Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 3. A P R Í L 2 0 1 3  Stofnað 1913  85. tölublað  101. árgangur  HEFUR ALLT SEM UNG- LINGAR VILJA UNDARLEGAR KENNDIR Á MEÐGÖNGU FÉKK AÐAL- HLUTVERK Í BRESKRI MYND SUNNUDAGSBLAÐ GUÐMUNDUR INGI 52SUMARBÚÐIR Á SPÁNI 10 Morgunblaðið/Kristinn Keilir Bók um bæjarfjöll í bígerð. Stundum eru þau óumdeild. Er Keilir bæjarfjall Voga?  Vegna fyrirhugaðrar bókar um íslensk bæjarfjöll hafa sveitarfélög verið að útnefna bæjarfjöll. Sums- staðar er málið einfalt, bæjarfjallið er óumdeilt, en annars staðar koma fleiri fjöll til greina og jafnvel eru deildar meiningar um hvert sé hið eina sanna bæjarfjall. Reykvíkingar virðast ekki hafa útnefnt borgarfjall formlega. Fæst- um dylst þó hugur um að Esjan hafi þann sess. Þorsteinn Jakobsson göngugarpur sem er að safna efni í bók um íslensk bæjarfjöll með því að ganga sjálfur á fjöllin með hópa segir að Vífilsfell sé bæjarfjall Kópavogs. Málið vandast þegar komið er á Suðurnesin. Þar blasir við Keilir sem sumir telja bæjarfjall Voga. »18 Hvert er bæjarfjallið í þínu sveitarfélagi? Morgunblaðið/Golli Útgáfa Jón Steinar áritar ritið í bókaverslun Eymundsson. „Ég hvet menn til að herða upp hug- ann.“ Svona byrjar ritgerðin Veik- burða Hæstiréttur – verulegra úr- bóta er þörf, eftir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæsta- réttardómara. Bókin kom út í gær. Þar gagnrýnir Jón Steinar réttinn harkalega á ýmsa lund og ræðir m.a. um fjölskyldustemningu og kunn- ingjagæsku við val á varadómurum. Ræða þurfi um réttinn á gagnrýninn hátt. Jón Steinar bendir á að álag á Hæstarétt valdi því að síðustu ár hafi 75-80% af munnlega fluttum málum verið dæmd af þremur dómurum. Þriggja manna dómar veki spurning- ar um fordæmisgildi dóma og hann nefnir dæmi um að niðurstaða í sam- bærilegum málum hafi ráðist af því hverjir kváðu upp dóminn. „Hvað á dómari að gera ef svo stendur á að þrír aðrir dómarar við réttinn hafa nýlega staðið að dómi í sambærilegu máli og því sem hann fæst við en hann er á annarri skoðun en þeir um lögskýringuna sem beitt var? Á hann að hlýða samvisku sinni og dæma eft- ir bestu vitund eða á hann að beygja sig í þágu samræmisins?“ »22-23 Hörð gagnrýni á Hæstarétt  Jón Steinar Gunnlaugsson segir réttinn veikburða Ekkert lát er á frostinu sem hefur verið und- anfarið á öllu landinu en frost á Grímsstöðum á Fjöllum fór upp í 21 stig í gær. Á Mývatns- öræfum fór frostið í 18 stig og einnig á Sand- búðum í gærkvöldi. Spáð er norðlægum áttum og köldu veðri fram eftir næstu viku en það er ekki fyrr en á föstudaginn að líkur eru á að hlýni í veðri. Frostið mun víða nálgast tveggja stafa tölu, einkum inn til landsins á kvöldin en yfir daginn fer hitinn víða yfir frostmark. Í dag er spáð vaxandi austan- og norðaustanátt og éljum við suðurströndina og á annesjum fyrir norðan. Kuldi í kortunum fram eftir næstu viku Morgunblaðið/Kristinn  Verð á fasteignum á landinu öllu hækkaði um 0,91% að raungildi á tímabilinu frá janúar 2010 og fram til janúar á þessu ári. Verðið hefur hækkað frá 2010, það hefur hrunið miðað við bóluárið 2007 en hækkað ef mið er tekið af árinu 2004. Þessa þróun má sjá út úr tölum Hagstofu Íslands með samanburði við vísitölu markaðsverðs húsnæðis, sem bygg- ist á gögnum frá Þjóðskrá Íslands, og vísitölu neysluverðs. »30 Miklar sveiflur á fasteignaverði Morgunblaðið/ÞÖK „Við erum þeirrar skoðunar að gera þurfi verulegar breytingar á skattkerfinu,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsókn- arflokksins. „Við leggjum áherslu á mik- ilvægi þess að einfalda skattkerfið. Eins og frægt er hafa verið gerðar um 200 breytingar á skattkerfinu, fyrst og fremst til að flækja og hækka skatta. Við þurfum að ein- falda það og innleiða jákvæða hvata í stað neikvæðra – hvata til að vinna meira, ráða fólk í vinnu og framleiða meira.“ Þá boðar hann lækkun trygginga- gjalds og hækkun skattleysismarka sem tekjujöfnunarleið. „Það gengur ekki að skilgreina millitekjufólk sem hátekjufólk,“ segir hann. Í ítarlegu viðtali í blaðinu í dag ræðir Sigmundur um niðurgreiðslur á skuldum heimilanna, afnám verð- tryggingar og fleira. »28-29 Vilja skattalega hvata til að ráða og framleiða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Spáin kemur ekki á óvart. Við dormum hér í einhverju, sem er mest drifið áfram af sparnaði fólks sem heldur uppi aukinni einkaneyslu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ um þjóðhagsspá sem Hagstofan sendi frá sér í gær. Þar er gert ráð fyrir mun minni hagvexti en áður. Hann segir ennfremur, að með því að auka einkaneyslu án þess að hún eigi rót í aukinni verðmætasköpun, sér- staklega útflutningi, þá sé voðinn vís og forsendur gengisins geti brostið. „Veikar forsendur hagvaxtar styðja ekki við gjaldmiðil – nema síður sé. Styrkleiki hans ræðst af jákvæðum væntingum inn í framtíðina. Þessi spá ýtir ekki undir það,“ segir Gylfi og ítrekar að mikinn vanda sé við að eiga í efnahagsmálum. „Spáin sýnir stöðnun í hagkerfinu; fjárfestingar eru að dragast saman, þetta er ekki gott ástand og örva þarf fjárfestinguna verulega,“ segir Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins. Hann bendir á að aukin skatt- heimta sé stór þáttur í því að fjárfestingar hafa dregist saman. „Álögur á atvinnulífið hafa aukist um 62 milljarða króna á ári á sama tíma og um 150 milljarða vantar í fjárfest- inguna. Það má einnig horfa til veiði- leyfagjaldsins; sem sligar lítil og meðalstór fyrirtæki í útgerðinni, Þau geta ekki staðið undir gjaldinu og því er ljóst að það er að leiða til verulegr- ar samþjöppunar í greininni, sem er þvert á það sem stefnt var að,“ segir Þorsteinn og bendir á að sjávarút- vegurinn sé sú atvinnugrein sem ætti að vera viljugust til fjárfestinga en raunin sé önnur. Spáin staðfestir stöðnun  Skattaálögur og veiðileyfagjald sliga fyrirtækin  Veikur hagvöxtur styður ekki gjaldmiðilinn  „Álögur á atvinnulífið hafa aukist um 62 milljarða króna á ári“ MHorfur um hagvöxt versna »25

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.