Morgunblaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og
verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði
burðarvefja líkamans.
Meirapróf
Næsta námskeið hefst 6.mars 2013
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík
sími 568 2870 | www.friendtex.is
LAGERSALA
HEFST Í DAG
FRÁBÆR
TILBOÐ
V
e
rð
s
e
m
þ
ú
h
e
fu
r
e
k
k
i
s
é
ð
á
ð
u
r
Opið 11:00-18:00
Laugard. 11:00-15:00
Ísmar í Reykjavík og Stoð verk-
fræðistofa á Sauðárkróki hafa gert
með sér samstarfssamning um upp-
setningu og rekstur GPS leiðrétting-
arstöðvar í Skagafirði. Stöðin verð-
ur hluti af svonefndu VRS-kerfi
Ísmar, sem er nokkurs konar gagna-
veita fyrir GPS staðsetningartæki.
Fyrir eru slíkar stöðvar á Akureyri,
Húsavík, Egilsstöðum, Höfn í Horna-
firði, Ísafirði, Selfossi og í Borg-
arnesi, Keflavík og Reykjavík. Verk-
fræðistofan Stoð hefur starfað í
heimahéraði á þriðja áratug og lengi
verið leiðandi í GPS-mælingum á
Norðurlandi vestra, bæði fyrir ein-
staklinga, verktaka, stofnanir, veitu-
fyrirtæki og sveitarfélög. Ísmar hef-
ur um árabil verið leiðandi í sölu og
þjónustu á búnaði til landmælinga
og vélstýringa hérlendis.
Ísmar og Stoð
semja um GPS
GPS Jón Tryggvi Helgason frá Ís-
mar og Eyjólfur Þórarinsson, Stoð.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Víkingaklúbburinn varð Íslands-
meistari skákfélaga um helgina og
rauf þar með fjögurra ára sigur-
göngu Bolvíkinga sem kepptu með
bæði A- og B-sveit sína í efstu deild
á mótinu.
„Víkingaklúbburinn var að koma
upp í efstu deild skákfélaga í fyrsta
sinn en þessi ungi klúbbur hefur
unnið sig hratt upp neðri deildirnar
og er nú Íslandsmeistari eftir nokk-
uð öruggan sigur,“ segir Gunnar
Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands, en Víkingaklúbburinn fékk
3½ vinningi meira en Taflfélag
Reykjavíkur, sem endaði í 2. sæti.
Bolvíkingar, fráfarandi Íslands-
meistarar, enduðu mótið í 3. sæti en
það voru skákfélag Akureyrar og B-
sveit Bolvíkinga sem féllu úr efstu
deild eftir mótið um helgina. Sveit
Víkingaklúbbsins skipuðu Pavel Elj-
anov, Bartosz Socko, Gizegorz Gaj-
ewski, Marcin Dzibua, Hannes Hlíf-
ar Stefánsson, Stefán Kristjánsson,
Björn Þorfinnsson og Magnús Örn
Úlfarsson.
Tefla skák og víkingaskák
Víkingaklúbburinn er í raun og
veru samsettur úr tveimur klúbbum.
Annars vegar er hefðbundinn skák-
klúbbur sem tefldi til sigurs um
helgina og hins vegar víkingaskák-
klúbbur sem teflir víkingaskák en
það er nýtt afbrigði af venjulegri
skák.
Víkingaskák var fundin upp á Ís-
landi af Magnúsi Ólafssyni en tafl-
borð í víkingaskák samanstendur af
85 sexstrendingum sem skipa níu
raðir og eru í þremur litum. Þá hefur
hvort lið níu taflmenn og níu peð.
Eins og í hefðbundinni skák hefur
hvort lið sinn lit og taflmennirnir eru
þeir sömu nema hvað níundi mað-
urinn nefnist víkingur.
Manngangurinn er ekki eins og í
hefðbundinni skák en hann er auð-
lærður að sögn þeirra sem teflt hafa
víkingaskák. Ættu allir sem kunna
mannganginn í hefðbundinni skák
að vera fljótir að tileinka sér mann-
ganginn og reglurnar í víkingaskák-
inni.
Nýir skákmeistarar
Víkingaklúbburinn varð Íslandsmeistari skákfélaga
Tefla einnig nýtt íslenskt afbrigði af skák, víkingaskák
Skák Víkingaklúbburinn fagnar hér Íslandsmeistaratitli skákfélaga um
helgina en Taflfélag Reykjavíkur lenti í öðru sæti á mótinu.
Kona ökkla-
brotnaði í fjall-
lendi í Svarf-
aðardal á
laugardag eftir
að hafa fallið 50
metra í brattri
hlíð. Gerðist at-
vikið um miðjan
dag í 500 metra
hæð en konan
var þarna á ferð
ásamt gönguhópi. Björg-
unarsveitir af Norðurlandi, alls
um 40 manns, voru sendar á vett-
vang og aðstoðuðu göngufélag-
ana við að koma konunni niður,
þannig að hægt væri að flytja
hana í sjúkrabíl á sjúkrahús á
Akureyri. Þar gekkst hún undir
aðgerð.
Aðstæður voru erfiðar og
svæðið erfitt yfirferðar sökum
bratta og snjóalags, samkvæmt
upplýsingum frá Landsbjörg.
Voru göngufélagarnir einnig að-
stoðaðir niður fjallið. Um var að
ræða vant göngufólk og vel búið.
Féll 50 m í fjallshlíð
og ökklabrotnaði
Björgunarsveitir
ávallt til taks.