Morgunblaðið - 11.04.2013, Qupperneq 25
25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
Kuldakast í borginni Kalsaveður var í miðborginni í gær en sól skein í heiði og bjart og glatt var yfir mannlífinu.
Ómar
Jafnaðarhug-
sjónin er auðlind –
það sjáum við þeg-
ar við lítum til öfl-
ugustu velferð-
arsamfélaga heims,
eins og Norð-
urlanda. Krafan um
jöfnuð er lifandi
stefna að verki.
Hún miðar að því
að byggja upp sam-
félag af sömu umhyggju og við
byggjum upp heimili. Því er ætl-
að að veita öryggi og vera skjól.
Þess vegna hefur það haft ótví-
ræða þýðingu fyrir íslenskt sam-
félag að það skuli hafa verið jafn-
aðarmenn sem haldið hafa um
stjórnartauma hin erfiðu ár eftir
hrun.
Á síðustu fjórum árum hafa
jafnaðarmenn á Íslandi náð að
jafna lífskjör í landinu. Við
breyttum skattkerfinu – og já, við
hækkuðum skatta á þá hæst
launuðu, en um leið hlífðum við
láglaunahópunum og vörðum
millitekjuhópinn. Við jukum
stuðning við ungar barna-
fjölskyldur, hækkuðum barna-
bætur, hækkuðum húsa-
leigubætur og drógum úr
skerðingum.
Við stórhækkuðum vaxtabæt-
ur og greiddum samtals hundrað
milljarða í þær og barnabætur á
kjörtímabilinu – meira en nokkur
önnur ríkisstjórn hefur nokkru
sinni komist nálægt. Kaupmáttur
lægstu launa er hærri nú en hann
var í góðærinu. Skattbyrðin er
lægri. Ójöfnuður ráðstöf-
unartekna í landinu er nú helm-
ingi minni en árið 2007 þegar
hann varð mestur.
Það skiptir máli
hverjir stjórna. Okk-
ur tókst það sem
engri annarri þjóð
hefur tekist, sem
hefur lent í kreppu:
Að verja kjör hinna
lægst launuðu. Sam-
hliða því að náðist að
minnka halla rík-
issjóðs úr 230 millj-
örðum í 3,6 milljarða
á fjórum árum,
lækka verðbólgu úr 18% í 4,5%,
minnka atvinnuleysi um helming
og … verja velferðarkerfið.
Nei, krafan um jöfnuð er ekki
klisja – hún er lifandi stefna.
Félagslegar rannsóknir hafa
sýnt fram á að í samfélögum þar
sem jöfnuður er í hávegum hafð-
ur er minna um öfga og glæpi.
Jafnaðarstefnan vinnur gegn fé-
lagslegum vanda og andlegri van-
líðan. Hún vinnur gegn kynja-
mismunun og menntunarskorti.
Jafnaðarstefnan stuðlar að al-
mennri velmegun, sjálfbærni og
minni sóun.
Hún stuðlar að samheldni,
gagnkvæmu trausti og mannvirð-
ingu.
Þannig samfélag vil ég.
» Okkur tókst það
sem engri annarri
þjóð hefur tekist, sem
hefur lent í kreppu:
Að verja kjör hinna
lægst launuðu.
Ólína Þorvarðardóttir
Höfundur er alþingismaður Sam-
fylkingarinnar í NV-kjördæmi.
Krafan um jöfnuð
er ekki klisja
Eftir Ólínu
Þorvarðardóttur
Í dag, næstum fjór-
um og hálfu ári, eftir
hið mikla áfall í fjár-
málakerfinu í október
2008, er fjöldi íslenskra
heimila enn í alvar-
legum skuldavanda.
Lánaformum hefur
verið kennt um þennan
vanda; framan af eink-
um hinum svokölluðum
myntkörfulánum og nú
upp á síðkastið verðtryggðum lánum.
Þetta eru nærtækar og ekki óeðlileg-
ar skýringar. Fyrir liggur að gengi
krónunnar féll verulega á árunum
2008 og 2009 og verðbólgan tók stökk
upp á við. Hvort tveggja hlaut að
valda umræddum heimilum veruleg-
um búsifjum.
Gengislækkanir og verðbólga
eru ekki nýnæmi
Á hinn bóginn má ekki gleyma því
að gengislækkanir og verðbólga hafa
verið landlæg fyrirbæri á Íslandi
áratugum saman. Gengið hefur iðu-
lega fallið meira og verðbólga verið
hraðari á árum áður, jafnvel eftir að
verðtrygging varð almenn. Eitt af
mörgum dæmum um þetta eru árin
rétt fyrir og um 1990 en þá var verð-
bólga miklu meiri en nú og gengið
féll þá einnig mjög mikið. Þá kom
hins vegar ekki upp svipaður skulda-
vandi heimila.
Því má ljóst vera að það hljóta að
vera aðrir þættir en verð- eða geng-
istryggingin ein sem valda því að
heimilin eiga nú í svona miklum
skuldavanda. Augljósar ástæður eru
miklar lækkanir annars vegar í ráð-
stöfunartekjum heimilanna og hins
vegar í fasteignaverði. Í þessari
grein er því haldið fram að hinar
miklu skattahækkanir undanfarin ár
eigi verulegan þátt í
hvoru tveggja.
Ráðstöfunartekjur
heimilanna
Samkvæmt opinber-
um gögnum Hagstof-
unnar hefur kaup-
máttur
ráðstöfunartekna
heimilanna lækkað
mjög verulega frá
árinu 2008. Á árinu
2011, hinu nýjasta í
gagnaröð Hagstof-
unnar, var kaupmáttur ráðstöf-
unartekna hvorki meira né minna en
24% eða næstum fjórðungi minni en
hann var á árinu 2007. Á árinu 2012
er líklegt að hann hafi verið um 20%
lægri (sjá meðfylgjandi línurit). Þessi
lækkun ráðstöfunartekna stafar auð-
vitað fyrst og fremst af lækkun raun-
launa og minnkaðri atvinnu, en hún
stafar einnig af aukinni skattheimtu.
Hækkun skatta
Skattar hafa sem kunnugt er verið
stórhækkaðir frá árinu 2008. Þessar
hækkanir taka til nánast allra op-
inberra gjalda, allt frá útsvarinu og
ýmsum sérstökum gjöldum til sveit-
arfélaga, til virðisaukaskatts, tekju-
skatts og aragrúa sérgjalda sem
renna í ríkissjóð. Þessi aukna skatt-
heimta hefur m.a. haft tvennt í för
með sér. Í fyrsta lagi hefur hún
lækkað þann hluta af tekjum heim-
ilanna sem unnt er að ráðstafa til að
greiða vexti og afborganir af lánum.
Hins vegar hefur hún dýpkað og
framlengt kreppuna.
Hinir hækkuðu skattar koma auð-
vitað mismunandi niður á heim-
ilunum, ekki síst þegar tekið er tillit
til þeirra millifærslna sem hluti
þeirra er notaður í. Ekki er fjarri lagi
að ætla að þau heimili sem hafa um
eða yfir meðaltekjur greiði nú að
jafnaði 10% hærri hluta tekna sinna í
skatta. Þessir auknu skattar gætu
því hæglega samsvarað hálfri til
einni milljón króna á ári fyrir þessi
heimili að jafnaði. Þá upphæð er með
öðrum orðum ekki lengur unnt að
nota til að borga af lánum og munar
um minna.
Skattar og tekjur heimilanna
Kreppan sem hófst árið 2008 hefur
reynst miklu langvinnari en reiknað
var með í upphafi. Samkvæmt áætl-
un Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ís-
lenskra stjórnvalda frá nóvember
2008 hefði henni átt að vera á lokið
árið 2012. Á því ári reyndist verg
landsframleiðsla hins vegar enn 5,2%
minni en hún var 2007 (sjá meðfylgj-
andi línurit). Jafnframt eru hagvaxt-
arhorfur á komandi árum nú taldar
slakar.
Ástæðan fyrir þessum dapurlega
árangri er öðru fremur röð mistaka í
efnahagsstjórninni sem ekki var séð
fyrir er hinar upphaflegu áætlanir
voru gerðar. Ein þessara mistaka
eru hinar miklu skattahækkanir.
Skattahækkanirnar hafa dregið úr
framtaki, fjárfestingum og einka-
neyslu sem eru hefðbundnir aflvakar
hagvaxtar. Allt þetta hefur verið í
sögulegu lágmarki undanfarin ár.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar er
jafnvel vafasamt að þær fjárfest-
ingar sem í hefur verið lagt und-
anfarin fjögur ár hafi dugað fyrir af-
skriftum og rýrnun þeirra fjármuna
sem til eru. Þá þarf ekki að orðlengja
það að framlenging kreppunnar og
þar með lítill kaupmáttur og brott-
flutningur fólks frá landinu hefur
þrýst fasteignaverði lengra niður og
komið í veg fyrir að það hækkaði með
eðlilegum hætti.
Lokaorð
Þannig sjáum við að skattahækk-
anirnar stuðla að skuldavanda heim-
ilanna með a.m.k. þrennum hætti. Í
fyrsta lagi lækka þær beinlínis ráð-
stöfunartekjur flestra heimila. Í öðru
lagi hafa þær framlengt kreppuna og
lækkað þannig raunlaun heimilanna
umfram það sem að öðrum kosti
hefði orðið. Í þriðja lagi hefur fram-
lenging kreppunnar og hið dauðyfl-
islega ástand í hagkerfinu haldið
fasteignaverði lengur niðri en efni
stóðu til.
Allt hefur þetta bitnað illilega á
skuldugum heimilum og aukið á
vanda þeirra. Erfitt er að segja til
um það hversu sterk þessi skatta-
áhrif eru. Af ofangreindu er þó full-
víst að þau eru veruleg. Það sorgleg-
asta er að þessi aukni vandi
skuldugra heimila sem stafar af
skattahækkunum var alger óþarfi.
Hann er afleiðing rangrar efnahags-
stefnu sem gripið var til af fyrir-
hyggjuleysi og að því er virðist fyrst
og fremst til þess að fullnægja úrelt-
um kreddum. Öll þjóðin borgar brús-
ann og því miður er hvað minnst borð
fyrir báru hjá skuldugum heimilum.
Eftir Ragnar
Árnason
»… það hljóta að vera
aðrir þættir en verð-
eða gengistryggingin
ein sem valda því að
heimilin eiga nú í svona
miklum skuldavanda.
Ragnar Árnason
Höfundur er prófessor í
hagfræði við Háskóla Íslands.
Háir skattar og skuldavandi heimila
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann (vísitala)
Heimild: Hagstofan til 2011 (2012 spá)
VLF (vísitala)
Heimildir: Hagstofan (2013 spá)
0,95
0,90
0,85
0,80
0,75
0,70
1,02
1,00
0,98
0,96
0,94
0,92
0,90
0,88
0,86
0,84
Rauntölur
Rauntölur
Spá
Spá
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012