Morgunblaðið - 11.04.2013, Side 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
1216
6
6
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
1
3
0
0
0
1
Smart fermingargjafir
– okkar hönnun og smíði
Skeifan 2 • Sími 530 5900 • www.poulsen.is
Bílalakk
Blöndum alla bílaliti
og setjum á spreybrúsa
Bjóðum uppá
heildarlausnir
í bílamálun
frá DuPont og
getum blandað
liti fyrir allar
gerðir farartækja
Nicolas Maduro, bráðabirgðaforseti Venesúela og nú
frambjóðandi, heldur á loft mynd af nýlátnum forvera
sínum, vinstrimanninum Hugo Chavez, á kosn-
ingafundi í vikunni í Catia la mar í sambandsríkinu
Vargas. Innanríkisráðherra landsins sagði að örygg-
isráðstafanir í orkuverum hefðu verið hertar og fylgst
væri náið með símalínum og ljósleiðurum neðansjávar.
Yfir 100 þúsund her- og lögreglumenn eiga að tryggja
öryggi á kjördag. Maduro sagði nýlega að launmorð-
ingjar frá El Salvador væru komnir til Venesúela til að
ráða sig af dögum. Þeir væru á vegum bandarískra
embættismanna og hægrisinna í El Salvador.
AFP
Maduro óttast launmorðingja
Ráðamenn í Persaflóaríkinu auð-
uga, Katar, hafa boðist til að kaupa
egypsk ríkisskuldabréf fyrir sem
svarar þrem milljörðum Banda-
ríkjadollara. Auk þess hefur Katar
heitið að fjárfesta fyrir 18 milljarða
dollara í Egyptalandi fram til 2018
og ætlar einnig að sjá Egyptum
fyrir náttúrugasi eftir þörfum, að
sögn BBC.
Efnahagur Egypta hangir á helj-
arþröm, skortur er á bensíni, gjald-
miðillinn hefur hrapað og matur
hækkað í verði vegna verðbólgu.
Hefur ríkið um hríð reynt að fá lán
hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðum upp á
4,8 milljarða dollara. Það hefur ekki
enn tekist vegna þess að stjórn ísl-
amista í Kaíró hefur ekki getað
sætt sig við skilyrðin. Þau eru m.a.
að hætt verði að niðurgreiða ýmsar
vörur og þjónustu í sama mæli og
nú er gert. Nú segir ráðherra áætl-
ana, Ashraf El-Araby, að mjög lík-
lega verði farið fram á enn hærra
lán.
Ráðist á kristna
Ólga er í landinu vegna krepp-
unnar og andstöðu veraldlega sinn-
aðra Egypta við íslamista Moham-
meds Morsis forseta. Einnig hafa
verið mannskæð átök vegna árása
íslamísta á kristna menn, kopta
sem eru um 10% þjóðarinnar. Ræt-
ur þeirra eru djúpar, talið er að
meira en helmingur Egypta hafi
verið kristinn þegar múslímar lögðu
landið undir sig á sjöundu öld eftir
Krist. En koptar hafa áratugum
saman kvartað undan því að þeim
sé mismunað. Hlutskipti þeirar hef-
ur samt versnað mjög eftir að
Hosni Mubarak forseta var steypt
fyrir tveim árum. kjon@mbl.is
Veita Egyptum
fjárhagsaðstoð
Katar lánar Morsi milljarða dollara
AFP
Frið! Egypti með kóran og kross
mótmælir ofsóknum gegn kristnum.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hollensk stjórnvöld hafa látið inn-
kalla um 50.000 tonn af nautakjöti
sem selt hefur verið til hundraða fyr-
irtækja í Hollandi og í nokkrum öðr-
um Evrópulöndum en óttast er að
það sé blandað hrossakjöti. Ekki
mun vera hægt að ganga með óyggj-
andi hætti úr skugga um uppruna
vörunnar, segir í frétt BBC.
Vegna þessarar óvissu er ekki
hægt að fullvissa sig um að farið hafi
verið eftir öllum reglum um vinnslu
vörunnar en stundum hafa fundist
hrossakjötsleifar í frosnu hakki
vegna þess að tæki hafa ekki verið
þrifin nógu vel.
Sumt af kjötinu hafnaði í Þýska-
landi, Frakklandi og á Spáni. „Kaup-
endur kjötsins hafa sennilega þegar
unnið það og selt áfram,“ sagði í til-
kynningu frá yfirvöldum matvæla-
eftirlitsins í Hollandi í gær. „En
þeim ber þá að láta eigin viðskipta-
vini vita af þessu.“
Fullyrt er að engar vísbendingar
séu um að kjötið sé varasamt fólki en
komið hafa upp mál í öðrum Evr-
ópulöndum þar sem fundist hafa leif-
ar af hættulegum lyfjum í hrossa-
kjöti. Nú er farið að gera DNA-
rannsóknir á kjöti til að kanna hvort
í því leynist slíkar leifar.
Innkalla nautakjöt
Um 50.000 tonn gætu verið blönduð hrossakjöti
Mengun og vörusvik
» Varað er við hrossakjötinu
vegna ótta við að það geti ver-
ið mengað lyfjum.
» En fyrst og fremst er um að
ræða vörusvik. Neytendur fá
kjöt sem ekki er af nauti.