maukið bakaðar rauðrófurnar og setjið saxað
súkkulaðið saman við heitt rauðrófumaukið. Hrærið í
þar til súkkulaðið bráðnar. Setjið rauðrófumaukið út í
deigið og blandið varlega saman.
Hellið deiginu í mótið og sáldrið grófsöxuðum hesli-
hnetum yfir. Lækkið ofnhitann í 160̊C. Bakið kökuna í
miðjum ofninum í 35 mínútur.
Látið hana kólna aðeins í mótinu áður en hún er
borin fram.
Súkkulaðirauðrófu-
brownies