Þjóðviljinn - 15.03.1988, Page 18
Engan
skatt
á mat
og menningu
Ríkisstjórnin er aðeins 8
mánaða gömul en á
þessum stutta tíma
hefur hún náð því tví-
vegis að skattleggja brýnustu
nauðþurftir almennings.
í haust kom fyrsti matarskatt-
urinn sem hækkaði allar matvör-
ur aðrar en mjólk, kjöt, fisk og
egg, um 10% Um áramótin
hækkaði síðan skatturinn á allar
matvörur upp í 25%, en á ýmsum
vörutegundum eru skattaálög-
urnar faldar til bráðbirgða með
hækkun niðurgreiðslna á móti,
t.d. á mjólkurafurðum og ýmsum
kjöttegundum. Þessar miklu
flóðbylgjur verðhækkana á brýn-
ustu nauðsynjavörum hafa magn-
að upp mikla verðbólgu, skert
kaupmátt launa, torveldað kjara-
samninga og vakið réttláta reiði
fólks um allt land.
Kjaraskerðing
En líklega gera ekki allir sér
grein fyrir því, að þriðji matar-
skatturinn er eftir. Fjármálaráð-
herra hefur marglýst því yfir, að
aukning niðurgreiðslna hafi að-
eins verið til bráðabirgða. Land-
búnaðarvörur hækka í verði fjór-
um sinnum á ári í takt við kostn-
aðarhækkanir í landbúnaði og al-
menna verðbólgu. Ef niður-
greiðslur eru ekki auknar jafnóð-
um og búvöruverð hækkar, verða
meiri hækkanir á þessum vörum
en öðrum. Söluskattur á mjólk,
skyri, smjöri og dilkakjöti er ekki
enn kominn fram og aðeins að
hálfu leyti á ýmsum öðrum
vörum, eins og t.d. osti, kjúk-
lingum og fiski. Flest bendir til
þess að læða eigi þessum skatti
yfir svo lítið beri á með þeirri
lúmsku aðferð að hækka ekki
niðurgreiðslur í takt við aðrar
verðlagsbreytingar. Pessi þriðji
matarskattur felur í sér mikla
kjaraskerðingu ekki síður en þeir
matarskattar sem þegar eru
komnir fram, enda ýmsar helstu
nauðþurftir heimilanna sem
þarna eiga í hlut, en skatturinn
flæðir ekki yfir á einum degi eins
og í tvö fyrri skiptin, heldur leggst
á vörurnar smám saman á þriggja
mánaða fresti.
í áratugi hefur verið forðast að
skattleggja brýnustu lífsnauð-
synjar. Kartöflur og mjólk hafa
aldrei verið skattlagðar fyrr og
fiskur ekki síðan í viðreisnar-
stjórninni á sjöunda áratug.
Skattur á grænmeti, ávexti og
brauð var felldur niður 1975 og
vinstri stjórnin felldi niður allan
skatt af matvælum 1978.
Enginn hefur sýnt fram á að
skattleysi matvara hafi valdið
miklum skattsvikum. Vissulega
voru til takmarkatilvik sem
sköpuðu vandamál t.d. að heitur
matur flokkaðist undir veitingar
og var skattlagður en kaldur
matur ekki.
En nýja kerfið býður líka upp á
allskyns vandamál og vafatilvik.
Eftir sem áður eru undanþágur
frá söluskatti fjöldamargar.
Prentað mál er skattað í bók en
ekki skattað í tímariti. Og því
vaknar spurningin: Hvenær er
tímarit bók og hvenær ekki? Sá
sem lætur nudda á sér skrokkinn
er stundum skattlagður og stund-
um ekki. Allt eftir aðstæðum.
Þeir sem borga fyrir ljós úr sólar-
lömpum eru stundum skattlagðir
og stundum ekki. Fiskur og kjúk-
lingar hafa ekki áður verið niður-
greiddir.
Miklu flóknara og margfaldara
niðurgreiðslukerfi en áður sem
auk þess verður síbreytilegt fyrst
um sinn veldur því að heildar-
kerfið verður síst einfaldara en
það sem fyrir var.
Refsar þeim tekjulágu
Jón Baldvin hefur helst haldið
því á lofti sér til varnar, að Svíar
hafi ekki viljað hafa lægri sölu-
skatt á matvælum. Hins vegar
getur hann ekki neitað því að í
flestum öðrum Evrópulöndum er
matvælum hlíft við hæsta skatti.
Skattleysi matvara er hentug að-
ferð til að bæta kjör þeirra tekju-
lægstu. Stighækkandi tekju-
skattur sem hlífir lægstu tekju^
hópum hefur hliðstæð áhrif. í
Svíþjóð er skattur á háar tekjur
miklu þyngri en hér og tekju-
skatturinn miklu stærri hluti rík-
istekna en á Islandi en veltu-
skattur á vörusölu léttbærari. Þar
er því ekki jafnrík nauðsyn og hér
að styrkja hag hinna lægst-
launuðu með skattleysi matvara.
Alagning matarskattanna ein-
faldar ekki kerfið. En hún er hins
vegar afar einföld leið til að afla
tekna. Að sjálfsögðu voru marg-
ar aðrar leiðir til þess. Púsundir
fyrirtækja skila miklum hagnaði
og borga þó engan tekjuskatt.
Skattur á stóreignir er mjög létt-
vægur hér á landi og vaxtatekjur
skattfrjálsar. En ríkisstjórnin
valdi grófustu leiðina. Einungis
forhert hægri stjórn lætur sér til
hugar koma að velja þá leið.
Alþýðubandalagið varaði
margsinnis við því á sl. vetri að
matarskattar væru yfirvofandi ef
hægri stjórn yrði ráðandi á þessu
kjörtímabili. Við beittum okkur
fyrir því á sínum tíma að afnema
matarskatt af matvælum og eitt af
kjörorðum okkar fyrir seinustu
kosningar var: Engan skatt á mat
og menningu!
Fólk verður að átta sig á því, að
matarskattarnir eru þáttur í
stefnu sem verðlaunar þá fjár-
sterku með ýmsum aðferðum,
t.d. með okurvöxtum á fjármagni
en refsar aftur á móti þeim sem
tekjulágir eru bæði með því að
hækka skatta þeirra og þrýsta
niður launakjörum þeirra.
Þingtíðindi - Sífla 18
Ragnar
Arnalds
Er
öllum
Ijóst
aó
þriðji
matarskatturinn
er eftir?