Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2012
F
ólkið býr í landinu en býr landið í
fólkinu? Er það ekki óhjá-
kvæmilegt, alltént hér við nyrstu
voga, þar sem náttúran hefur af-
gerandi skoðun á öllu sem fram
fer í mannheimum. Fer um okkur mjúkum
höndum, eigi það við, en gengur af göflunum
sé henni misboðið. Jafnvel á sama deginum,
sama klukkutímanum, sé því að skipta.
Fólk og land er yrkisefni Ragnheiðar Arn-
grímsdóttur ljósmyndara í fyrstu bókinni
sem hún sendir frá sér og svo sem sæmir
efninu er þar engin lognmolla. „Þetta er bú-
ið að vera ótrúlegt ævintýri!“ segir hún í
formála. „Við erum öll svo ólík en þó svo
lík.“
Orð að sönnu.
Hafði næði á nóttunni
Ragnheiður hefur lengi haft áhuga á ljós-
myndun og fyrir fáeinum árum lét hún
drauminn rætast og festi kaup á alvöru
myndavél. Til að byrja með tók hún mest
kvöld- og næturmyndir af sínu nánasta um-
hverfi. „Ég á mörg börn og fann helst næði
á þeim tíma sólarhringsins,“ segir hún bros-
andi. „Ég fékk jákvæð viðbrögð við þessu
áhugamáli frá mínum nánustu og hélt því
áfram að taka myndir.“
Ragnheiður skráði sig í fjarnám við New
York Institute of Photography og kveðst
hafa lært mikið á því námi. Myndir hennar
af norðurljósunum dansandi yfir Íslandi
vöktu mikla athygli samnemenda og seldi
hún nokkrar slíkar í kjölfarið til Kína. „Það
var mjög skemmtilegt og um leið mikil
hvatning.“
Smám saman breyttust myndir Ragnheið-
ar, fólk varð meira áberandi, og þegar hún
hóf nám í Ljósmyndaskólanum fór hún að
hlúa betur að því hugðarefni sínu. Gerði
meðal annars seríu um skegg.
Hún tók líka þátt í að stofna ljós-
myndahóp, ásamt sex öðrum, sem kallar sig
Imagio og fer nokkrum sinnum á ári saman
á stúfana til að taka myndir.
Bara brot af listanum
Útskriftarverkefni Ragnheiðar frá Ljós-
myndaskólanum á síðasta ári hverfðist um
fólk og segja má að það hafi verið upptakt-
urinn að bókinni. „Ég byrjaði að mynda
markvisst fyrir bókina fyrir um ári. Kom
mér upp lista yfir áhugavert fólk en þegar
upp var staðið komst ég ekki yfir nema brot
af honum. Ég gæti gert margar bækur í við-
bót og í raun heila bók um hverja og eina
manneskju sem ég hef myndað.“
Fyrirsæturnar í bókinni koma úr ýmsum
áttum, allt frá föður ljósmyndarans og syst-
ur yfir í fólk sem hún þekkti ekki neitt áður.
„Ég spurðist víða fyrir um forvitnilegt fólk
og fékk fín viðbrögð. Stundum vildi fólkið
ekki láta mynda sig en benti í staðinn á ein-
hvern annan. Þetta var mjög skemmtileg
keðjuverkun.“
Mismikill tími fór í myndatökurnar. Suma
þurfti Ragnheiður að hitta oftar en einu
sinni. „Fólk er misfljótt að opna sig, sér-
staklega það sem þekkti mig ekki fyrir. Það
er ósköp eðlilegt,“ segir Ragnheiður.
Sitthvað skondið kom upp á, til að mynda
hélt eitt viðfangsefnið að Ragnheiður væri
ekki íslensk. Útlitið útilokaði það.
Fiskuð upp úr sjónum
Í sum verkefnanna kom Ragnheiður á sjó-
flugvél og segir hún það gjarnan hafa brotið
ísinn. „Ef það léttir ekki andrúmsloftið að
þurfta að fiska ljósmyndarann upp úr sjón-
um veit ég ekki hvað gerir það,“ segir hún
hlæjandi.
Ragnheiður flýgur sjálf enda með atvinnu-
flugmannspróf og stundum var faðir hennar,
Arngrímur Jóhannsson, með í för.
Vel fór á með Ragnheiði og viðfangsefnun-
um og lítur hún á mörg þeirra sem vini sína
í dag.
Stuttir textar fylgja hverju viðfangsefni og
eru þeir eftir systur Ragnheiðar, Sigrúnu
Örnu Arngrímsdóttur. Sú síðarnefnda var
ekki viðstödd myndatökurnar og margt af
fólkinu í bókinni hefur hún aldrei hitt. „Sig-
rún systir er ótrúleg. Ég henti bara ein-
hverjum stikkorðum í hana, blaðraði bara og
blaðraði, og úr urðu þessir frábæru textar.
Sigrúnu tekst að segja alveg ótrúlega margt
í stuttu máli. Ég skil ekki hvernig hún fer
að þessu,“ segir Ragnheiður.
„Ætli ég sé ekki bara orðin svona þjálfuð í
að skilja þig,“ svarar Sigrún Arna að bragði.
Þær skellihlæja.
Kynntist landinu
Enda þótt vel hafi tekist til við textagerðina
langar Sigrúnu Örnu eigi að síður að vera
með í för verði framhald á verkefninu.
Kynnast fólkinu sem hún skrifar um per-
sónulega. Systurnar geta þá skipst á stýrinu
enda er Sigrún Arna með einkaflugmanns-
próf.
Fólkið í landinu & landið í fólkinu er bæði
ætluð Íslendingum og útlendingum en allir
textar í bókinni eru bæði á íslensku og
ensku. Þýðingu önnuðust Michael Jón
Clarke og Jóhann Axel Andersen. Umbrot
og hönnun var í höndum Írisar Blöndal.
Ragnheiður hefur flogið vítt og breitt um
heiminn en minna séð af Íslandi – fram að
þessu verkefni. „Þetta var frábært tækifæri
til að skoða landið okkar og kynnast fólkinu
sem í því býr. Ég naut þess í botn að koma
á staði sem maður keyrir að öllu jöfnu
framhjá eða flýgur yfir. Þessi bók er óður til
fólksins í þessu landi.“
Það hefur, að sögn Ragnheiðar, verið
Óður til
þjóðar
FÓLKIÐ Í LANDINU & LANDIÐ Í FÓLKINU ER YFIRSKRIFT FYRSTU
LJÓSMYNDABÓKAR RAGNHEIÐAR ARNGRÍMSDÓTTUR. ÞAR GETUR
AÐ LÍTA ÞVERSKURÐ ÞESSARAR ÞJÓÐAR MEÐ AUGUM RAGNHEIÐAR
EN SYSTIR HENNAR, SIGRÚN ARNA, BER ÁBYRGÐ Á TEXTUNUM.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Systurnar Ragnheiður og
Sigrún Arna Arngrímsdætur
standa að bókinni.
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
-1
23
54
1
Afsláttur al
og að auki
15 Vildarpu
á hverjar 1.000 kr. eða um 150 punktar á
1. Sérafslættir (-10 kr. í fyrsta skipti, -10 kr. á afmælisdaginn og -15 kr. í 10. hvert skipti þegar dælt er 25 l eða meira) koma ekki
2.Til að safna Vildarpunktum Icelandair þarf lykillinn að vera tengdur við Visa eða American Express Vildarkort Icelandair. Ein