Morgunblaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 Miðbæjarfjör Snjóbrettaviðburðurinn Mintan 2013 var haldinn í miðborg Reykjavíkur á laugardag. Snjórinn var sóttur upp í Bláfjöll og brettafólkið sýndi listir sínar. Styrmir Kári Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, var sem kunnugt er endurkjörinn í það embætti með um 80% fylgi sem er mjög afgerandi kosning. Þetta var góður og mikilvægur sigur fyrir Bjarna. Mikið hefur mætt á Bjarna að undanförnu og reyndar frá því að hann tók við keflinu við verstu aðstæður á landsfundinum 2009 þegar flokkurinn var á sínum lægsta punkti. Hann hefur síðan legið undir ámæli vegna hrunsins, tengsla sinna við stórfyrirtæki og vegna svokallaðs Vafn- ingsmáls. Réttarhöld í Vafningsmálinu sýndu svo ekki varð um villst að allar þær skýringar sem Bjarni hafði komið með um aðkomu sína að málinu stóðust. Eftir hrun virðist það hins vegar vera skýlaus krafa kjósenda að stjórnmálamenn komi ekki nálægt rekstri fyrirtækja samhliða þingmennsku, fólk er brennt á mögulegum hagsmunaárekstrum og vill hreint borð. Hanna Birna Kristjánsdóttir var kosin varaformaður flokksins á landsfundinum með glæsilegri kosningu. Mér þykir Hanna Birna sýna þarna í verki hvernig hún hugsar sem stjórnmálamaður og gætu margir tekið hana sér til fyrirmyndar. Mottó Hönnu Birnu er ekki hvað getur Sjálfstæðisflokk- urinn gert fyrir mig heldur hvað get ég gert fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Framboð hennar styrkir mjög forystusveit flokksins og ég er viss um að þau Bjarni munu saman mynda sterka og samhenta forystu sem skilar ár- angri fyrir fólkið í landinu. Hlutur kvenna Einhver helstu tíðindi landsfundarins eru þau að konur voru kosnar formenn í sjö mál- efnanefndum af átta. Glæsileg útkoma kvenna í nýliðnum prófkjörum Sjálfstæðisflokksins sýna líka greinilega að konur munu koma meira að ákvarðanatöku og for- ystuhlutverki innan flokksins sem utan en nokkru sinni. Enda sagði formaður flokks- ins skýrum orðum í setning- arræðu landsfundar að flokk- urinn muni að sjálfsögðu gæta þess að hlutur karla og kvenna úr röðum sjálfstæðismanna verði jafn þegar kemur að rík- isstjórnarmyndun. Það sem framundan er Eins og fram kemur í yfirskrift landsfund- arins, „Í þágu heimilanna“, verður áherslan fyrir komandi kosningar, 27. apríl nk., sett á heimilin í landinu og hag þeirra. Markvissar tillögur hafa verið settar fram til að koma til móts við þá sem verst fóru út úr hruninu ásamt aðgerðum sem miða að því að tryggja frelsi og framþróun í landinu. Sjálfstæð- isflokkurinn ætlar að hefja nýja sókn í at- vinnulífinu, eyða atvinnuleysi og stækka þjóðarkökuna, svo allir landsmenn geti feng- ið meira í sinn hlut. Það er ekki yfirboð lof- orða án innistæðu heldur trú á að sjálfstæð- isstefnan sé einmitt sú stefna sem þjóðin þarf á að halda núna. Bjartsýn, framfara- sinnuð, jafnréttissinnuð og sanngjörn. Eftir Elínu Hirst »Ég er viss um að Bjarni og Hanna Birna muni mynda sterka og samhenta forystu sem skilar árangri fyrir fólkið í landinu. Elín Hirst Höfundur er frambjóðandi í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi eða Kraganum til alþingiskosninganna 27. apríl nk. Ný og sterk forysta Nýverið var eftirfarandi fyr- irsögn að finna á vef Alþýðu- sambands Íslands: „Hvað hafa Hagkaup, Kostur, Nóatún og Víðir að fela?“ Svo er bætt við að fyrrnefndar verslanir „neita allar að veita neytendum eðli- legar upplýsingar um verðlag í verslunum sínum með því að vísa verðtökufólki ASÍ út úr þeim verslunum.“ Umræddar verslanir hafa ekkert að fela í þessum efnum nema síður sé. Dagvörur eru vel verðmerktar í verslunum. Því fer fjarri að verðkannanir ASÍ gefi rétta mynd af dagvörumarkaðinum. Meðan verð- lagseftirlit sambandsins velur að kanna smá- söluverð hjá einungis hluta verslana og bera saman ólík vörumerki er augljóst að verðsam- anburðurinn gefur langt frá því raunsanna mynd af verðlaginu. Upplýsingarnar sem ASÍ miðlar til neytenda eru því afar takmarkaðar og villandi. Viðskiptavinir okkar vita vel hvað dagvaran kostar. Málið snýst ekki um það heldur að verðlagseftirlit ASÍ neitar ætíð allri samvinnu við verslanirnar um að laga og bæta aðferða- fræðina sem notuð er við þessar kannanir. Það virðist vera hagsmunapólitísk ástæða fyrir því að ASÍ hefur horn í síðu dagvöruverslana og reynir að nota málið til að gera sjálft sig breitt í augum almennings. Tökum dæmi. Neytendur vita að epli og epli er alls ekki það sama. Neytendur vita líka að súkkulaðikex og súkkulaðikex er ekki það sama. Grænar baunir frá einum framleiðanda til annars eru alls ekki fáanlegar á sama inn- kaupsverði. Þetta veit almenningur og verð- lagseftirlit ASÍ ætti að vita það líka. Þetta er einn af ásteytingar- steinunum í samskiptum ASÍ við dagvöruverslanir landsmanna. Í mörg ár hafa verslunarstjórar kvartað undan því að ASÍ sé gjör- samlega ófáanlegt til að setjast niður með forráðamönnum versl- ana til þess að sníða agnúana af umræddum könnunum. Verslunar- eigendur hafa ekkert að fela í þess- um málum, þótt ASÍ haldi öðru fram. Þeir fara aðeins fram á að kannanir séu framkvæmdar á heið- arlegan, réttlátan og faglegan hátt. Það hlaut að koma að því að fyrrgreindar verslanir gætu ekki lengur tekið þátt í könn- unum ASÍ af ofangreindum ástæðum. Kostur var fyrsta verslunin til að hætta þátttöku en á eftir fylgdu Víðir, Nettó, Nóatún og Hagkaup. Sennilega eiga fleiri eftir að bætast í hópinn ef ASÍ brýtur ekki odd af oflæti sínu og tekur þátt í friðsamlegu og jákvæðu samráði með það í huga að leysa hnökrana sem standa í vegi fyrir réttlátum og heiðarlegum könn- unum. Neytendur hljóta að eiga kröfu til þess. Ég er til hvenær sem er og er viss um að koll- egar mínir eru það einnig. Orð eru til alls fyrst. Eftir Jón Gerald Sullenberger » Verðlagseftirlit ASÍ neitar allri samvinnu við verslanir um að laga og bæta aðferðafræðina sem notuð er við verðkannanir. Jón Gerald Sullenberger Höfundur er eigandi lágvöruverslunarinnar Kosts. Epli og epli eru alls ekki það sama

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.