Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 59
2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Sérvitringar sáu að fyrir urðu fuglar (11) 4. Urg og ráf í kjarri sem felur ávöxt. (8) 9. Fyrstu gerðir af ælum. (7) 11. Veikur og þrjóskur með dauðan. (7) 13. Enginn brjálaður fær fals og rugl frá gáskafullum. (12) 15. Kraftur og einföld eyðilegging koma á eftir orsök. (9) 16. Andskotarnir taka skorpur. (6) 17. Stærð lendir í sóun vegna endurnýjunar. (5) 19. Hrek daður með bauju. (7) 21. Smá spili með það að vera ekki lengi. (10) 23. Láta fljóta áfram og sjá fyrir. (10) 26. Ó, enga fulla í tvöföldum blönduðum vökva. (9) 27. Hinu sýni ólíkt. (8) 30. Tíu gull renna saman í form. (6) 32. Getur barið fengið hálft lungað í samkomulagi. (10) 33. Dýrgripur væri fær um að leiða til góðs mats. (9) 34. Hol fjármálaráðherra fyrir gjöld? (8) 35. Hugarfar hrós á þaki. (7) 36. Fuglar eru engir með Ella. (9) LÓÐRÉTT 1. Ekki margmannaðar fá krullaðar. (9) 2. Teymi nýríkra hefur verið komið til þroska. (7) 3. Mögulegt sníkjudýrt er seinlátt. (7) 5. Frekur þvælist um fyrstu merki eftir skóflu. (7) 6. Skipulag tveggja stórra mynda plöntu. (7) 7. Sjá kassann með fuglinum. (5) 8. Gulltalentan missir Etnu nokkurn spöl. (8) 10. Skæli vélrænt yfir búnaði. (7) 12. Hvítta fisk. (7) 14. Málmblanda gerð úr nýju Ag. (8) 18. Eitranirnar flækjast fyrir þeim sem hafna. (11) 20. Faxi fær öll til að snúast við með aftökutæki. (7) 22. Umlir um heitan, upp á frönsku, í athugunum. (10) 23. Orðfimi í flugi? (10) 24. Brauð frá himni gef einum með yfirlæti (9) 25. Að fimm entist einn kristinn. (10) 28. Lánastofnun með hlutverk þvottalérefts. (8) 29. Stjórnarfar sem er kvalræði. (6) 31. Réðst smágerð rigning með útblástursopi. (7) Klassíska skákin“ leið undirlok við aldamótin 2000 ognýir spámenn hafa komið fram sem skara fram úr í því að nýta kosti tölvutækninnar: Kaz- imdsanov, Karjakin, Nakamura, Anand, Kramnik, Topalov og Frakkarnir. Þetta er umfjöllunar- efnið öðrum þræði í nýrri bók úkra- ínska stórmeistarans Vladimirs Tukmakovs, Modern chess prep- aration. Í fyrri helmingi bókarinnar dregur Tukmakov fram dæmi frá fyrri tíð sem kunna að hafa skotist fram hjá okkur: Pólverjinn Akiba Rubinstein var snjall í hróks- endatöflum – það vissum við, en hann var líka að mati höfundar langt á undan sinni samtíð að flestu öðru leyti. Tvær heimsstyrjaldir léku hann grátt, sú fyrri hindraði einvígi við Emanuel Lasker um heimsmeistaratitilinn. Fengin reynsla og kunnátta gat verið dýru verði keypt í þá daga. Nú eru leyni- vopn skákarinnar þaulprófuð með samkeyrslu fjölmargra forrita. Æf- ingaaðstaða heimsmeistarans minn- ir meira á tölvuver en nokkuð ann- að. Þrátt fyrir tæknina ráðleggur Tukmakov ungum skákmönnum að sundurgreina skákir og æfa sig án þess að hafa tölvu við höndina. Í einum kafla bókarinnar fjallar hann um úrslitaskákir. Nokkur dæmi eru tekin til meðferðar og Tukmakov veltir við nokkrum steinum af skák- ferli Spasskís: fyrir lokaskákina í áskorendaeinvíginu við Paul Keres árið 1965 var Spasskí yfir, 5:4, og dugði jafntefli til að vinna einvígið. Ýmsar rólegar og traustar byrjanir virtust sniðnar til þess að ná þeim úrslitum. En þeir voru báðir komn- ir langt að og Spasskí vissi að upp var runnin ögurstund á ferli Keres. Hann ákvað að koma Eistlend- ingnum á óvart og tefla kóngs- indverska vörn, afar krefjandi og flókna byrjun sem hann hafði sjald- an beitt áður. Við undirbúning fyrir skákina gat hann sér til um það af- brigði sem Keres valdi og sendi jafnframt inn þau skilaboð til hins vígmóða andstæðings að nú væru þrenn úrslit möguleg; sigur, tap eða jafntefli. Eins og 15. leikur hans leiðir í ljós fór Spasskí aldrei „úr karakter“. Skákin sem hér fer á eftir er þrungin stigmagnaðri spennu: Riga 1965: Paul Keres – Boris Spasskí Kóngsindversk vörn 1.d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f4 c5 6. d5 0-0 7. Rf3 e6 8. Be2 exd5 9. cxd5 b5!? Þessi óvænti leikur byggist á hugmyndinni 10. Bxb5 Rxe4 11. Rxe4 Da5+ o.s.frv. Í dag er talið traustara að leika 9. … Bg4 eða 9. … He8. 10. e5 dxe5 11. fxe5 Rg4 12. Bf4 Skarpara er 12. Bg5 með hug- myndinni 12. … f6 13. exf6 Bxf6 14. Dd2. 12. … Rd7 13. e6 fxe6 14. dxe6 Hxf4 15. Dd5! Hótar 16. Dxa8 og 16. e7+. 15. … Kh8!? Gefur hrókinn. Hann gat leikið 15. … Bb7 16. Dxb7 Rb6 og staðan má heita í jafnvægi. Miðað við stöð- una í einvíginu hefði þetta verið eðlilegra framhald. 16. Dxa8 Rb6 17. Dxa7 Bxe6 Hvítur er skiptamun yfir en léttu menn svarts standa allir vel. „Ho- udini“ metur stöðuna jafna. 18. 0-0 Re3 19. Hf2 b4 20. Rb5 Afturábak hentaði ekki við þess- ar kringumstæður, 20. Rd1var samt traustara. 20. …Hf7 21. Da5 Db8! Rólegu leikirnir eru oft erfiðastir í flóknum stöðum. 22. He1 Bd5 23. Bf1 Rxf1 24. Hfxf1 Rc4! 25. Da6 Hf6! 26. Da4 Rxb2 27. Dc2 Dxb5 28. He7 Eða 28. Dxb2 Hxf3! og vinnur. 28. … Rd3 29. De2 c4 30. He8 Hf8 31. Hxf8 Bxf8 32. Rg5 Bc5 33. Kh1 Dd7 34. Dd2 De7 35. Rf3 De3 – og Keres gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Undirbúningur og úrslitaskákir Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðilinn í um- slagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg- ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 2. desember rennur út á hádegi 7. des- ember. Nafn vinningshafa er birt í Sunnudagsblaði Morg- unblaðsins 9. desember. Vinningshafi krossgátunnar 25. nóvember er Erla Hrönn Ásmundsdóttir, Melateig 41 á Akureyri. Hún hlýtur í verðlaun bókina Ár kattarins eftir Árna Þór- arinsson. JPV gefur bókina út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.