Morgunblaðið - 11.04.2013, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 11.04.2013, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013 Aðalfundur Félags íslenskra rafvirkja verður haldinn 18 apríl kl: 18:00. Fundurinn verður haldinn í sal Rafiðnaðarskólans á Stórhöfða 27. 1 hæð. Gengið inn Grafarvogsmeginn. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Kosning fulltrúa FÍR á aðalfund Stafa lífeyrissjóðs Tillaga að lagabreytingum sem vísað var til stjórnar á aðalfundi félagsins 2012 afgreiddar. Önnur mál Kveðja Stjórnin Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrirtækið Bergmenn ehf. hefur fengið einkarétt til að veita þyrlu- skíðamennsku á hluta fjallgarðanna sem nefndir eru Tröllaskagi og Gjögraskagi. Þannig hafa Dalvíkur- byggð og Grýtubakkahreppur veitt því leyfi til tólf ára en Fjallabyggð treysti sér ekki til að veita einkaleyfi til svo langs tíma. Bergmenn ehf. er eina fyrirtækið sem býður upp á skíðaferðir þar sem fólk er flutt upp í fjöllin með þyrlum. Jökull Bergmann framkvæmdastjóri segir að þyrluskíðamennska sé plássfrek íþrótt og yfirferðin mikil. Á sama deginum sé oft skíðað á Trölla- skaga og Gjögraskaga sem er á milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Hann segir að alls staðar þar sem þyrlu- skíðamennska sé atvinnugrein hafi fyrirtækin ákveðin umráðasvæði. Það sé gert til að tryggja öryggi þar sem varasamt sé að vera með marg- ar þyrlur á sama svæði. Þá sé til- gangurinn að stýra aðgengi gesta og tryggja ánægjulega upplifun þeirra. Hann segir að samið hafi verið um einkarétt á afnotum af landi við tvö sveitarfélög og stóran hluta annarra landeigenda á þessum svæðum og greiðslu fyrir afnotin. Tekur hann fram að afnotin nái aðeins til þyrlu- skíðaferða í atvinnuskyni. „Okkur finnst eðlilegt að landeigendur njóti góðs af sínu landi,“ segir Jökull. Sveitarfélaginu til hagsbóta „Þetta á að verða til þess að auka ferðaþjónustu í sveitarfélaginu,“ segir Guðný Sverrisdóttir, sveitar- stjóri Grýtubakkahrepps, um samn- inginn við Bergmenn. Hún segir að málið hafi verið skoðað gaumgæfi- lega áður en gengið var til samninga og niðurstaðan hafi verið sú að samningurinn gæti orðið sveitarfé- laginu til hagsbóta. Ýmislegt væri á prjónunum í tengslum við þetta. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, segir að starfsemi Bergmanna byggist á skemmtilegri hugmyndafræði. Sveitarfélagið geri engar athuga- semdir við að þeir athafni sig í fjöll- unum en treysti sér ekki til að veita einkaleyfi til svo langs tíma. Það helgist af því að unnið sé að upp- byggingu ferðaþjónustu um allan Tröllaskaga. Veita einka- leyfi að fjöllum  Þyrluskíðamennska þarf mikið pláss Ljósmynd/Snorri G. Steingrímsson Þyrluskíðamennska Þyrlur eru notaðar til að flytja skíðafólkið upp á fjöll. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Mennirnir hljóta að eiga rétt á verjendum og það verður þá auðvit- að að skipa þeim nýja. Það getur ekki verið að brotthlaup verjend- anna, hvort sem það er lögmætt eða ólögmætt, geti valdið því að menn- irnir séu ekki varðir fyrir dómi. Það held ég að sé eina framhaldið sem gengur ekki,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæsta- réttardómari, um hvað gæti gerst ef þeir Gestur Jónsson og Ragnar Hall, verjendur sakborninga í Al Thani-málinu svonefnda, mæta ekki fyrir dóm í dag. Hann telur líklegast að aðalmeðferð málsins verði frest- að á meðan aðrir verjendur verði fundnir. Þeir Gestur og Ragnar sögðu sig frá málinu á mánudag þar sem þeir treystu sér ekki til að verja skjól- stæðinga sína. Dómarinn í málinu varð ekki við þeirri málaleitan. Aðalmeðferð í málinu á hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur dag en óvíst var hvort þeir Gestur og Ragnar ætluðu að mæta í réttarsal. Takmörkun sé skýr í lögum Jón Steinar segist ekki skilja hvers vegna ekki hafi verið hægt að veita verjendunum frest til að fara yfir gögn í málinu en þeir sögðu sig frá því í kjölfar þess að beiðni þeirra um frestun var hafnað af héraðs- dómi. Það sé hins vegar gild spurn- ing hvort þeim Gesti og Ragnari hafi verið heimilt að segja sig frá málinu. Í lögum um lögmenn segir í 20. grein að lögmanni sé skylt taka við skipun eða tilnefningu sem verjandi í máli en í 21. grein segir engu að síður að lögmaður geti sagt sig frá verki á öllum stigum. „Í 21. greininni er ekki gerð ber- um orðum undantekning hvað varð- ar verjendastörf. Þá er það lögskýr- ing þegar við spyrjum okkur að því hvort heimildin til að segja sig frá verki gildi líka í tilfellum þar sem lögmönnum er skylt að vinna eins og kveðið er á um í 20. greininni,“ segir Jón Steinar. Til þess að banna lögmönnum að segja sig frá verjendastörfum þá hefði þurft að kveða á um það í 21. greininni en lögmætisregla feli í sér þá lágmarkskröfu að slík frelsistak- mörkun sé skýr í lögum. Hugsanlegar sektir Í a-lið 223. greinar laga um með- ferð sakamála segir að dómari geti ákveðið að sekta verjendur, ákær- endur eða réttargæslumenn fyrir að valda óþörfum drætti á máli af ásetningi. Jón Steinar segir að ef dómari telji að verjendunum hafi verið óheimilt að segja sig frá málinu geti hann hugsanlega sektað þá með vís- an í þennan lið laga. „Það yrði þá að telja að þrátt fyr- ir þær ástæður sem verjendurnir gefa upp þá séu þeir að reyna að tefja málið. Sé þeim hins vegar heimilt að segja sig frá málinu af þeim ástæðum sem þeir hafa sjálfir lýst þá getur ekki komið nein sekt,“ segir hann. Eiga þrátt fyrir allt rétt á verjendum  Jón Steinar telur að skipa þurfi nýja verjendur Morgunblaðið/Ómar Verjendur Óvíst er hvort þeir Gestur Jónsson (t.v.) og Ragnar Hall (t.h.) mæta í dómsal í dag. Aðalmeðferð í Al Thani-málinu á að hefjast í dag. Gestur Jónsson og Ragnar Hall sendu í gær frá sér tilkynningu þar sem þeir birtu samskipti sín við Héraðsdóm Reykjavíkur. Með því vildu þeir sýna fram á að þeir hefðu ekki fengið lög- mæltan sólahringsfrest til þess að skila greinargerðum í tveim- ur kærumálum sem Hæstirétt- ur dæmdi í 4. apríl sl. Í kærum verjendanna var far- ið fram á að aðalmeðferð í Al Thani-málinu svonefnda væri frestað um 6-8 vikur og að ákæruvaldið afhenti þeim til- tekin gögn. Verjendurnir sögðu sig frá málinu eftir að þessum kröfum var hafnað og fullyrtu að réttur skjólstæðinga þeirra til rétt- látrar málsmeðferðar og jafn- ræðis við ákæruvaldið hefði ítrekað verið þverbrotinn. Fresturinn ekki virtur YFIRLÝSING VERJENDA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.