Morgunblaðið - 04.03.2013, Side 6

Morgunblaðið - 04.03.2013, Side 6
SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nýtt umferðarátak hófst formlega á föstudaginn en þá var haldinn fyrsti fundurinn í hópi sem hefur það verkefni að móta „umferðarsátt- mála“. Verkefnið er samvinnuverk- efni lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu og Umferðarstofu en einnig koma að því ýmsir hags- munaaðilar í umferðinni. Þá verða átta fulltrúar hins almenna vegfar- anda í hópnum sem mun leiða vinn- una við að móta sáttmálann. Al- menningur mun einnig geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri við mótun sáttmálans. Markmiðið að auka öryggi Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að markmiðið með sáttmálanum sé það að fækka slysum í umferðinni og auka þar með öryggi fólks. „Þetta verkefni gengur í rauninni út á það að komast að sameiginlegri nið- urstöðu um það sem einkennir góða umferðarmenningu,“ segir Stefán og bætir við að vegfarendur eigi að geta sammælst um það hvað teljist viðurkennd hegðun í umferðinni og jafnframt gert kröfu um að henni sé fylgt. Stefán segir að verkefnið fram- undan sé að móta slíkan sáttmála með aðstoð almennings. „Við erum að reyna að virkja allt það góða sem er í gangi og skapa sameig- inlega vitund um að það sé okkar sameiginlega hagsmunamál og sam- eiginlega verkefni að tryggja öryggi í umferðinni.“ Þó að lögreglan leiki mikilvægt hlutverk í að halda uppi aga í umferðinni með eftirliti og við- urlögum þegar það á við, segir Stef- án að það sé talið enn líklegra til árangurs að aginn komi innan frá og að fólk hafi aðrar ástæður en eftirlit lögreglunnar til þess að fylgja umferðarreglum og góðum siðum í umferðinni. Margir góðir kraftar Við kynningu verkefnisins var leitað á náðir samfélagsmiðlanna Facebook og Twitter til þess að auglýsa eftir fólki sem var tilbúið til þess að taka þátt í verkefninu. Stef- án segir að viðbrögðin hafi verið framar öllum vonum. „Við fengum ótrúlega sterk og góð viðbrögð. Það eru margir sem eru tilbúnir að koma að þessari vinnu með okkur.“ Stefán segir að hópurinn sem vinni að mótun sáttmálans muni nýta sér samfélagsmiðlana í starfi sínu. „Það verður settur upp opinn hópur á fésbókinni, þannig að það er ekki bara í þessum vinnuhópi sem sátt- málinn verður til heldur hefur hver og einn sem hefur áhuga á þessu verkefni tækifæri til að leggja því lið.“ Stefán segir að ýmsar leiðir séu færar að því markmiði að auka ör- yggi í umferðinni. „Við teljum öll merki um það að umferðarmenn- ingin hér á landi sé að verða betri, ökumenn og aðrir vegfarendur séu orðnir meðvitaðri um það hvað það skipti miklu máli að haga sér vel í umferðinni og skapa þannig betri umferðarmenningu,“ segir Stefán og bætir við að það sjáist á færri óhöppum og slysum í umferðinni. „Við sjáum það á slysatölum sem Umferðarstofa heldur utan um og líka hjá tryggingarfélögunum að bæði umferðarslysum og umferð- aróhöppum hefur fækkað hérna á höfuðborgarsvæðinu.“ Stefán segir að það sé til marks um aukna meðvitund fólks um um- ferðina og þátt hvers og eins í því að skapa góða umferðarmenningu. Fjölmargir aðrir þættir spili þó þarna líka inn í eins og til dæmis áherslur lögreglu, bætt umferð- armannvirki, öruggari bílar og fleira. „Þannig að það eru margir góðir kraftar sem eru að vinna í sömu átt og við viljum nýta það enn frekar,“ segir Stefán að lokum. Sáttmáli um betri umferð  Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Umferðarstofa leita eftir samvinnu við vegfarendur  Vilja móta boðorð sem allir geti samþykkt að fylgja í umferðinni  Umferðarmenningin að batna hérlendis 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur vakið mikla lukku á sam- skiptamiðlunum Facebook og Twit- ter og fylgjast nú um 35.000 manns með lögreglunni á þessum síðum. Á meðal þess sem lög- reglan setur inn á síðurnar eru til- kynningar um umferðareftirlit, færslur úr dagbók lögreglunnar og alls kyns upplýsingar fyrir sam- borgara sína. Þá hafa ótal manns nýtt sér möguleikann til þess að koma á framfæri þökkum, ábendingum og alls kyns fyrirspurnum til lögregl- unnar sem svarar alltaf eftir bestu getu. Vinsældirnar eru slíkar að lögreglan hlaut í febrúar síðast- liðnum Nexpo-verðlaunin árið 2012 fyrir að vera „áhrifamesta fyrirtæki eða stofnun á samskipta- miðlum“. Gagnvirk samskipti Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að síðan hafi náð mikilli útbreiðslu og mjög vel sé fylgst með því sem þar er í gangi. „Það sem skiptir öllu máli er að þetta eru gagnvirk sam- skipti. Við erum ekki bara að miðla upplýsingum heldur erum við líka að taka við ábendingum, athuga- semdum og öðru frá fólki um það sem má betur fara, þar á meðal hjá lögreglunni,“ segir Stefán sem segir að lögreglan sjái mikla möguleika í þessum samskipta- miðlum og þeim samskiptum sem þar eigi sér stað. Verðlaunuð fésbókarsíða LÖGREGLAN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Morgunblaðið/Júlíus Umferðarsáttmáli Samstarfshópurinn sem á að móta umferðarsátt- málann kom saman til skrafs og ráðagerða sl. föstudag. Stefán Eiríks- son, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, er lengst til vinstri í efri röð. Morgunblaðið/Ómar Umferð Nýr sáttmáli snýr m.a. að því hvernig bæta má umferðarmenningu og draga þannig úr hættu á slysum. Einnig hvernig bæta megi vegakerfið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Óvíst er hvort eða þá hvenær frystitogari Brims hf., Skálaberg RE-7, kemur til landsins. „Miðað við stöðuna í dag þá er ekki lengur rekstrargrundvöllur fyrir frystitogara, hvað þá ef nýja fiskveiðistjórnunarfrumvarpið fer í gegn,“ sagði Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf. „Við héldum að þetta umhverfi yrði lagað. Það eru bara ákveðin útgerðarfyrirtæki sem borga veiðigjöld og önnur gera það ekki nema að hluta eða alls ekki. Við lendum mjög illa í því.“ Guðmundur sagði að yrði rekstrarumhverfið ekki lagað þá horfði illa fyrir þeim sem þyrftu að borga fullt gjald. Hann sagði að undanfarið hefði aðallega verið fjölgað smábátum, t.d. strandveiðibátum, á mið- unum en þeir þyrftu ekki að borga veiðigjald. Sama gilti um þá sem væru með „réttar“ skuld- ir miðað við veiðigjaldsformúluna. Loks fengi allur uppsjávarflotinn ívilnanir gagnvart veiði- gjaldi því þorskígildisstuðullinn fyrir uppsjáv- artegundirnar væri svo vitlaus. „Þeir sem lenda á milli, eru ekki í uppsjávarveiðum eða ekki með „rétta“ skuldastöðu þurfa að borga margfalt veiðigjald á við aðra,“ sagði Guðmundur. Hann sagði allt gert mjög flókið í íslenskum sjávar- útvegi með flóknu regluverki og erfitt að skilja það. Fólk tryði því almennt ekki að einungis hluti af fyrirtækjum í greininni þyrfti að borga veiðigjald. Hann minnti á orð Eskos Aho, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands, á Viðskiptaþingi 2013. Aho sagði að Finnar hefðu lækkað skatta sem andsvar við kreppu en jafnframt afnumið allar undanþágur og ívilnanir í skattkerfinu. „Í íslenskum sjávarútvegi er verið að fjölga þeim einingum sem borga ekki neitt veiðigjald. Þá mun sjávarútvegurinn leggja miklu minna til samfélagsins og t.d. velferðarkerfisins en hann gæti annars gert. Svo erum við með mígleka spítala og velferðarkerfi sem er að hrynja. Þetta er algjörlega galin hugsun,“ sagði Guðmundur. Verið í slipp á Kanarí síðan í haust Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort Skálabergið verður selt aftur. Guðmundur benti á að íslenski fiskiskipaflotinn eltist mjög hratt. Það væri ekki eðlilegt hjá jafnmikilli fiskveiði- þjóð og okkur að skipaflotinn væri ekki end- urnýjaður. Það þyrfti bæði stór og smá skip og ekki dygði að fjölga bara strandveiðibátum eins og gert hefði verið undanfarin ár. Togarinn Skálaberg RE-7 er nýjasta viðbótin í frystitogaraflota landsins. Brim hf. keypti skipið frá Argentínu á liðnu hausti. Það var smíðað í Noregi 2003 fyrir Færeyinga en var selt til Argentínu 2010. Skipið fór í slipp á Kan- aríeyjum í haust og hefur legið þar síðan. Óvíst um komu Skálabergs RE  Ekki er lengur rekstrargrundvöllur fyrir frystitogara, segir forstjóri Brims  Aðeins hluti fyrirtækja í sjávarútvegi borgar veiðigjald, hin borga lítt eða ekkert Skálaberg Nýjasta viðbótin við flota frystitogara Íslendinga liggur enn í höfn á Kanaríeyjum. Sænski matreiðslumeistarinn Fred- rik Berselius bar sigur úr býtum á alþjóðlegu matarhátíðinni Food & Fun, sem lauk um helgina. Í öðru sæti varð Daninn Esben Helmboe Band, sem eldaði á veitingahúsinu Vox, og í þriðja sæti varð David Lundqvist, en hann eldaði hjá Fiski- félaginu. Berselius galdraði fram sína rétti á Dilli, veitingastaðnum í Norræna húsinu. Á matseðli hans voru m.a. saltaður þorskhnakki með káli og brenndu lárviðarlaufi, rauðbeður með eggjarauðu og „hænu skógar- ins“, íslenskt lambakjöt með kara- melliseruðu skyri og ískrap með hnetum og brenndu smjöri. Ljósmynd/Food&Fun Sigurvegari Fredrik Berselius þótti best- ur á Food & Fun-matarhátíðinni í ár. Sænskur kokkur sigraði á Food & Fun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.