Morgunblaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 4. MARS 63. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Nafn drengsins sem lést
2. Aftur í faðm fantsins
3. 13 ára leigumorðingi fannst látinn
4. Algjör umskipti í veðrinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í dag hefst menningarvika mán-
aðarins á Seltjarnarnesi með tón-
leikum á bókasafninu sem hefjast kl.
17.30. Fiðluleikarinn Margrét Dóro-
thea Jónsdóttir, sellóleikarinn Kristín
Edda Frímannsdóttir og kennarinn
Halldór Víkingsson koma fram.
Menningarvika
á Seltjarnarnesi
Sópransöng-
konan Arndís
Halla Ásgeirs-
dóttir er næsti
gestur hádeg-
istónleika í Hafn-
arborg. Yfirskrift
tónleikanna er
Sönn ást … eða
ekki? og mun Arn-
dís Halla meðal annars syngja aríur
úr Don Pasquale eftir Donizetti, Leð-
urblökunni eftir Strauss og Ævintýr-
um Hoffmanns eftir Offenbach. Tón-
leikarnir hefjast kl. 12.00.
Arndís Halla sópran
syngur í Hafnarborg
Hörður Áskelsson, organisti Hall-
grímskirkju, verður með hádeg-
istónleika í Hafn-
arfjarðarkirkju á
morgun, þriðju-
dag, og hefjast
þeir kl. 12.15.
Þá leikur
hann verk eft-
ir Johann Seb-
astian Bach á
bæði orgel
kirkjunnar.
Hörður með tónleika
í Hafnarfjarðarkirkju
Á þriðjudag Norðaustan 13-23 m/s, hvassast syðst. Él á N- og A-
landi, annars úrkomulítið, en snjókoma við S-ströndina síðdegis.
Frost 5 til 13 stig, kaldast fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðaustanátt, 15-23 m/s víða um
land með snjókomu, en úrkomulítið S-lands. Kólnandi veður, frost
2 til 10 stig síðdegis, kaldast NV-lands.
VEÐUR
„Þetta er búinn að vera frá-
bær vetur, aðeins fimm tap-
leikir af 31 leik. Þetta hefur
verið bara nokkuð skemmti-
legt,“ segir Hlynur Bærings-
son, landsliðsmaður í körfu-
bolta, í samtali við Morgun-
blaðið, en þeir Jakob Örn
Sigurðarson urðu á föstu-
daginn var sænskir deild-
armeistarar með Sunds-
vall Dragons þrátt fyrir að
enn séu tvær umferðir eft-
ir. »1
Sundsvall tryggði
sér fyrsta sætið
Aðalheiður Rósa Harðardóttir úr
Breiðabliki og Elías Snorrason úr
Karatefélagi Reykjavíkur urðu um
helgina Íslandsmeistarar í kata en
mótið fór fram í Hagaskóla. Að-
alheiður stendur
framarlega í heim-
inum í greininni og
sigraði þriðja árið
í röð. Elías vann
eftir þriggja ára
bið en hann hefur
einu sinni áður fagnað
sigri en var þá einungis
sextán ára gamall.
Breiðablik var afar
sigursælt á mótinu og
vann félagið til að
mynda liðakeppnina
bæði í karla- og kvenna-
flokki. »2
Blikar voru sigursælir
í Hagaskólanum
„Þetta er ótrúlega ljúfur og góður en
jafnframt vanmetinn titill. Þetta er
nefnilega sá erfiðasti að vinna og það
er ótrúlegt afrek að hafa nú tekið
hann fjögur ár í röð,“ sagði Hrafn-
hildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði Vals,
meðal annars við Morgunblaðið eftir
að liðið tryggði sér deildarmeistara-
titilinn í handknattleik fjórða árið í
röð. »4
Vanmetinn titill að mati
Hrafnhildar fyrirliða
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það var farið að bera á aukningu fyr-
ir árið 2008 en eftir hrunið hefur
fjölgunin verið enn meira áberandi,“
segir Geir A. Guðsteinsson, formaður
Sambands íslenskra karlakóra, SÍK,
en mikil gróska á sér stað í starfi
karlakóra með líflegu tónleikahaldi í
hverri viku um allt land.
Bæði er að nýir karlakórar hafa
tekið til starfa og söngmönnum hefur
fjölgað hjá starfandi kórum. Einnig
hefur meðalaldur söngmanna lækkað
og sífellt yngri menn koma inn í kór-
starfið.
Innan SÍK eru 26 kórar gildir með-
limir. Að sögn Geirs eru fleiri starf-
andi og sumir hafa sótt um aðild að
sambandinu, en uppfylla þarf nokkur
skilyrði til að fá inngöngu.
Áætlar Geir að um 1.500 karlar
syngi í karlakórum um allt land. Eru
þá ótaldir þeir fjölmörgu sem syngja í
kirkjukórum og öðrum blönduðum
kórum. „Án þess að ég hafi kynnt
mér það sérstaklega þá tel ég nær
öruggt að fjölgun hafi einnig átt sér
stað hjá kvennakórum og blönduðum
kórum. Það er gaman að syngja í kór
og fólk sækir í þennan félagsskap,“
segir Geir.
Hann segir nýja kórfélaga yfirleitt
vera á aldrinum 25-40 ára en dæmi
séu um pilta undir tvítugu í sumum
kórum. Einnig hafi eldri kórmenn
byrjað á ný eftir smáhlé. „Vinnudag-
urinn er kannski ekki eins langur og
áður og menn hafa meiri tíma aflögu
fyrir söng og annað félagsstarf.“
Nýir kórar stofnaðir
Sem dæmi um nýja kóra nefnir
Geir Karlakór Grafarvogs og Karla-
kór V-Skaftfellinga í Vík, sem stofn-
aðir voru 2011, Karlakórinn Kára,
sem stofnaður var 2007 í Stykkis-
hólmi og Grundarfirði, og Drengja-
kór Hafnarfjarðar, sem stofnaður var
2008 og skipaður „eldri“ drengjum.
Þá er Karlakór Kópavogs ekki gam-
Karlakórar í mikilli uppsveiflu
Fjölgun í starfandi karlakórum og
nýir bætast við Söngmenn yngjast
Ljósmynd/Geir A. Guðsteinsson
Karlakórar Langholtskirkja er eftirsóttur tónleikastaður og þar komu þrír karlakórar saman nýlega, Karlakór Reykjavíkur, Kópavogs og Kjalnesinga.
Geir Guðsteinsson syngur með
Karlakórnum Þröstum í Hafn-
arfirði og hefur gert það frá
2002, hafði þar áður sungið í
kórum á Akureyri með hléum frá
1977. Þrestir eru elsti starfandi
karlakór landsins, stofnaður árið
1912. Fjórradda söngur karla á
sér yfir 150 ára sögu hér á landi
en hins vegar er talið að karla-
kórshefðin sé elst á Akureyri þar
sem söngfélagið Hekla
var stofnað upp úr
aldamótunum 1900.
Fór sá kór í söngferð
til Noregs 1905. Vitað
er um hátt í 60 karla-
kóra sem hafa verið
stofnaðir á
rúmri öld.
Yfir 150 ára
gömul saga
KARLAKÓRSSÖNGUR
all, stofnaður 2002, og hefur félögum
fjölgað á tveimur árum úr 25 í nærri
50, fyrst og fremst með tilkomu nýs
stjórnanda, Garðars Cortes eldri.
Geir segir það mikinn misskilning
að karlakórar syngi bara sígild lög
eins og Brennið þið vitar og Þú álfu
vorrar yngsta land (Íslands lag). Sí-
fellt fjölbreyttari dagskrá sé tekin
upp og oft slegið á létta strengi, eins
og með flutningi á bítlalögum og öðr-
um dægurlögum, íslenskum sem er-
lendum. Einnig taki karlakórar sig til
og stofni hljómsveitir úr röðum kór-
félaga, líkt og t.d. Fóstbræður, Þrest-
ir og Heimismenn hafi gert. Vinsælt
er að taka þemu fyrir. Þannig eru
Þrestir að æfa fyrir tónleika með
ýmsum þekktum héraðslögum og
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
verður með tónleika á næstunni með
lögum Geirmundar Valtýssonar.
Hekla, samband norðlenskra
karlakóra, og Katla, samband sunn-
lenskra karlakóra, eru enn starfandi
og standa reglulega fyrir kóramót-
um. Næsta Kötlumót verður í
Keflavík á næsta ári og
Heklumót, hið 55., verður á
Akureyri árið 2016.
Geir Guðsteinsson