Morgunblaðið - 04.03.2013, Page 12

Morgunblaðið - 04.03.2013, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 Klofningur og ný framboð á kjörtímabilinu 2009 Maí Jún. Júl. Ág. Sept. Okt. Nóv. Des. 2010 Jan. Feb. Mars Apr. Maí Jún. Júl. Ág. Sept. Okt. Nóv. Des. 2011 Jan. Feb. Mars Apr. Maí Jún. Júl. Ág. Sept. Okt. Nóv. Des. 2012 Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember 2013 Janúar Febrúar Mars 12. maí 2009 Stjórnmálaaflið Samtök fullveldis- sinna er stofnað 16. júlí 2009 Deilur innan Borgarahreyfingarinnar eftir að Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari kjósa gegn ESB-umsókn. Þráinn Bertelsson styður umsóknina. Hann telur þingmennina þrjá hafa fjarlægst hreyfinguna með þessari afstöðu sinni. 14. ágúst 2009 Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingar- innar, ákveður að segja sig úr þingflokki hreyfingarinnar. 18. september 2009 Þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar og tveir varaþingmenn segja skilið við hreyfinguna sem á þar með engan mann eftir á þingi. Þingmenn- irnir undirbúa stofnun Hreyfingarinnar. 8. september 2010 Þráinn Bertelsson gengur í VG. Vinstri grænir bjóða hann velkominn í þingflokkinn. 27. desember 2010 Guðbjörn Guð- björnsson óperusöngvari kveðst hafa fundið mikinn meðbyr vegna hugmynda um stofnun nýs flokks. Framboðið fær síðan nafnið Lýðfrelsisflokkurinn. 21. mars 2011Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir segja sig úr þingflokki VG. Þau verða óháðir þingmenn. 14. apríl 2011 Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, segir sig úr þingflokknum. Hann er m.a. ósáttur við að Guðfríði Lilju Grétarsdóttur hafi verið vikið úr embætti þingflokksformanns. Hann gengur síðan í Framsókn. Júní-ágúst 2011 Fulltrúar Lýðfrelsisflokksins eiga í viðræðum við Guðmund Steingrímsson um mögulegt samstarf. Guðmundur kaus að starfa með Besta flokknum. 23. ágúst 2011 Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvest- urkjördæmi, segir sig úr Framsóknarflokknum og þingflokki Framsóknarflokksins. 3. janúar 2012 Hægri grænir, X-G, leita frambjóðenda. 4. janúar 2012 Ástþór Magnússon útilokar ekki að hreyfing hans, Lýðræðishreyf- ingin, bjóði fram í komandi þingkosning- um. 6. janúar 2012 Greint var frá nýju framboði,Bjartri framtíð, semGuðmundur Steingrímsson,Besti flokkurinn og einstaklingar umallt land hafa unnið að því að stofna. 7. janúar 2012 Stjórnmála- samtökin Ný framtíð mótmæla nafni Bjartrar framtíðar. 7. febrúar 2012 Nýtt stjórnmálaafl undir forystu Lilju Mósesdóttur kynnir stefnumál sín. Flokkurinn ber heitið Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar og er með listabókstafinn C. 12. febrúar 2012 Nýtt framboð með vinnu- heitinu Breiðfylkingin lítur dagsins ljós. Að því standa Hreyfingin, Borg- arahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og einstakl- ingar, meðal annars fólk úr stjórnlagaráði. Ekki er samstaða um ESB- umsókn. 12. febrúar 2012 Lýðfrelsisflokkurinn tilkynnir að hann ætli ekki að taka þátt í Breiðfylkingunni. Afstaða Hreyfingar- innar og Frjálslynda flokksins til ESB á þátt í þessari ákvörðun. 2. mars 2012 Sigurður Þ. Ragnarsson, gjarnan nefndur Siggi stormur, segir skilið við Samstöðu. 5. mars 2012 Breið- fylkingin stofnuð. Stofnfundur boðaður 18. mars. Stjórnlagaráðs- mennirnir Þorvaldur Gylfason, Lýður Árnason, Andrés Magnússon og Gísli Tryggvason eiga í viðræðum við forystu- menn flokksins. 16. mars 2012 Bjartsýnis- flokkurinn sendir frá sér yfirlýsingu um að félagar í flokknum séu hófsamir þjóð- ernissinnar. 18. mars 2012 Síð- ari stofnfundur nýrra stjórnmálasamtaka, Dögun – samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði. Hreyfingin, Borgarahreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn ganga inn í Dögun. 21. maí 2012 Samstaða krefst þess að ríkisstjórnin víki og að boðað verði til kosninga. 31. maí 2012 Húmanista- flokkurinn greinir frá því að hann stefni á framboð í alþingiskosn- ingum. 23. ágúst 2012 Lilja Mósesdóttir gefur ekki kost á sér í embætti formanns Sam- stöðu á landsfundi flokksins 6. október 2012. Með því axli hún ábyrgð á fylgistapi flokksins. 27. ágúst 2012 Þorvaldur Þor- valdsson greinir frá úrsögn sinni úr VG. Á síðar eftir að koma að stofnun Alþýðufylkingar- innar. 1.-30. október 2012 Einar Gunnar Baldvins- son, fráfarandi talsmaður Bjartsýnisflokks- ins, segir sig frá flokksstarfinu. Of mikið beri orðið á persónu hans. 11. október 2012 Róbert Marshall skýrir frá því að hann sé genginn í Bjarta framtíð. 24. nóvember 2012 Pírata- flokkurinn gefur út svonefnda stefnumörkun. Birgitta Jónsdótt- ir, þingmaður Hreyfingarinnar, er í forsvari fyrir flokkinn. 26. nóvember 2012Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari, þingmenn Hreyfingarinn- ar, ákveða að gefa kost á sér í framboð fyrir Dögun. 29. nóvember 2012 Lýður Árnason og Gísli Tryggvason ákveða að gefa kost á sér í fram- boð til Alþingis fyrir Dögun í kosningunum í vor. 22. desember 2012 Lilja Mósesdóttir, fv. þingmaður VG og forystukona Samstöðu, segist ekki gefa kost á sér til áframhaldandi þingmennsku. 31. desember 2012 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, ákveður að láta af þingmennsku um áramótin og tekur Ólafur Þór Gunnarsson varaþingmaður við sæti hennar á Alþingi fram að kosningum. 5. janúar 2013 Kristinn H. Gunnarsson, fyrr- verandi alþingismaður, gengur til liðs við Dögun. 13. janúar 2013Alþýðufylking- in stofnuð. Í bráðabirgðastjórn voru kjörnir Þorvaldur Þor- valdsson, Vésteinn Valgarðsson og Einar Andrésson. 16. janúar 2013 Sjö af níu stjórnarmönnum Samstöðu segja sig frá öllum trúnaðarstöfum fyrir flokkinn ásamt því að segja sig úr flokknum. Formað- ur flokksins, Birgir Örn Guðmundsson, segir ástæðuna eindreginn vilja Lilju Mósesdóttur um að Samstaða bjóði ekki fram í næstu alþingiskosningum. 23. janúar 2013 Jón Bjarnason segir sig úr þingflokki VG. Óánægja með aðildarferlið að ESB er meginástæða brotthvarfsins. 24. janúar 2013StefánJónHafstein fundar fyrir hönd Samfylkingarmeð Lýð Árnasyni ogGunnari Tómassyni á óformlegumhádegisfundi.Meðal annars er rætt um verðtryggingu og fiskveiðistjórnunarkerfið. 25. janúar 2013 Óvissa er um hvort Bjartsýnis- flokkurinn býður fram í næstu kosningum. 25. janúar 2013 Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, segir sig úr VG. 9. febrúar 2013 Landsfund- ur Samstöðu samþykkir að bjóða ekki fram í komandi alþingiskosningum. 9.-10. febrúar 2013 Forystu- menn Lýðfrelsisflokksins ákveða að flokkurinn renni inn í verðandi framboð, Lýðræðisvaktina. 11. febrúar 2013 Þráinn Bert- elsson hótar að hætta að styðja stjórnina vegna þess farvegs sem stjórnarskrármálið er komið í. 16.-17. febrúar 2013 Stjórnmálaflokkurinn Lýðræðisvaktin var settur á laggirnar. Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor er valinn vaktstjóri. Flokkurinn hyggst bjóða fram í öllum kjördæm- um. Lýður Árnason er meðal stofnenda. 20. febrúar 2013 Þór Saari boðar að leggja fram vantrauststillögu í þinginu 26. febrúar. Dregur hana svo til baka daginn eftir. FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrsta hreina vinstristjórnin var ekki mánaðargömul þegar brestir tóku að myndast í stjórnarliðinu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og er nú útlit fyrir að á annan tug framboða verði í framboði. Aðdragandinn að þessari miklu fjölgun flokka er hér rakinn en tekið skal fram að þetta er lauslegt yfirlit. Allt byrjaði þetta sumarið 2009. Það var þannig hart tekist á um í VG hvort sækja ætti um aðild að ESB, að kröfu Samfylkingarinnar. Þetta umdeilda mál reyndist Borgarahreyfingunni líka erfitt. Hinn 16. júlí 2009 samþykkti meiri- hluti Alþingis að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar greiddu at- kvæði gegn umsókn en sá fjórði, Þráinn Bertelsson, studdi hana. Borgarahreyfingin klofnar Fjölmiðlar gerðu þennan skoð- anamun að umtalsefni. Undir niðri leyndist djúpstæðari ágreiningur sem leiddi loks til brotthvarfs Þráins úr flokknum í ágúst 2009. Var hann óháður þingmaður fram á haust 2010 er hann gekk í raðir Vinstri- grænna. Skömmu eftir brotthvarf Þráins haustið 2009 gengu þau Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggvadóttir úr Borgarahreyfing- unni og stofnuðu Hreyfinguna. Sem fyrr segir reyndist ESB- umsóknin VG erfið en að auki urðu tvö stórmál til að sundra flokknum, annars vegar Icesave-deilan og hins vegar samstarfið við AGS. Þessi mál áttu þátt í að Atli Gísla- son og Lilja Mósesdóttir gengu úr þingflokki VG í mars 2011 og hafa þau síðan verið óháðir þingmenn. Um mánuði síðar gekk Ásmundur Einar Daðason úr VG og færði sig yfir í Framsóknarflokkinn. Ríkisstjórnin fékk 34 menn kjörna á þing, Samfylking 20 og VG 14, og var því stjórnarmeirihlutinn kom- innn niður í 32 þingsæti með brott- hvarfi þingmannanna þriggja og er liðstyrkurinn Þráinn þá meðtalinn. Áður en Þráinn gekk í VG, nánar tiltekið um sumarið 2010, stofnaði Guðbjörn Guðbjörnsson óperu- söngvari Lýðfrelsisflokkinn. Taldi Guðbjörn eftirspurn eftir hægri- flokki sem styddi ESB-umsóknina. Sumarið 2011 kom fram að Guð- björn átti í viðræðum við Guðmund Steingrímsson, þingmann Fram- sóknar, um mögulegt samstarf. Guð- mundur kaus þá að standa utan Lýð- frelsisflokksins, hann sagði sig úr Framsókn og gerðist óháður þing- maður það sem eftir lifði ársins. Í ársbyrjun 2012 var annar hægri- flokkur stofnaður með því að Guð- mundur Franklín Jónsson stofnaði Hægri-græna. Voru aðgerðir í þágu skuldsettra heimila meðal helstu kosningaloforða flokksins en 15 mánuðir voru þá liðnir síðan Jó- hanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra fól hópi sérfræðinga að yfir- fara skuldavanda heimilanna, eftir að tæplega 8.000 manns mótmæltu meintu aðgerðaleysi í málaflokknum á Austurvelli haustið 2010. Stjórnin var farin að fjarlægjast vissa þjóð- félagshópa sem kusu hana til valda og átti Icesave-deilan líka þátt í því. Janúarmánuður 2012 reyndist tíð- indamikill í íslenskum stjórnmálum. Ástþór Magnússon sagði til skoð- unar að flokkur sinn, Lýðræðis- hreyfingin, byði fram til alþingis- kosninga. Guðmundur Stein- grímsson vakti einnig athygli með því að stofna Bjarta framtíð, systur- flokk Besta flokksins. Boðaði róttækar aðgerðir Skuldavandi þúsunda heimila kom aftur við sögu í febrúar 2012 þegar Lilja Mósesdóttir stofnaði Samstöðu og boðaði róttækar aðgerðir í þágu heimilanna. Mældist flokkur hennar með 11,3% stuðning í Þjóðarpúlsi Gallups skömmu síðar, sjónarmun minna en VG sem mældist með 12% stuðning. Sjálfstæðisflokkur mæld- ist þá með meiri stuðning en ríkis- stjórnarflokkarnir tveir til samans. Breiðfylkingin leit dagsins ljós viku síðar en samdægurs kom í ljós að forystumenn Lýðfrelsisflokksins töldu sig ekki eiga samleið með henni vegna Evrópumálanna. Um mánuði síðar, í mars 2012, varð Borgarahreyfingin að Dögun en Húmanistaflokkurinn hafði þá skýrt frá framboði til þingkosninga og Bjartsýnisflokkurinn orðið til. Síðasta haust dró enn til tíðinda. Róbert Marshall gekk úr Samfylk- ingunni og yfir í Bjarta framtíð. Þá hillti undir endalok Hreyfingarinnar með því að Birgitta stofnaði Pírata- flokkinn og Þór og Margrét gengu í Dögun. Stjórnlagaráðsmaðurinn Lýður Árnason kom við í Dögun. Alþýðufylkingin varð til í janúar og Samstaða lognaðist út af. Lýður, nokkrir stjórnlagaráðs- menn og Lýðfrelsisflokkurinn gengu svo til liðs við nýjan flokk, Lýðræðis- vaktina. Sá flokkur leggur megin- áherslu á stjórnarskrármálið en það er einnig eitt baráttumála Dögunar, líkt og sjá má á áherslu Þórs og Margrétar á málið í þinglok. Klofningurinn hófst snemma  Umsóknin um aðild að ESB afhjúpaði fyrstu brestina í samstarfi ríkisstjórnarflokkanna  Borgarahreyfingin klofnaði fyrst  Klofningsbrot stofnuðu flokka sem sumir urðu skammlífir Morgunblaðið/Árni Sæberg Aðgerðaleysi mótmælt Óánægja með meint aðgerðaleysi í skuldamálum heimilanna átti þátt í að skapa jarðveg fyrir ný stjórnmálaframboð. Fjöldi framboða » Eins og fram kom í Morgun- blaðinu fyrir skömmu stefnir í metfjölda framboða. » Nýir flokkar sem hafa fengið listabókstaf úthlutaðan eru: Björt framtíð (A), Samstaða (C (býður ekki fram)), Bjartsýnis- flokkurinn (E), Frjálslyndi flokkurinn (F (býður fram með Dögun)), Hægri grænir (G), Húmanistaflokkurinn (H), Lýð- veldisflokkurinn (I (er í um- sóknarferli)), Framfaraflokk- urinn (K (er í ferli)), Lýðræðis- vaktin (L (er í ferli)), Borgara- hreyfingin (O (býður fram með Dögun)), Lýðræðishreyfingin (P), Alþýðuhreyfingin (R (er í umsóknarferli)), Dögun (T) og Píratar (Þ (er í ferli)).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.