Morgunblaðið - 11.04.2013, Page 11
Morgunblaðið/Ómar
Arður Þær Hildur og Silja segja einstaklinginn vera stóra gróðann í velferðartengdum nýsköpunarverkefnum.
bæjarstjóra og Hjördísi Árnadótt-
ur, félagsmálastjóra bæjarins.
„Þau voru einmitt að tala um að á
Reykjanesi væri fullt af lausu hús-
næði og við ræddum því strax við
þau. Þau svöruðu okkur um hæl og
allt sveitarfélagið tók svo vel á
móti okkur. Við gerðum vinasamn-
ing við Reykjanesbæ og nú fáum
við ákveðna þjónustu fría eins og
að fara á söfn, sund og í strætó í
bænum,“ segir Silja.
Þær stöllur segjast hafa farið
þetta mikið á hörkunni og stund-
um hafi reynt á fjölskyldu og vini.
„Ég held að við séum búnar að
senda alla sem við þekkjum í
kompurnar að leita að húsgögnum,
húsbúnaði og leikföngum fyrir
heimilið,“ segir Silja.
Heimili þar sem börnin
fá alla athyglina
Lagt er upp með að Vinasetr-
ið sé fyrst og fremst heimili. „Börn
sem eiga rétt á stuðnings- og helg-
arheimili koma þarna inn og finna
þá vonandi fyrir hlýjum og góðum
anda og fá virkilega á tilfinninguna
að þetta sé þeirra heimili. Ein-
kunnarorðin okkar eru gleði,
traust og nánd. Tilgangur Vinaset-
ursins kjarnast í einkunnarorðum
þess, það er að hvert barn hafi
möguleikana á að upplifa gleði og
öryggi, læri að treysta öðrum og
umhverfi sínu og upplifi kærleiks-
ríka nánd.
Vinasetrið vinnur af heilum
hug eftir þeirri hugsjón að hvert
barn sé einstakt og eigi skilið það
besta. Það er það sem gerir nálg-
unina ólíka venjulegum stuðnings-
fjölskyldum, en í þeim tilfellum
kemur barnið sem gestur inn í
fullmótaða fjölskyldu. Auðvitað
geta þær samt verið frábærar líka.
Það sem okkur langar svo að gera
er að börnin upplifi að þau eru að
koma inn í fjölskylduna sína. Þau
verða alltaf með sömu börnunum,
sama starfsfólkinu, eiga sína
tengla í starfsmannahópnum sem
taka alltaf á móti þeim og sjá al-
gjörlega um þau. Á heimilinu
verða myndir af börnunum uppi á
vegg. Þau sofa alltaf í sínum rúm-
um og eiga sín rúmföt og sitt dót
svo þau þurfa ekki að koma með
neitt með sér þegar þau koma,“
segir Hildur.
Á Vinasetrinu mætast allir á
jafningjagrundvelli og starfsfólk
og börn eru saman sem ein fjöl-
skylda heila helgi. „Fjölskyldan
samanstendur af börnum og fjór-
um mjög skemmtilegum konum
sem skilja gsm-símana eftir heima
þegar þær eru á Vinasetrinu.
Börnin eiga okkur algjörlega í
þennan tíma og við gerum ekki
neitt annað. Út frá sálgæslusjón-
armiði þá þarf barnið ekki að fara
inn í ákveðinn hermileik og horfa á
einhverja fullkomna fjölskyldu sem
það á ekki möguleika á að eignast
og stíga inn í,“ segir Hildur.
Fengu styrk sem veittur var
til atvinnumála kvenna
Nú nýlega fengu þær úthlutað
tveggja milljóna króna styrk frá
velferðarráðuneytinu sem veittur
er til atvinnumála kvenna. „Við
vorum auðvitað himinlifandi. Það
sem er svo erfitt við nýsköpun í
velferðarmálum er að fólkið sem
situr á móti okkur er alltaf að leita
eftir arðinum og veltu en við erum
alltaf að segja að ávinningurinn er
að við komum heildstæðari ein-
staklingum út í samfélagið og
hamingjusamari fjölskyldum. Við
erum samfélagslegt nýsköp-
unarverkefni án gróða. Þetta gerir
síðan alla nýsköpun í velferð-
armálum erfiða. Það er alltaf þessi
krafa um þennan rosa gróða og að
hann komi helst sem fyrst. Hjá
okkur er einstaklingurinn stóri
gróðinn,“ segir Hildur. Gerður er
samningur til þriggja til sex mán-
aða í senn um að börnin komi eina
til þrjár helgar í mánuði. Nú þegar
eru umsóknirnar byrjaðar að
streyma inn. „Við sáum fljótt að
það er mikið sótt um fyrir börn
með vægar greiningar en hvorki
börnin né fjölskyldurnar fá nægan
stuðning og allir eru orðnir lang-
þreyttir. Við sjáum svolítið fyrir
okkur að geta stýrt helgunum
þannig að krakkar með vægar
greiningar koma kannski eina
helgi, krakkar sem þurfa hvíld frá
heimilum sínum aðra eins og til
dæmis systkini langveikra barna
eða börn veikra foreldra. Börn í
svipuðum aðstæðum geta þá bæði
fengið stuðning frá okkur og hvert
öðru,“ segir Silja.
Reynsla og fagmennska
skiptir máli
Þær tala um mikilvægi þess
að umlykja börn af reynslu og fag-
menntun en segja það gleymast
þar sem börnin séu enginn þrýsti-
hópur. Þær Silja og Hildur hafa
líka tekið eftir því síðustu daga
hversu lítið fer fyrir barnavernd-
armálum í yfirstandandi kosn-
ingabaraáttu. „Það eru engir fund-
ir þar sem barnaverndarmál eru
rædd sérstaklega. Við hjá Vina-
setrinu viljum bjóða upp á fag-
mennsku og öryggi. Barnið er ekki
bara að fara eitthvað út í óvissuna.
Við erum að bjóða öllum barna-
verndarnefndum og félagsþjón-
ustum að koma og skoða heimilið
og kynnast okkur og starfsem-
inni.“
Hinn 19. apríl koma fyrstu
börnin og ríkir mikil spenna hjá
fjórmenningunum. „Við erum búin
að vera að allar helgar og öll kvöld
að undirbúa þetta. Það er svo mik-
il gleði að finna hve allir taka
þessu vel og eru tilbúnir að taka
þátt í þessu með okkur,“ segir
Silja.
Nánari upplýsingar um Vina-
setrið má finna á vinasetrid.is
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2
-1
6
4
2
Nýr og enn betri Mercedes-Benz GLK
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Nýr Mercedes-Benz GLK er einstaklega öflugur og ríkulega búinn sportjeppi. Dráttargetan er heil 2.400 kg og
hann eyðir aðeins 6,5 l/100 km í blönduðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til
sýnis og reynsluaksturs. Verð frá 7.590.000 kr. (220 CDI með 7 þrepa sjálfskiptingu). Til afhendingar strax.
www.mercedes-benz.is.
- . .
og hann eyðir aðeins 6,5 l/100 km í blönd ðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til
. . . . . il i .
. - .i .