Morgunblaðið - 04.03.2013, Side 2

Morgunblaðið - 04.03.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Skúli Hansen skulih@mbl.is „Já, við höfum alveg verið reiðubúin til að skoða einhverja slíka leið en við ætl- um að gefa okkur tíma til þess núna að fara yfir hvernig málið lítur út í heild sinni og reyna í framhaldinu að finna einhverjar leiðir,“ segir Katrín Jak- obsdóttir, formaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, aðspurð hvort vilji sé til þess af hennar hálfu að áfangaskipta stjórnarskrármálinu og reyna að ná í gegn ákveðnum ákvæð- um þess, t.d. auðlindaákvæðinu, ef ekki næst að klára málið á kjörtíma- bilinu. Að sögn Katrínar hefur mikill vilji verið á meðal Vinstri-grænna til að ná árangri í stjórnarskrármálinu. Þing- flokkur VG fundaði í gær um mögu- legar leiðir í málinu og mun að sögn Katrínar funda aftur um það í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins fól þingflokkur VG í gær formanni og þingflokksformanni flokksins að ræða við forystumenn annarra flokka um næstu skref í stjórnarskrármálinu. Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, greindi frá því á bloggsíðu sinni í gær að stuðnings- menn nýrrar stjórnarskrár ættu að taka undir málamiðlunarhugmynd Árna Páls Árnasonar, formanns Sam- fylkingarinnar, um að áfangaskipta málinu. „Með henni getum við fengið í gegn ákvæði um þjóðarauðlindir og beint lýðræði,“ sagði Magnús Orri. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Al- þingis, vildi ekki tjá sig um málamiðl- unartillögu Árna Páls í gær. Þá náðist ekki í Jóhönnu Sigurðardóttur for- sætisráðherra við vinnslu fréttarinnar. Til í að skoða áfangaskiptingu  Katrín segir VG hafa mikinn vilja til að ná árangri í stjórnarskrármálinu Fáskrúðsfjörður | Hrognaskurður er hafinn hjá Loðnu- vinnslunni á Fáskrúðsfirði. Hoffell SU 80, skip fyrirtæk- isins, landaði í fyrrinótt 1.000 tonnum og í gær var verið að landa 1.500 tonnum úr Júpíter frá Götu í Færeyjum, sem einnig fara í skurð. Frysting á hrognum er hafin og er hrognafylling góð, að sögn Þorra Magnússonar verk- stjóra. Fryst hafa verið 1.000 tonn af loðnu það sem af er vertíð; 500 tonn fyrir Japan og 500 á Rússlandsmarkað. Í heild hefur Loðnuvinnslan tekið á móti 19.000 tonnum af loðnu. Endurbætur hafa verið miklar hjá fyrirtækinu, s.s. pökkunarkerfi fyrir hrognavinnslu. Auk þess hefur verið settur rafskautaketill í verksmiðjuna til gufuframleiðslu sem gengur vel þrátt fyrir að ekki hefur fengist að nota ketilinn á fullum afköstum vegna rafmagnsskömmtunar til fyrirtækisins. Ný vatnslögn var lögð samhliða raf- strengnum, svo nóg er vatn til verksmiðjunnar. Loðnuvinnslan hefur tekið við 19 þúsund tonnum Morgunblaðið/Albert Kemp Loðnan Starfsmenn Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði á fullu við hrognaskurð í vinnslusalnum í gær.  Skurður hafinn og hrogna- fylling góð  1.000 tonn fryst Í reglubundnu eftirliti með kjúk- lingaslátrun kom fram rökstuddur grunur um að salmónella fynd- ist í einum kjúk- lingahópi Reykjagarðs. Umræddur kjúk- lingahópur var rannsakaður í tvígang áður en kjúklingunum var slátrað, en við þær skoðanir fundust engin merki um sýkingu. Sam- kvæmt upplýsingum voru sýni send í greiningu til Tilraunastöðvar Há- skóla Íslands í meinafræði að Keld- um. Verða þau send til staðfestingar á sýkladeild Landspítalans. Bíða niðurstöðu sýkladeildar „Stefna fyrirtækisins er að dreif- ing sé stöðvuð tafarlaust við fyrstu viðvörun um smit af þessu tagi,“ segir Jarle Reiersen, framleiðslu- stjóri hjá Reykjagarði. „Ef grun- urinn er rökstuddur innköllum við vöruna og fjarlægjum afurðir úr verslunum,“ segir Jarle. „Því næst er beðið eftir mögulegri staðfest- ingu. Niðurstaða rannsóknar sýkla- deildar mun væntanlega liggja fyrir í lok vikunnar.“ Reykjagarður hefur nú þegar innkallað afurðir með rekj- anleikanúmerinu 002-13-04-1-04 í varúðarskyni. Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekj- anleikanúmeri eru beðnir um að skila vörunni til viðkomandi versl- unar. Ekki er uppi grunur um að aðrar vörur Reykjagarðs séu sýktar. gudrunsoley@mbl.is Kjúkling- ar inn- kallaðir Grunur kviknaði um salmónellusmit  Grunur uppi um salmónellusmit Drengurinn sem lést í bílveltu skammt frá Kotá í Norðurárdal í Skagafirði á föstudag hét Blængur Mikael Bogason. Hann var fæddur árið 2001 og var ný- lega orðinn 12 ára. Blængur Mikael var búsettur að Strandgötu 25b á Akureyri. Lést í slysinu í Skagafirði Óheimilt verður að breyta land- notkun á landbúnaðarsvæði sem er fimm hektarar eða stærra, nema leyfi nýsköpunar- og atvinnuvega- ráðherra liggi fyrir, verði frumvarp til breytinga á lögum númer 81/2004 að lögum, en frumvarp ráðherra þess efnis liggur nú fyrir Búnaðar- þingi til umsagnar. „Ef land undir fimm hekturum að stærð telst sérlega gott ræktunar- land og hentar vel til landbúnaðar eða vegna legu sinnar telst að öðru leyti mikilvægt út frá matvælafram- leiðslu skal jafnframt óskað leyfis ráðherra áður en breyting á skipu- lagi er heimiluð,“ segir í frumvarps- drögunum sem lögð voru fyrir ríkis- stjórn sl. föstudag. Þar segir einnig að ráðherra skuli leggja fyrir Al- þingi til samþykktar fyrir 31. desem- ber 2015 tillögu til þingsályktunar um nýtingu landbúnaðarlands á Ís- landi – svokallaða „landnýtingar- stefnu stjórnvalda“ til 12 ára. Skal landnýtingarstefnan endurskoðuð á fjögurra ára fresti. ipg@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jarðir Leyfi ráðherra gæti þurft fyrir breyttri landnotkun. Landnýt- ing á hendi ráðherra „Líkurnar á því hafa aukist en það er ekkert búið að ákveða það endanlega,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, aðspurður hvort hann hyggist leggja fram vantrauststillögu sína gegn ríkisstjórninni að nýju, í ljósi ummæla Árna Páls Árna- sonar, formanns Samfylking- arinnar, um að stjórnarskrár- málið klárist ekki á þessu kjörtímabili. Þór er félagi í stjórnmálaaflinu Dögun, sem hyggst bjóða fram lista í næstu þingkosningum. Aðspurður hvort Dögun muni gefa baráttuna fyrir nýrri stjórnarskrá upp á bátinn, ef mál- ið dagar uppi á þinginu, segir Þór: „Nei, þvert móti. Það er þá eitthvað sem fjórflokkurinn verð- ur að svara fyrir í kosningunum.“ Þorvaldur Gylfason, vaktstjóri Lýðræðisvaktarinnar, tekur í sama streng. „Erindi Lýðræðis- vaktarinnar verður enn ríkara ef Alþingi fellur á prófinu,“ segir Þorvaldur. » 12 Líkurnar á vantrausti aukast MUNU BERJAST ÁFRAM FYRIR NÝRRI STJÓRNARSKRÁ Þorvaldur Gylfason Þór Saari „Það er vitlaust veður,“ sagði Guðmundur Krist- jánsson, hafnarstjóri á Ísafirði, í gærkvöldi. Heimaflotinn á Ísafirði var þá allur kominn til hafnar fyrir utan einn togara sem var á veiðum fyrir austan. Togarinn Stefnir ÍS var síðastur í land í gær og nokkuð klakabrynjaður. Veðurstofan spáir norðaustan hvassviðri eða stormi næstu daga með snjókomu og frosti, eink- um norðan til. Veturinn er því mættur á ný. Flotinn leitaði í höfn á Ísafirði undan óveðrinu Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.