Morgunblaðið - 11.04.2013, Side 31

Morgunblaðið - 11.04.2013, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013 ✝ Svanur Karls-son fæddist á Stokkseyri 2. ágúst 1922. Hann lést á dvalarheimilinu Grund laugardag- inn 30. mars sl. Foreldrar hans voru Karl Frímann Magnússon, for- maður og útvegs- maður á Stokks- eyri, f .4.10. 1886, d. 30.1. 1944, og seinni kona hans, Kristín Tómasdóttir hús- freyja, f. 4.6. 1888, d. 12.2. 1967. Systkini Svans eru Karl Magn- ús, f. 1911, d. 1938, Sigríður Bjarney, f. 1913, d. 1998, Kar- ítas, f. 1914, d. 2001, Svanlaug, f. 1915, d. 1920, Tómas, f. 1923, d. 2008, Jóhanna Pálína, f. 1925, Ólöf, f. 1927, d. 2003, og Sesselja Margrét, f. 1929, en Jóhanna og Sesselja lifa nú einar þeirra systkina. Fyrri kona Svans var Ragn- heiður Gísladóttir, húsfreyja, f. 1922, d. 1985, og síðari kona hans var Sigríður Guðný Páls- dóttir, hjúkrunar- kona, f. 1932, d. 2004. Svanur hóf ung- ur að stunda sjó, fyrst með föður sín- um á bátum hans og Tómasi bróður sínum, seinna fór hann í siglingar með Norðmönnum á stríðsárunum seinni. Hann lagðist rétt rúmlega tvítugur inn á Víf- ilsstaðahælið með berkla og síð- an öðru sinni um tíu árum seinna og var samtals hálft fimmta ár á Vífilsstaðahælinu. Eftir stríð ók Svanur leigubíl um nokkurra ára skeið, en réðst á ný í siglingar um 1950 á skip- um Eimskipafélagsins og Jökla, en síðustu starfsárin vann hann á vélaverkstæði Eimskipa- félagsins. Svanur var lengst af búsettur í Reykjavík, síðustu áratugina á Bergþórugötu 16 a. Útför hans fer fram frá Lang- holtskirkju fimmtudaginn 11. apríl kl. 13. Orðstír fagur aldrei deyr óhætt má það skrifa á söguspjöldum síðar meir, sagan þín mun lifa. (G.J.) Já kæri Svanur, sagan þín mun svo sannarlega lifa eins og segir í þessu ljóði. Þótt þú syngir og dansir ekki meir hérna megin muntu örugglega halda því áfram í Paradís. Orðstír þinn mun ávallt lifa í hjörtum okkar og í öllum ljóðunum sem þú skildir eftir þig. Við systkinin frá Ásbyrgi minnumst þín með virðingu og væntumþykju í hjarta. Í hugann koma minningabrot frá því að við vorum börn á Stokkseyri. Þegar þú komst í heimsókn alltaf jafn glæsilegur og glaður, gjarnan með fulla tösku af fínum fötum frá útlöndum og alltaf var myndavélin meðferðis og þú varst óspar á að taka myndir af okkur. Enn í dag eigum við þess- ar myndir úr búi foreldra okkar. Þú varst alltaf svo stoltur af frændfólkinu þínu og talaðir allt- af um hvað þú værir lánsamur að eiga allar þessar fallegu frænk- ur. Dans og söngur var þér alltaf hugleikinn og þú samdir mikið af ljóðum, það var svo gaman að hlusta á þig fara með ljóðin þín. Á þessari kveðjustund finnst okkur viðeigandi ljóð þitt „Í Stokkseyrarfjöru“ þar sem við ólumst öll upp. Í fjörunni fyrir austan fyllist ég vorsins þrá. Í minninga fagnandi faðmi finn ég mitt hjarta slá. Tjarnarslétt er tindrandi hafið á Trölllendum örlar við stein og Músarsund greiðir mörgum för þótt marri kjölur við hlein. Sundvarða og Svartiklettur sitja þögul og keik og Baðstofuklettarnir bjóða heim börnum í kátum leik. Í fjörunni fyrir austan fagnar mitt hjarta á ný þar sindrar sólskin í broti og sunnan golan er hlý (Svanur Karlsson) Kæri frændi, takk fyrir allt, megir þú hvíla í friði. Guð geymi þig. Við vottum öllum ættingjum og vinum innilega samúð. Guð blessi ykkur öll. Börn Ólafar og Víglundar, Guðbjörg Kristín, Magnea Inga, Hafrún Ólöf, Sverrir, Jóhann Sigurður, Lilja, Íris og Ragnheiður. Músikant og myndasmiður af mikilli virðing ég heilsa yður og hylli sjötugan sómamann. Glaðan í bragði og léttan í lundu ljúflinginn mesta á góðri stundu sem kynstur af ljóðum kann. Við Stokkseyrarbrimið upp var alinn og alltaf verður með hetjum talinn sá flest til frægðar vann. Með norskum út í orrahríð eftir fisksölu- og músíktíð þá voru stríðin ströng. Á úthaldi var engin bið Ingólfs Müllers Jöklalið hóf upp siglinga söng. Síðan hófust Fossaföll ferðast var um höfin öll flutt var björg í bú. En erfið reyndist útivist ástvinum fjær og margs var misst sem veitir von og trú, því skyldi haldið hafnar til hoppað í land við gítarspil, syngjum og dönsum og segjum takk og keyrum Kadilakk. (R.S.) Þannig lýsti faðir okkar, Rík- arður Sigmundsson, lífshlaupi Svans í léttum brag sem hann flutti honum sjötugum. Svanur móðurbróðir okkar var okkur afar kær, enda heillandi maður og mikill gleðigjafi. Við þökkum yndislegar minningar. Margrét, Sigmundur Karl og Hildur, Linda Sólbjörg, Trausti og Þyri. Mér finnst birta og batna allt/ bara við að sjá þig … kvað hann oft er við hittumst og síðast heyrði ég hann segja þetta fyrir nokkrum vikum. Svanur var lip- ur hagyrðingur og gott skáld en fyrst og fremst var hann góður maður. Hann lifði langa ævi og varð mörgum gleðigjafi – ekki síst börnum en alls staðar löð- uðust börn að honum – og konur því engum manni hef ég kynnst sem eins vel kunni að umgangast konur og hann var mestur hof- maður og kavalér sem ég hef hitt um dagana. Síðustu tvö árin undi hann við góða umhyggju á efstu hæð Grundar vegna ellibilunar og minnisleysis en þessi kurteisi hans og virðing fyrir konum var svo inngróin og eðlislæg að jafn- vel þær sem komnar voru á tí- ræðisaldurinn fengu glampa í augu bara við að sjá hann. Svanur var sjómaður lengst af ævi; byrjaði ungur á sjó með föð- ur sínum og Tómasi, bróður sín- um, en báðir voru annálaðir sjó- sóknarar frá Stokkseyri. Seinna lá leið hans út um heimsins höf. Hann sigldi með Norðmönnum á stríðsárunum, en fékk berkla og varð að leggjast inn á Vífilsstaði í blóma lífsins. Það má nærri geta að það hefur verið ungum manni þung raun að vera á spítala í hálft fimmta ár. Samt heyrði ég hann aldrei segja eitt æðruorð um það frekar en annað sem dreif á daga hans. Hann tók öllu með sömu ró og gamansemi, en það þýddi þó engan veginn að lognmolla væri yfir honum. Öðru nær. Hann var geðríkur og var oft hrjúfur – en það var ytra byrði hans. Lítil barnshönd gat dimmu í dagsljós breytt og hann ljómaði þá upp á svipstundu. Á Vífilsstöðum kynntist Svanur Ragnheiði, fyrri konu sinni, en samband þeirra var farsælt og hamingjuríkt. Mér er enn í fersku minni hvað mér fannst þau glæsilegt par, þegar ég sá þau fyrst á útmánuðum 1984, en þá átti Ragnheiður aðeins rúmt ár ólifað. Örlögin báru svo Svan til móts við okkur, þegar hann og Sigríð- ur, mágkona mín og seinni kona hans, hófu sambúð árið 1986, en hún lést árið 2004. Samband þeirra var fallegt og þeim báðum mjög hamingjuríkt. Þau áttu saman yndisleg átján ár, sóttu leikhús og tónleika, ferðuðust um heiminn og nutu lífsins. Ein- hvern tíma á þeim árum orti hann til hennar þetta ljóð: Flosgrænir bjargfingur birtuna grípa frá blessaðri sól. Von mín er traust eins og veggur bjargsins og veitir mér skjól. Sólstafir tipla á tærbláum öldum og töfra mér sýn. Í fögnuði mínum er ferðinni heitið til þín. Svanur var fram eftir ævi býsna liðtækur í hirð Bakkusar, en sneri við blaðinu árið 1976 og fór til Freeport og varð eftir það eindreginn og hreinn í þeirri góðu hirð sem safnast hefur sam- an undir merkjum SÁÁ og AA- samtakanna. Hann sótti fundi í Langholtskirkju á meðan hann hafði heilsu til, í meira en þrjá áratugi. Hann bar mótlæti seinustu ára með karlmannlegu æðruleysi og reisn. Að leiðarlokum þökkum við Álfhildur og fjölskylda okkar honum einstaka tryggð og alla þá gleði sem hann veitti okkur og barnabörnum okkar með þeim orðum sem Kolfinna litla, dótt- urdóttir okkar, sagði eitt sinn upp úr eins manns hljóði: Hann Svanur er góður. Bárður G. Halldórsson. Við glaða leiki bernskunnar í nánd við hafið á Stokkseyri ólst hann upp sem nú er genginn á vit eilífðar. Hafið heillandi frá fyrstu tíð og bar hann víða. Lífsbjörgina sótti hann úr sjó þegar aldur gaf efni til. Hann varð mótoristi á litlum bát, síðar á stærri skipum. Farmaður er sigldi um ókunn höf á vit framandi landa. Næmt auga fyrir því sem á vegi varð og frá- sagnargáfa til að greina frá bæði því stóra sem allir sjá og hinu smáa sem fáir greina einkenndi hann. Það gerði og góð greind og áhugi fyrir tungumálinu, tónlist- inni, ljóðlistinni og fyrir mannlíf- inu öllu. Allt eru þetta með öðru þræðir í lífsvef Svans Karlssonar sem sofnað hefur svefninum langa eftir góða ævi. Lífssigling hans var ekki ætíð um lognsævi. Hann háði sína Jakobsglímu í baráttu við berklana á unga aldri og síðar við ógnvaldinn Bakkus. Í hvoru tveggja hafði hann fullan sigur og lagði síðar mörgum lið í starfi AA-samtakanna áratugum saman. Hann var kempa að gam- allar tíðar hætti. Karlmannlegur og stoltur, hreinn og beinn í sam- skiptum, æðrulaus í mótlæti, vin- fastur og tryggur sínu fólki. Hjálpsemi og greiðvikni hans átti sér vart mörk. Þar nutu hans margir í bílaviðgerðum sem og í öðru því er hann veitti lið. Svanur var glaðastur þegar fjölskyldan var samankomin og lék á als oddi. Hagmæltur og orðhagur. Minnið einstakt þegar hann flutti kvæði. Oft ljóð eftir Laxness en stundum Tómas. Iðulega flutti hann frumort tæki- færiskvæði með heilla- og ham- ingjuóskum. Þar voru orð mælt af hlýhug og vinarþeli. Dýrmæt- ar gjafir í veganesti. Svanur gat líka flutt frumsamda kvæðabálka um lífsvegferðina. Þar kom fram næmi hans og lífsskilningur og ekki síður færni til að setja hugs- anir í orð. Hann átti auðvelt með að verða miðpunktur alls og naut sín vel í sviðsljósinu. Hann hefði sómt sér vel sem hirðskáld Nor- egskonunga fyrri alda að flytja þar drápur til konunga og kvæði í veislum. Sigla um höf og kanna lönd og setja í orð það er fyrir auga bar. Svanur kvæntist Sigríði móð- ursystur minni og áttu þau sam- an góða vegferð en hún lést fyrir aldur fram og varð hann þá ekkjumaður öðru sinni. Þau Sigga og Svanur reyndust mér og minni fjölskyldu með ein- stökum hætti og verður sú þökk seint goldin. Þau voru sonum mínum sem afi og amma í öllu. Ferðirnar með þeim austur fyrir fjall á bernskuslóðir Svans eru ógleymanlegar sem og heim- sóknir á Bergþórugötuna eða komur þeirra til okkar norður í land. Allt er bjart og ljóma sveip- að í minningunni um þau. Við fjölskyldan minnumst Svans með miklum hlýhug og þakklæti. Það varð okkur hjónunum til mikillar gleði að fá að hitta hann hressan nú í janúar sl. þar sem hann dvaldi á Grund. Hann var sjálf- um sér líkur og gladdist innilega gestakomunni og flutti okkur sem fyrr kvæði og góðar óskir. Þá minningu berum við með okk- ur. Við biðjum honum blessunar í nýrri vegferð eilífðarinnar. Guð blessi minningu Svans Karlsson- ar. Hann var ljós á vegi okkar. Arnaldur Bárðarson, Ingibjörg Jóhannsdóttir og synir. Hann Svanur verður okkur alltaf minnisstæður. Hann var hávaxinn, beinn í baki og gránaði varla hárið fyrr en undir það síð- asta, hafði góðlegan augnsvip, þó mishvassan, bak við gleraugun, yfirvararskeggið klippt og skorið að hætti snyrtimenna og mál- rómurinn glaðvær. Ullarjakki og gljáburstaðir skór og þegar ekki var ekið á Buick, þá Cadillac. Það var í senn stíll og reisn yfir Svani Karlssyni þar sem hann kom og fylgdi honum glaðvær og kær- komin návist. Nú er hann allur, kominn heim til sinna. Við að- standendur og vinir hans þökk- um fyrir góð kynni og skemmti- legar samverustundir gegnum árin. Hann Svanur var skáldfugl í eðli sínu. Hann naut skáldskapar og orti sjálfur falleg og grípandi kvæði. Ljóð Höllu Eyjólfsdóttur, Svanurinn minn syngur, minnir mig á ævi þess Svans sem við kveðjum nú, það kvæði var Sig- ríði Pálsdóttur móðursystur minni kært, hún varð seinni kona Svans. Við kölluðum þau stund- um í gamni svanahjónin og ef til vill lýsir kvæðið vel þeirri lífs- gleði og trega sem gæti hafa ver- ið þeirra. Í skáldskap er sagt að sumir leiti hins hreina sanna tóns og þekki hann þegar þeir heyra hann en lífsafstaðan mótast af leitinni. Þannig var það með lífs- afstöðu Svans Karlssonar, hann leitaðist við að haga lífi sínu í sátt við sjálfan sig og lifa innihalds- ríku lífi og miðla jákvæðri lífs- afstöðu til annarra. Við vinir hans sáum þessa lífssýn í kvæð- um hans og í samræðum við hann. Öðrum miðlaði af hann reynslu og þekkingu á öðrum vettvangi og studdi dyggilega. Svanur starfaði við vélavið- gerðir. Oft stóðum við Svanur yf- ir brokkgengri bílvél í regni og roki, kaldir úti fyrir bílskúrsdyr- um og reyndum að tjónka við falska laglínu og brotna hrynj- andi vanstilltrar bílvélar og oftar en ekki höfðum við betur og upp- skárum þennan kliðmjúka nið sem bara gangviss mótor og malandi köttur geta gefið frá sér. Sá sem séð hefur Svan njóta hljómfalls tónlistar, skáldskapar eða taktfastra slaga mótorsins, sá hefur hugmynd um hinn hreina tón sem tengist meira vinnu, lestri, samveru og fram- komu við menn og málleysingja en guðlegri gáfu. Svanur var víðförull heims- borgari, ungur fór hann til sjós og það varð hans hlutskipti að sigla um heimshöfin og sjá lönd og þjóðir sér til fróðleiks og ánægju en stundum hryggðar. Hann menntaðist af vinnu, lestri og ferðalögum og bjó yfir skarp- skyggni og greind. Hann var dýravinur og barngóður og naut þess að vera með sínu fólki í góðri veislu og blanda geði við unga sem aldna. Hann hlustaði á börn og dró lærdóm af samræð- um við þau. Hann heyrði lítinn frænda Sigríðar konu sinnar segja að maður ætti að vera glað- ur í lífinu. Sú lífsspeki hitti Svan í hjartastað, þetta var hans lífs- sýn: vera glaður í lífinu! Svanur náði háum aldri, tók áföllum í einkalífi með æðruleysi og kjarki en naut lífsins og lifði fögru lífi með reisn. Nú þegar siglingu Svans er lokið kveð ég hann með ljóðlínu úr kvæði Laxness, Hallormstað- arskógi, sem hann hafði oft yfir. Ég sé hann fyrir mér sem þann pamfíl sem er „alkominn heim um Atlantshafið hvíta“ og hann á góða heimvon. Eiríkur Páll Eiríksson. Svanur Karlsson hefur lokið dvöl sinni hér á jörðu. Ég kynnt- ist Svani fyrir fjörutíu og fimm árum, þá var ég ung og nýtrúlof- uð frænda hans Sigmundi Karli. Svanur tók í höndina á mér og horfði á mig með aðdáun og sagði: „Mikið ert þú falleg stúlka og með falleg augu í réttum lit.“ Í kjölfarið fylgdi ljóð um fagurt og ástfangið fljóð sem ég hélt að hann væri bara rétt í þessu að yrkja um mig. Svanur var ein- stakur maður, sérstaklega myndarlegur með góða nærveru. Hann heillaði mig algerlega upp úr skónum, mér fannst hann vera næstum óraunverulegur þar sem hann notaði hvert tækifæri til að kasta fram ljóði með hrósi og fögrum orðum. Svanur orti hundruð ljóða og mundi stóran hluta þeirra fram að andláti. Þegar fyrsta barnabarnið mitt var skírt mætti Svanur með gjöf sem var hálsmen með blágráum steini og sagðist hann hafa valið þetta eftir augnlit litlu stúlkunn- ar. Hann tók líka alltaf í hend- urnar á fólki, horfði í augun og sagði eitthvað fallegt. Svanur og seinni kona hans Sigríður fóru með mér í siglingu um Karabíska hafið þar sem hann naut þess að vera á sjó og á svona fínu skipi. Gullfoss var hans skip og vinnu- staður til margra ára en hann naut hverrar mínútu um borð í þessari ferð. Í fyrsta kvöldverð- inum í glæsilegum salarkynnum kom í ljós að þau Sigríður höfðu gift sig áður en lagt var úr höfn. Þau voru eins og ástfangnir ung- lingar, miklir vinir og ákváðum við að gera alla kvöldverði að brúðkaupsveislu. Við hin ýmsu tækifæri um borð stóð Svanur upp og fór með fallegt ljóð, þetta var hans leið til að tjá sig. Mér er minnisstæð nýleg heimsókn á Elliheimilið Grund með tvær brúneygðar sonardætur. Svanur tók í hönd þeirra og horfði í aug- un og sagði að þau væru akkúrat í rétta litnum, og svo kom ljóð. Það var ánægjulegt að fjölskyld- an náði að hittast og halda upp á 90 ára afmæli Svans 2. ágúst síð- astliðinn. Hann lék á als oddi, geislandi brosið og fögur ljóð af vörum hans munu lifa í minning- unni um Svan Karlsson. Hildur Jónsdóttir. Svanur Karlsson ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR LEIFSSON fyrrverandi rafverktaki, Lækjarseli 13, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 7. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. María Helga Guðmundsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Guðjón Sigurðsson, Louisa Aradóttir, Hólmfríður Sigurðardóttir, Eggert Ólafsson, Kolbrún Alda Sigurðardóttir, Gunnar Sigurðsson, Margrét Svavarsdóttir, Kristín Svala Sigurðardóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Rósa S. Guðmundsdóttir, Rúnar H. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN JÚLÍUSDÓTTIR, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraun- búðum, Vestmannaeyjum, mánudaginn 8. apríl. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Svanhildur Eiríksdóttir, Arnór Páll Valdimarsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI VILHJÁLMUR JÓNSSON frá Mjóafirði, Fífuhvammi 17, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánu- daginn 8. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. apríl kl. 15.00. Jenný G. Godby, Jim Dale Godby, Jón Steinar Árnason, Gunnhildur Olga Jónsdóttir, Halla María Árnadóttir, Tryggvi L. Skjaldarson, barnabörn, langafa- og langalangafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.