Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Qupperneq 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Qupperneq 45
þjóðfundinum, þar sem „framtíðarsýn varð til á hverju borði“. Þeim, sem reyna að halda því fram að löggjafarsamkundunni sé með þessu sýnd lítil virðing í málinu, má benda á að „Virðing“ varð í þriðja sæti á þjóðfundinum, sæti neðar en Jafnrétti. Og vísun til ábyrgðarlausra vinnubragða er gagnslaus, því „Ábyrgð“ komst ekki inn á lista yfir 4 hæstu „gildin“ á fundinum, frekar en „Kærleikurinn“ sem „Réttlæti“ skaut auðveldlega aftur fyrir sig. Fræðimenn glata ærunni Nú eru fræðimenn, meira að segja þeir sem hafa ver- ið í sérstöku uppáhaldi hjá Samfylkingunni og gagn- kvæmt, teknir að halda því fram að sjálfur eins dags þjóðfundurinn sem fann „gildin“ og að auki fann upp framtíðarsýn á „hverju borði“ hafi í rauninni verið eins og hver önnur vitleysa (ekki orðrétt) og betri ár- angurs hefði verið að vænta úr venjulegri skoðana- könnun, en uppákomunni í Laugardal. Og svo for- dæma þeir að auki að „þjóðfundurinn“ og sjálf „þjóðaratkvæðagreiðslan“ þar sem ekki var spurt um eina einustu tillögu „stjórnlagaráðs“ séu í framhald- inu notuð til „þöggunar“ allrar umræðu, eins og Gunnar Helgi Kristinsson prófessor orðaði það. Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður hefur að vonum brugðist hart við og velt fyrir sér hvort verj- andi sé að slíkir menn, sem þannig tala, skuli áfram kalla sig fræðimenn. Það er von að formaðurinn slái slíka varnagla. Því hvar gæti ábyrgðarleysi áður virtra fræðimanna af slíku tagi endað? Ætlar útskúf- aður „fræðimaðurinn“ kannski að fara að hafa uppi efasemdir um þá leiðsögn sem Kínverski komm- únistaflokkurinn hafði uppi á sínum þjóðfundi? Er hann þá á móti friði, framförum og valdi fólksins, sem þar var klappað fyrir? Eða á að trúa því að fólk sem kallar sjálft sig enn fræðimenn ætli að hefja baráttu gegn Heiðarleika, Jafnrétti, Virðingu og Réttlæti, sem slógu svo rækilega í gegn á hinum íslenska þjóð- fundi, sem var síst síðri en sá kínverski? Vilja hinir hálaunuðu fræðimenn háskólanna sópa út af 100 borðum þeim framtíðarsýnum „sem urðu til á hverju borði í Laugardal“? En formaður nefndarinnar lætur ekki vaklandi „fræðimenn“ slá sig út af laginu. Jafnvel þótt Lýð- ræði næði ekki glæsilegum árangri í prófkjörum gild- anna á þjóðfundinum ætlar Eftirlits- og stjórnskip- unarnefnd Alþingis ekki einu sinni að forsmá það með öllu. Nefndin hefur því sett auglýsingu í fjölmiðla um að þeir sem vilji skoða og velta fyrir sér á annað hundrað nýjum ákvæðum stjórnarskrár, sem hvorki þing né forsætisráðherra hafa enn haft tíma til að kynna sér, geti ef þeir kjósi notað nokkra daga á að- ventunni til þess og látið svo Valgerði vita eftir viku eða svo. Nú geta úrtölumenn auðvitað sagt sem svo að vika sé stuttur tími. En þá er á tvennt að líta. Stjórn- málamönnum hefur lengi þótt flott að hafa uppi fras- ann að „vika sé langur tími í stjórnmálum“ og það eigi hvergi betur við en einmitt núna. Sundlaugarvörður Samfylkingarinnar bætir um betur og segir að jafnvel korter sé lengi í kafi, hvað þá vika. Og svo er hitt að þótt þjóðfundurinn hafi aðeins staðið í dagspart hafi samt „orðið þar til framtíðarsýn“ á hverju borði auk 30.000 nýrra tillagna. Nú er fólkinu í landinu, hverj- um og einum landsmanni, sem sagt gefinn sjöfaldur þjóðfundartími til að koma með sínar athugasemdir. Því er jafnframt heitið að hver einasta athugasemd frá almenningi fái ekki lakari meðferð en hver og ein tillaga að nýju stjórnarskrárákvæði. Þingmenn muni því ekki líta á eina einustu athugasemd og senda þær sem berast ólesnar til forsætisráðherra sjálfs, sem muni meðhöndla þær eins og sjálfar tillögur stjórn- lagaráðs. Svo enginn mun hafa yfir neinu að kvarta. „Það varð hér hrun“ Eins og Steingrímur J. hefur bent á „þá varð hér hrun“ og á hann þá ekki við fylgishrun Björns Vals eða VG almennt, hvað svo sem Atli Gísla, Lilja Móses, Ásmundur Einar, Jón Bjarna, Guðfríður Lilja og Bjarni Harðar segja um það. Og fyrst svo vel vildi til að Jóhanna og Samfylkingin fengu vitrun, sáu sýnir, kannski hundrað borða framtíðarsýnir, sem sýndu að „hér varð hrun“ og það hrun mátti rekja beint til Stjórnarskrár Lýðveldisins Íslands frá 17. júní 1944, þá varð að bregðast við. Nema menn vildu endilega annað hrun. Það er ekki margt sem bendir til þess. Ekkert einasta af borðunum 100 í höllinni bað um meira hrun. Það segir sitt. En svo augljóst sem þetta sýnist vera vekur eitt þó undrun. Eins og bent hefur verið á mun nýja stjórnarskráin tryggja jöfnuð, heið- arleika, virðingu og réttlæti í samræmi við þjóðfund- inn og fjölmarga framtíðarsýn, auk þess að tryggja fulla vinnu og heilbrigði og margt annað sem hug- urinn girnist. Það mun þýða að verði einhverjum ekki sýndur heiðarleiki, virðing, réttlæti, jafnrétti og kær- leikur, og tryggð heilsa og full atvinna og allt hitt að samþykktri stjórnarskrá, þá fer sá sami í mál fyrir héraðsdómi, vísar í plaggið og nær í það sem upp á vantar. Og eftir því sem tækninni fleygir fram geta menn vísast síðar fengið slíkar kvartanir afgreiddar í heimabankanum sínum. En af hverju vantar eitt? Hvar er ótvírætt ákvæði sem ekki verður hægt að fara í kringum: Hrun er bannað. Af hverju er sjálft tilefnið ekki nefnt? Væri það ekki öruggara? Og hvað með skafrenning? Morgunblaðið/RAX 2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.