Morgunblaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013 Kuldakast í borginni Kalsaveður var í miðborginni í gær en sól skein í heiði og bjart og glatt var yfir mannlífinu. Ómar Jafnaðarhug- sjónin er auðlind – það sjáum við þeg- ar við lítum til öfl- ugustu velferð- arsamfélaga heims, eins og Norð- urlanda. Krafan um jöfnuð er lifandi stefna að verki. Hún miðar að því að byggja upp sam- félag af sömu umhyggju og við byggjum upp heimili. Því er ætl- að að veita öryggi og vera skjól. Þess vegna hefur það haft ótví- ræða þýðingu fyrir íslenskt sam- félag að það skuli hafa verið jafn- aðarmenn sem haldið hafa um stjórnartauma hin erfiðu ár eftir hrun. Á síðustu fjórum árum hafa jafnaðarmenn á Íslandi náð að jafna lífskjör í landinu. Við breyttum skattkerfinu – og já, við hækkuðum skatta á þá hæst launuðu, en um leið hlífðum við láglaunahópunum og vörðum millitekjuhópinn. Við jukum stuðning við ungar barna- fjölskyldur, hækkuðum barna- bætur, hækkuðum húsa- leigubætur og drógum úr skerðingum. Við stórhækkuðum vaxtabæt- ur og greiddum samtals hundrað milljarða í þær og barnabætur á kjörtímabilinu – meira en nokkur önnur ríkisstjórn hefur nokkru sinni komist nálægt. Kaupmáttur lægstu launa er hærri nú en hann var í góðærinu. Skattbyrðin er lægri. Ójöfnuður ráðstöf- unartekna í landinu er nú helm- ingi minni en árið 2007 þegar hann varð mestur. Það skiptir máli hverjir stjórna. Okk- ur tókst það sem engri annarri þjóð hefur tekist, sem hefur lent í kreppu: Að verja kjör hinna lægst launuðu. Sam- hliða því að náðist að minnka halla rík- issjóðs úr 230 millj- örðum í 3,6 milljarða á fjórum árum, lækka verðbólgu úr 18% í 4,5%, minnka atvinnuleysi um helming og … verja velferðarkerfið. Nei, krafan um jöfnuð er ekki klisja – hún er lifandi stefna. Félagslegar rannsóknir hafa sýnt fram á að í samfélögum þar sem jöfnuður er í hávegum hafð- ur er minna um öfga og glæpi. Jafnaðarstefnan vinnur gegn fé- lagslegum vanda og andlegri van- líðan. Hún vinnur gegn kynja- mismunun og menntunarskorti. Jafnaðarstefnan stuðlar að al- mennri velmegun, sjálfbærni og minni sóun. Hún stuðlar að samheldni, gagnkvæmu trausti og mannvirð- ingu. Þannig samfélag vil ég. » Okkur tókst það sem engri annarri þjóð hefur tekist, sem hefur lent í kreppu: Að verja kjör hinna lægst launuðu. Ólína Þorvarðardóttir Höfundur er alþingismaður Sam- fylkingarinnar í NV-kjördæmi. Krafan um jöfnuð er ekki klisja Eftir Ólínu Þorvarðardóttur Í dag, næstum fjór- um og hálfu ári, eftir hið mikla áfall í fjár- málakerfinu í október 2008, er fjöldi íslenskra heimila enn í alvar- legum skuldavanda. Lánaformum hefur verið kennt um þennan vanda; framan af eink- um hinum svokölluðum myntkörfulánum og nú upp á síðkastið verðtryggðum lánum. Þetta eru nærtækar og ekki óeðlileg- ar skýringar. Fyrir liggur að gengi krónunnar féll verulega á árunum 2008 og 2009 og verðbólgan tók stökk upp á við. Hvort tveggja hlaut að valda umræddum heimilum veruleg- um búsifjum. Gengislækkanir og verðbólga eru ekki nýnæmi Á hinn bóginn má ekki gleyma því að gengislækkanir og verðbólga hafa verið landlæg fyrirbæri á Íslandi áratugum saman. Gengið hefur iðu- lega fallið meira og verðbólga verið hraðari á árum áður, jafnvel eftir að verðtrygging varð almenn. Eitt af mörgum dæmum um þetta eru árin rétt fyrir og um 1990 en þá var verð- bólga miklu meiri en nú og gengið féll þá einnig mjög mikið. Þá kom hins vegar ekki upp svipaður skulda- vandi heimila. Því má ljóst vera að það hljóta að vera aðrir þættir en verð- eða geng- istryggingin ein sem valda því að heimilin eiga nú í svona miklum skuldavanda. Augljósar ástæður eru miklar lækkanir annars vegar í ráð- stöfunartekjum heimilanna og hins vegar í fasteignaverði. Í þessari grein er því haldið fram að hinar miklu skattahækkanir undanfarin ár eigi verulegan þátt í hvoru tveggja. Ráðstöfunartekjur heimilanna Samkvæmt opinber- um gögnum Hagstof- unnar hefur kaup- máttur ráðstöfunartekna heimilanna lækkað mjög verulega frá árinu 2008. Á árinu 2011, hinu nýjasta í gagnaröð Hagstof- unnar, var kaupmáttur ráðstöf- unartekna hvorki meira né minna en 24% eða næstum fjórðungi minni en hann var á árinu 2007. Á árinu 2012 er líklegt að hann hafi verið um 20% lægri (sjá meðfylgjandi línurit). Þessi lækkun ráðstöfunartekna stafar auð- vitað fyrst og fremst af lækkun raun- launa og minnkaðri atvinnu, en hún stafar einnig af aukinni skattheimtu. Hækkun skatta Skattar hafa sem kunnugt er verið stórhækkaðir frá árinu 2008. Þessar hækkanir taka til nánast allra op- inberra gjalda, allt frá útsvarinu og ýmsum sérstökum gjöldum til sveit- arfélaga, til virðisaukaskatts, tekju- skatts og aragrúa sérgjalda sem renna í ríkissjóð. Þessi aukna skatt- heimta hefur m.a. haft tvennt í för með sér. Í fyrsta lagi hefur hún lækkað þann hluta af tekjum heim- ilanna sem unnt er að ráðstafa til að greiða vexti og afborganir af lánum. Hins vegar hefur hún dýpkað og framlengt kreppuna. Hinir hækkuðu skattar koma auð- vitað mismunandi niður á heim- ilunum, ekki síst þegar tekið er tillit til þeirra millifærslna sem hluti þeirra er notaður í. Ekki er fjarri lagi að ætla að þau heimili sem hafa um eða yfir meðaltekjur greiði nú að jafnaði 10% hærri hluta tekna sinna í skatta. Þessir auknu skattar gætu því hæglega samsvarað hálfri til einni milljón króna á ári fyrir þessi heimili að jafnaði. Þá upphæð er með öðrum orðum ekki lengur unnt að nota til að borga af lánum og munar um minna. Skattar og tekjur heimilanna Kreppan sem hófst árið 2008 hefur reynst miklu langvinnari en reiknað var með í upphafi. Samkvæmt áætl- un Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ís- lenskra stjórnvalda frá nóvember 2008 hefði henni átt að vera á lokið árið 2012. Á því ári reyndist verg landsframleiðsla hins vegar enn 5,2% minni en hún var 2007 (sjá meðfylgj- andi línurit). Jafnframt eru hagvaxt- arhorfur á komandi árum nú taldar slakar. Ástæðan fyrir þessum dapurlega árangri er öðru fremur röð mistaka í efnahagsstjórninni sem ekki var séð fyrir er hinar upphaflegu áætlanir voru gerðar. Ein þessara mistaka eru hinar miklu skattahækkanir. Skattahækkanirnar hafa dregið úr framtaki, fjárfestingum og einka- neyslu sem eru hefðbundnir aflvakar hagvaxtar. Allt þetta hefur verið í sögulegu lágmarki undanfarin ár. Samkvæmt tölum Hagstofunnar er jafnvel vafasamt að þær fjárfest- ingar sem í hefur verið lagt und- anfarin fjögur ár hafi dugað fyrir af- skriftum og rýrnun þeirra fjármuna sem til eru. Þá þarf ekki að orðlengja það að framlenging kreppunnar og þar með lítill kaupmáttur og brott- flutningur fólks frá landinu hefur þrýst fasteignaverði lengra niður og komið í veg fyrir að það hækkaði með eðlilegum hætti. Lokaorð Þannig sjáum við að skattahækk- anirnar stuðla að skuldavanda heim- ilanna með a.m.k. þrennum hætti. Í fyrsta lagi lækka þær beinlínis ráð- stöfunartekjur flestra heimila. Í öðru lagi hafa þær framlengt kreppuna og lækkað þannig raunlaun heimilanna umfram það sem að öðrum kosti hefði orðið. Í þriðja lagi hefur fram- lenging kreppunnar og hið dauðyfl- islega ástand í hagkerfinu haldið fasteignaverði lengur niðri en efni stóðu til. Allt hefur þetta bitnað illilega á skuldugum heimilum og aukið á vanda þeirra. Erfitt er að segja til um það hversu sterk þessi skatta- áhrif eru. Af ofangreindu er þó full- víst að þau eru veruleg. Það sorgleg- asta er að þessi aukni vandi skuldugra heimila sem stafar af skattahækkunum var alger óþarfi. Hann er afleiðing rangrar efnahags- stefnu sem gripið var til af fyrir- hyggjuleysi og að því er virðist fyrst og fremst til þess að fullnægja úrelt- um kreddum. Öll þjóðin borgar brús- ann og því miður er hvað minnst borð fyrir báru hjá skuldugum heimilum. Eftir Ragnar Árnason »… það hljóta að vera aðrir þættir en verð- eða gengistryggingin ein sem valda því að heimilin eiga nú í svona miklum skuldavanda. Ragnar Árnason Höfundur er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Háir skattar og skuldavandi heimila Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann (vísitala) Heimild: Hagstofan til 2011 (2012 spá) VLF (vísitala) Heimildir: Hagstofan (2013 spá) 0,95 0,90 0,85 0,80 0,75 0,70 1,02 1,00 0,98 0,96 0,94 0,92 0,90 0,88 0,86 0,84 Rauntölur Rauntölur Spá Spá 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.