Morgunblaðið - 11.04.2013, Page 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Þórhildur Ólafs-
dóttir (Tóta á
Hrauni) er sextug í
dag, 11. apríl. Af
því tilefni langar
fjölskylduna til að
gera sér dagamun
og gleðjast með
ættingjum, vinum og samstarfsfólki í
gegnum tíðina í Hafinu bláa við ósa
Ölfusár föstudagskvöldið 12. apríl frá
kl. 19. Blóm og gjafir afþakkaðar, en ef
einhver vill láta eitthvað af hendi
rakna mætti björgunarsveitin Mann-
björg í Þorlákshöfn/Ölfusi njóta góðs
af því. Kennitala: 460387-2569, reikn-
ingur: 0150-26-002003.
Árnað heilla
60 ára
Akureyri Aþena Ósk fæddist 18. júlí
kl. 8.41. Hún vó 2.765 g og var 49 cm
löng. Foreldrar hennar eru Halla
Soffía Tulinius og Óskar Jónasson.
Nýr borgari
Eftir lögguna er líf og ég hætti sáttur eftir tæplega 35 ár í starfi.Þetta hefur verið góður tími, í starfi sem hefur bæði mótaðmig og þroskað. Á þessum ferli hefur maður öðlast þolinmæði
og fær innsýn og skilning á mannlegum brestum. Sér allar birtingar-
myndir og hliðar mannlífsins,“ segir Karl Hjartarson, fv. lög-
reglumaður, sem er 65 ára í dag. Af því tilefni býður hann í dag kl. 18 í
samferðafólki í afmælisboð í sal Lögreglufélags Reykjavíkur við
Brautarholt.
Karl fluttist með sínu fólki í Kópavoginn sem barn. Er alinn upp þar
og austur á Héraði, kom svo í bæinn og nam blikksmíði. Um þrítugt
tók hann sig upp ásamt fjölskyldunni, flutti norður á Húsavík og bjó
þar í átta ár. Þar starfaði Karl fyrst við iðn sína, en munstraðist fljót-
lega í lögregluna á staðnum og starfaði þar og síðar í áratugi í lög-
reglunni í höfuðborginni.
„Áhugamálin eru mörg. Ég hef alltaf haft áhuga á flugi og þá sér-
staklega vélunum sjálfum og virkni þeirra,“ segir Karl sem er liðs-
maður Þristavinafélagsins svonefnda, það er bakvarða Douglas-
flugvélarinnar Páls Sveinssonar. „Við fjölskyldan eigum svo skika
uppi í Borgarfirði. Erum þar við með hjólhýsi og litla lóð þar sem allt
grær sem við setjum niður; tré, blóm og runna,“ segir Karl sem er
kvæntur Ragnheiði Hrefnu Gunnarsdóttur og eiga þau fjögur börn.
sbs@mbl.is
Karl Hjartarson er 65 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lögreglumaður „Sér allar birtingarmyndir og hliðar mannlífsins,“
segir Karl Hjartarson í Kópavogi sem heldur upp á afmælið í dag.
Þar grær allt sem
við setjum niður
H
inrik er alinn upp í
Háaleitishverfinu og
gekk í Álftarmýrar-
skóla. Hann var í
píanónámi hjá Åge
Laarance frá 8 ára aldri og Tón-
listarskóla Sigursveins. Hinrik
spilaði handbolta með Fram alla
yngri flokkana, lék með unglinga-
landsliði Íslands og spilaði yfir 200
meistaraflokksleiki með Fram.
Fjölbreyttur söng- og leikferill
Hinrik stundaði nám við
Menntaskólann við Hamrahlíð en
flutti til Danmerkur frá 1983 og
stundaði tónlistarnám við Kons-
ervatorium í Árósum jafnframt því
að spila handbolta með AGF í
dönsku 1. deildinni. Síðar stundaði
hann söngnám við Söngskólann í
Reykjavík í tvö ár og tók þátt í óp-
eruuppfærslum og í leikhúsum
sem söngvari. Árið 1987 stundaði
Hinrik söngnám við tónlist-
arháskólann í Vín og 1989 hóf
hann leiklistarnám við Leiklist-
arskóla Íslands og útskrifaðist
1993.
Hinrik starfaði sem leikari hjá
Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu,
Leikfélagi Akureyrar og fjölda
leikhópa, t.d. Stopp leikflokknum
Hinrik Ólafsson, leikari, leiðsögumaður og framleiðandi – 50 ára
Vinnur að mynd um
íslenska æðarfuglinn
Síðasti víkingurinn? „Þarna var ég að vinna með Brian Cox við tökur á
sjónvarpsþáttunum The Wonders of the Solar System.“
Fjölskyldan Frá vinstri: Klara Lind Þorsteinsdóttir, Arnar Gísli Hinriksson, Þorsteinn Þór Arnarsson, Hinrik
Ólafsson, Blær Hinriksson, Ísak Hinriksson, Drífa Harðardóttir og Kolka.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón