Morgunblaðið - 11.04.2013, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fataframleiðandi
fagfólksins
BRAGARD
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
G.I.JOE:RETALIATION3D KL.5:40-8-10:20
G.I. JOE:RETALIATIONVIP KL.5:40-8-10:20
SIDEEFFECTS KL.8-10:30
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.5:50-8-10:10
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.8-10:30
THECROODS ÍSLTAL3D KL.5:50
THECROODS ÍSLTAL KL.5:50
DEADMANDOWN KL.8-10:20
OZ:GREATANDPOWERFUL KL.5:20
KRINGLUNNI
SIDEEFFECTS KL. 5:40 -8 -10:20
ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50-8-10:10
JACK THEGIANT SLAYER 3D KL. 10:40
OZ:GREATANDPOWERFUL 3D KL. 5:20 - 8
G.I. JOE:RETALIATION3DKL. 5:30 -8 -10:30
SIDEEFFECTS KL. 8 -10:20
ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50-8
JACKTHEGIANTSLAYER2D KL.8 -10:10
DEADMANDOWN KL.10:30
OZ:GREATANDPOWERFUL 3DKL.5:30
THECROODS ÍSLTAL2D KL.5:50
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
G.I.JOE:RETALIATIONVIP KL.8
SIDEEFFECTS KL.10:20
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.8-10:10 AKUREYRI
SIDEEFFECTS KL. 8 -10:10
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 8 -10:10
FRÁBÆR ÍSLENSK
GAMANMYND
H.S. - MBL
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
EIN FLOTTASTA SPENNUMYND ÁRSINS
THE NEW YORK TIMES
LOS ANGELES TIME
WALL STREET JOURNAL
TIME
NÝJASTA MYND STEVEN SODERBERGH
T.V. - BÍÓVEFURINN
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Norræn kvikmyndahátíð hefst í Nor-
ræna húsinu í dag og stendur til 21.
apríl. Hátíðin er haldin í fyrsta sinn í
ár og er samstarf Norræna hússins,
sendiráða Norðurlanda á Íslandi og
kvikmyndaklúbbsins Græna ljóssins.
Alls verða sýndar tíu kvikmyndir, sú
elsta frá árinu 2008 og þær nýjustu
frá því í fyrra. Aðgangur er ókeypis
og verða allar myndir sýndar með
enskum texta í sal Norræna hússins.
Opnunarmynd hátíðarinnar er
danska kvikmyndin Kapringen, eða
Ránið, frá árinu 2012. Í henni segir
af áhöfn á fraktskipi sem er tekin í
gíslingu af sómölskum sjóræningjum
sem krefjast tugmilljóna dollara
lausnargjalds. Hefst þá mikið tauga-
stríð milli forstjóra skipafyrirtæk-
isins og ræningjanna. Með aðal-
hlutverk fer Pilou Asbæk, sá hinn
sami og leikur Kasper Juul í sjón-
varpsþáttunum Borgen, eða Höllin.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir,
verkefnastjóri hjá Norræna húsinu,
sér um skipulagningu hátíðarinnar
og segir hún sendiráðin í raun halda
hana en Norræna húsið sjái um
framkvæmdina. „Það er í rauninni
bara aukinn áhugi á að kynna nor-
rænar kvikmyndir,“ segir Þuríður,
spurð að því hver sé ástæðan fyrir
því að þessi hátíð er nú haldin í
fyrsta sinn. „Áhuginn á norrænum
kvikmyndum hefur aukist mikið að
undanförnu sem og gæði kvik-
myndanna og það er verið að koma
því á framfæri með þessari hátíð.“
– Þið segið í tilkynningu að áhersla
sé lögð á að sýna gæðamyndir. Hver
sá um að velja myndirnar?
„Það eru sendiráðin,“ svarar Þur-
íður, tvær til þrjár myndir hafi verið
valdar frá hverju landi, frá Noregi,
Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Auk Kapringen verða sýndar kvik-
myndirnar Upperdog (2009), Kauto-
keino-oppröret (2008) og Limbo
(2010) frá Noregi; En enkel till Anti-
bes (2011) og Simon och Ekarna
(2011) frá Svíþjóð; Pussikaljaelokuva
(2011) og Hiljaisuus (2011) frá Finn-
landi og Dirch (2012) og Hvidsten
gruppen (2012) frá Danmörku. Frek-
ari upplýsingar um myndirnar og
dagskrá hátíðarinnar má finna á vef
Norræna hússins, nordice.is.
Líkleg til vinsælda
En hvers vegna varð Kapringen
fyrir valinu sem opnunarmynd? „Það
er í rauninni í samstarfi við Græna
ljósið, þeir stungu upp á þeirri mynd
sem opnunarmynd fyrir okkur. Við
vildum hafa eina nýja mynd og
danski kvikmyndaiðnaðurinn er
náttúrlega mjög framarlega, mynd-
irnar sem koma þaðan núna hafa
fengið mjög góðar viðtökur hjá Ís-
lendingum og þ.a.l. vildum við líka fá
þessa mynd inn. Hún er mjög líkleg
til vinsælda og hefur fengið góðar
viðtökur þar sem hún hefur verið
sýnd,“ segir Þuríður.
– Var lagt upp með að bjóða upp á
ólíkar myndir?
„Já, það var reynt að hafa svolítið
breiðan skala. Það eru þarna myndir
sem byggjast á sannsögulegum
atburðum og myndir í léttari kant-
inum. En það er í raun dramatískur
þráður í þeim öllum, það sem skand-
inavískar myndir eru þekktar fyrir.“
Hvað sýningaraðstöðu Norræna
hússins varðar segir Þuríður að hús-
ið sé með mjög gott sýninga- og
hljóðkerfi og að salurinn taki um
hundrað gesti. „Þetta er í fyrsta
skipti sem hátíðin er haldin og við
erum í rauninni svolítið að prufu-
keyra hana,“ segir Þuríður. „Ef hún
verður haldin á næsta ári eða árum
er stefnan tekin á að eiga samstarf
við bíóhúsin og þá líklegast Bíó
Paradís.“
Dramatískur þráður
Norræn kvikmyndahátíð haldin í fyrsta sinn í Norræna
húsinu Áhersla lögð á gæðamyndir og aðgangur ókeypis
Sjórán Úr opnunarmynd hátíðarinnar, kvikmyndinni Kapringen sem fjallar
um sjórán. Pilou Asbæk fer með aðalhlutverkið í henni.
Uppreisn Kvikmyndin Katuokeino-oppröret er byggð á sönnum atburðum,
segir af uppreisn Sama í bænum Kautokeina í N-Noregi árið 1852.
Sýning á myndbandsinnsetningu kanadísku listakonunnar Aleese Co-
hene, Yes, Angel, verður opnuð í dag kl. 18 í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur og er hún hluti af hátíðinni Sequences. Í innsetningunni má sjá
brot úr ríflega hundrað Hollywood-kvikmyndum frá níunda og tíunda
áratugnum og setur Cohene saman persónur sem eiga í samtali hver
við aðra í atriðum sem varpað er á mismunandi skjái, skv. tilkynningu.
„Ásamt nánast goðsagnakenndum sögumanni segja persónurnar sögu
missis, skammar og að lokum vonar,“ segir um verkið. Í sýningarrým-
inu sé að finna veggmynd af næturhimni sem sé endurskapaður úr
myndbandinu auk ilms sem Cohene bjó til og sótti innblástur í blóðlykt.
Yes, Angel Úr myndbandsinnsetningu Aleese Cohene.
Brot úr yfir 100 Hollywood-myndum
Charlotte Laub-
ard, sýning-
arstjóri og for-
stöðumaður
CAPC-nútíma-
listasafnsins í
Bordeaux í
Frakklandi,
heldur í kvöld kl.
20 erindi um
stöðu samtímalistasafna á 21. öld, í
Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi. Erindið er hluti af fyr-
irlestraseríunni Umræðuþræðir,
liður í dagskrá sjónlistahátíð-
arinnar Sequences og unnið í sam-
starfi við franska sendiráðið á Ís-
landi og Alliance Française. Af
öðrum störfum Laubard má nefna
skrif fyrir alþjóðleg listtímarit, m.a.
ArtForum.
Staða samtíma-
listasafna á 21. öld
Charlotte Laubard
Ásgeir Long
opnar ljós-
myndasýningu í
Menningarsal
Hrafnistu í Hafn-
arfirði í dag kl.
13.30. Ásgeir
hefur um ævina
verið iðinn við
ljósmyndun og
kvikmyndagerð. Árið 2001 stóð
Hafnarborg fyrir umfangsmikilli
sýningu á ljósmyndum eftir hann,
Svona var Fjörðurinn og fólkið, þar
sem sýndar voru nær 300 myndir
sem Ásgeir tók í heimabæ sínum,
Hafnarfirði. Ásgeir hefur hlotið
fjölda verðlauna fyrir kvikmynda-
gerð, m.a. gullverðlaun á hátíð í
Atlanta árið 1973 fyrir heimild-
armynd um Vestmannaeyjagosið.
Sýning á ljósmynd-
um Ásgeirs Long
Ásgeir Long