Morgunblaðið - 11.04.2013, Side 15

Morgunblaðið - 11.04.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA ekkert nema ostur Fullkomnaðu réttinn með góðum hráefnum. Rifnu ostarnir frá MS innihalda 100% ost. Þú finnur spennandi og girnilegar uppskriftir á gottimatinn.is. ÍSLENSKUR OSTUR Gögn frá Fjársýslu ríkisins verða hér eftir birt og uppfærð á nýju vef- svæði, gogn.island.is. Þar með er hafin sú þróun að gera upplýsingar úr bókhaldi ríkisins aðgengilegar almenningi. Gögnin sem ákveðið hefur verið að birta nú varða árs- hluta- og mánaðaruppgjör ríkis- sjóðs. Upplýsingarnar sem eru ít- arlegri og aðgengilegri en áður geta nýst almenningi, fyrirtækjum í upplýsingatækni og fjölmiðlum. „Markmið þessa verkefnis er að stuðla að því að almenningur hafi greiðan aðgang að fjárhagsupplýs- ingum ríkisins. Gegnsæi er lykil- atriði í þessari vinnu og samfara því aukið aðhald og traust í sam- félaginu,“ segir Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnhagsráðherra, sem kynnti verkefnið í gær. Í tilkynningu segir að mikil- vægur grunnur hafi verið lagður að frekari birtingu fjárhagsupplýs- inga ríkisins. Ítarlegri upplýsing- ar en áður  Fjármál ríkisins aðgengileg á netinu Morgunblaðið/Rósa Braga Fé Verkefnið eykur traust í sam- félaginu, að sögn fjármálaráðherra. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ætla má að kaupverð á byggingarrétti við hlið Tollhúss- ins í Reykjavík, sem auglýstur var í byrjun vikunnar geti numið allt að 1,1 milljarði króna. Þetta er mat Guðmund- ar Theódórs Jónssonar, fasteignasala hjá Fasteigna- markaðinum. Lóðin sem um ræðir er á milli Geirsgötu og Tryggva- götu og er 3.840 fermetrar að flatarmáli. Á henni má reisa sex hæða hús að hámarki 9.350 fermetrar, auk 400 fermetra kjallara. Það er félagið Sítus ehf., sem er í eigu Reykjavík- urborgar, sem auglýsir lóðina en félagið keypti hana af þrotabúi Landsbankans árið 2008. Miðað við byggingarmagn Guðmundur Theódór segir að fermetraverð í miðborg- inni fari eftir lóðinni sem um ræði. „Núna myndi ég segja að byggingarréttur á mjög góð- um stöðum í miðborginni gæti kostað um það bil 110-120 þúsund krónur fermetrinn að gatnagerðargjöldum greiddum. Það er mitt mat,“ segir hann. Því geti söluverð lóðarinnar við Tollhúsið legið á bilinu 900-1.100 milljónir króna þegar miðað er við byggjanlega fermetra á lóðinni. Gæti kostað um milljarð Morgunblaðið/Golli Miðborgin Fermetraverð á góðum lóðum í miðborginni er yfir 100.000 kr.  Fermetraverð á lóðum á góðum stað í miðborginni um 120.000 kr. með gjöldum  Lóð við Tollhúsið nýlega auglýst Fjölmiðlavaktin hefur nú opnað sérstakan vef með upplýsingum um fjölmiðlaum- fjöllun um fram- boð til alþing- iskosninga 2013. Slóðin er www.kosn- ingavakt.is og þar er ætlunin að endurspegla umfjöllun fjölmiðla um kosningarnar og framboð til þeirra, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Creditinfo. Byggt er á inni- haldsgreiningu Fjölmiðlavaktar- innar, sem er aðili að AMEC, alþjóðasamtökum greiningarfyrir- tækja. Á vefnum má m.a. skoða hvernig umræða um íslensk stjórn- málaöfl þróast til loka kosningabar- áttunnar. Sjá má m.a. fjölda frétta eftir framboðum og hvort þær eru taldar hafa jákvæð eða neikvæð áhrif fyrir þau. Fjölmiðlavakt- in með kosn- ingavakt.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.