Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 26

Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is „Þessi sýning er að ýmsu leyti ný hlið á Kaffisbrúsakörlunum, það er að segja við víkkum þá út og sýn- um fleiri hliðar á þeim,“ segir Gísli Rúnar Jónsson annar helmingur Kaffibrúsakarlanna sem þessa dag- ana stíga á svið í Austurbæ. 40 ár eru liðin frá því Gísli Rúnar og Júlíus Brjánsson komu fram í sjón- varpi sem Kaffibrúsakarlarnir og urðu frægir á einni nóttu. Nú end- urtaka þeir leikinn í sýningu í Austurbæ sem Gunnar Helgason leikstýrir. Helga Braga Jónsdóttir og Lalli töframaður eru gestaleik- arar sýningarinnar. „Annar Kaffibrúsakarlanna læt- ur sig dreyma um að verða töfra- maður og fær útrás fyrir þá þrá undir handleiðslu Lalla töfra- manns. Svo gýs upp ýmisleg hæfni, eins og til dæmis ótrúleg miðils- gáfa,“ segir Gísli Rúnar. „Við höld- um okkur við kaffibrúsahúmorinn, erum ekki að búa til öðruvísi húm- or upp í þessa karla til að þjóna tíðarandanum. Andinn í þessum körlum er enn sá sami.“ Kaffibrúsakarlarnir urðu til í sjónvarpi árið 1973. „Við Júlíus vorum barnungir, 19 og 21 árs. Báðir höfðum við verið að læra leiklist hjá Ævari Kvaran,“ segir Gísli Rúnar. „Ég þekkti Jónas R. Jónasson, söngvara í Flowers, sem var orðinn vel þekktur sjónvarps- maður. Hann hafði mikla trú á mér og vildi fá mig í þátt sem hann stjórnaði. Hann stakk upp á að ég fengi einhvern með mér svo til yrði hið klassíska tvíeyki. Þetta var skemmtiþáttur með kabarettformi, kvöldstund í sjónvarpssal með gestum úr ýmsum áttum, mörgum gríðarlega vinsælum úr skemmt- anaiðnaðinum. Svo stungum við Júlíus upp kollinum inn á milli at- riða í þættinum, alveg ókynntir. Við sátum þarna tveir saman og drukkum kaffi og samtalið milli okkar var eins knappt og mögulegt var. Húmorinn var kannski dálítið sérkennilegur, hann einkenndist af andófi gegn rökvísi og við sóttum í absúrdisma. Okkur fannst skemmtiefni í sjónvarpi vera of langt og því vild- um við hafa okkar atriði stutt. Sumir áttu erfitt með að venjast því. Ungur maður á Akureyri sagði við okkur: Það er gaman að þessu hjá ykkur en þetta eru engir brandarar, þetta er svo stutt þetta helvíti. Sagt var að fólk þyrfti að vera límt við skjáinn allan tímann til að missa ekki af þessu atriði í þættinum.“ „Við höfum oft spurt okkur að því af hverju tiltölulega einfalt, hljóðlátt og yfirlætislaust atriði varð svona vinsælt,“ segir Júlíus. „Ég held að stór hluti af þeirri skýringu sé að landslagið í íslensk- um skemmtiiðnaði var fremur fá- brotið og þarna var eitthvað öðru- vísi.“ Reiðir út í þessa karla Hvaðan kom nafnið Kaffibrúsa- karlarnir? „Persónur okkar í þáttunum hétu ekkert,“ segir Gísli Rúnar. „Á þessum tíma bjó ég í foreldra- húsum og um miðjan vetur var hringt heim. Móðir minn fór í sím- ann og rödd í símanum sagði: Ég ætlaði að vita hvort það væri hægt að fá Kaffibrúsakarlana til að skemmta. Það eru engir Kaffi- brúsakarlar hér, svaraði hún. Þetta eru karlarnir sem eru í sjónvarp- inu, sagði maðurinn. Áhorfendur höfðu skírt okkur Kaffibrúsakarl- ana, sem var mikil viðurkenning. Ennþá hittum við fólk sem ávarpar okkur sem Kaffibrúsakarlana.“ Þið urðuð frægir á einu kvöldi. Hvernig tilfinning var það? „Það var skrýtið,“ segir Gísli Rúnar. „Við vorum sérsinna og ætluðum ekki að festast í því að vera týpur, en gerðum það.“ „Fyrsta leikritið sem við lékum í í Þjóðleikhúsinu var Othello þar sem við vorum gráir fyrir járnum með spjót,“ segir Júlíus. „Við ætl- uðum að leika Hamlet í framtíðinni og það var ekki á dagskrá að leggja eingöngu fyrir sig gam- anleik.“ „Við urðum svo reiðir út í þessa karla sem voru örlagavaldar í lífi Við höfum sæst við þessa menn  Gísli Rúnar og Júlíus Brjánsson snúa aftur sem Kaffibrúsakarlarnir » Við vorum einbeittir í því að fara aldrei aftur íhlutverk þeirra, sem var var tóm vitleysa hjá okkur því alls staðar annars staðar í stórum þjóð- félögum hefðu menn haldið áfram meðan hægt var. Júlíus Brjánsson og Gísli Rúnar að koma mynd af Kaffibrúsa- körlunum upp á frægðarvegginn. Helgi Svavarsson hornleikari og Helena Bjarnadóttir píanóleikari halda kammertónleika annað kvöld kl. 20 í Hömrum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Leikin verða sex verk fyrir horn og píanó sem spanna tímabilið frá upphafi rómantík- urinnar og fram á 20. öldina. „Leit- ast verður við að skapa heimilislega og óformlega kvöldstund með aðstoð franskra, rússneskra og þýskra snillinga á borð við Dukas, Rachm- aninov, Beethoven o.fl.,“ segir í til- kynningu. Helgi og Helena munu einnig ræða við gesti um verkin, segja sögur og svara áleitnum spurningum, m.a. þeirri hvort aust- urrískir ostagerðarmenn séu vit- grannir. Frekari upplýsingar má finna á menningarhus.is. Ljósmynd/Lárus Sigurðarson Horn Helgi Svavarsson leikur á hljóðfærið góða á tónleikum annað kvöld. Horn og píanó í Hofi OPNUNARTÍMI EFNALAUG MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13 OPNUNARTÍMI FATALEIGA MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS Hröð og vönduð þjónusta. Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára. Persónuleg þjónusta og hagstætt verð. HREINSUM ALLT FYRIR FERMINGUNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.