Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 2

Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Matvælaframleiðsla, tollvernd og fæðuöryggi Hver á að framleiða matinn okkar? Fyrirlesari: Christian Anton Smedshaug, doktor í umhverfisfræðum og höfundur bókarinnar „Feeding theWorld in the 21st Century.“ mánudagur 15. apríl kl. 12.00-13.30. 2. hæð Hótel Sögu, í salnum Kötlu Sjá nánari upplýsingar á bondi.is Erindið fer fram á ensku. Allir velkomnir - aðgangur ókeypis. Hádegisfundur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Það var áhrifarík stund á málþingi um matarfíkn og átvanda þegar 28 matarfíklar stigu á svið en þeir höfðu samtals lést um 1,1 tonn. Svar- ar það til tæpra 40 kílóa á mann. Málþingið var haldið í tengslum við stofnun samtakanna Matarheilla. Fram kom að fólkið hafði að með- altali verið í fráhaldi frá mat í rúm þrjú ár. Margir höfðu losnað við sjúkdóma sem höfðu hrjáð þá lengi, ýmist alveg eða dregið úr þeim veru- lega. Þeir höfðu losnað við lyf, eins og sykursýkislyf, blóðfitulyf, þung- lyndislyf, háþrýstingslyf og verkja- lyf. „Það er til lausn,“ er yfirskrift yf- irlýsingar hópsins og niðurstaða hans er: „Öll höfum við eignast nýtt líf.“ helgi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar „Öll höfum við eignast nýtt líf“  28 matarfíklar sem misst höfðu samtals 1,1 tonn sýndu árangur sinn „Vigtin er snilldin að mínu mati. Við vigtum allt sem við borðum,“ sagði Rut Jensdóttir sem sagði sögu sínu á málþingi um matarfíkn. Hún hefur glímt við offitu alla sína ævi og reynt flest sem í boði er. Eftir að hún byrj- aði í meðferð hjá MFM-miðstöðinni hefur hún lést um 45 kíló. „Ég fer með vigtina mína hvert sem er. Vigtin er eins og mín gleraugu því ég skynja ekki matarstærðir. Á þessum fimm árum hef ég vigtað 5500 mál- tíðir og borðað um tvö tonn af grænmeti.“ Hefur vigtað 5500 máltíðir VIGTIN ER EINS OG GLERAUGU MATARFÍKLA Rannsóknanefnd sjóslysa lauk í gær rannsókn sinni á því er Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs í aftakaveðri 25. janúar í fyrra. Að sögn Inga Tryggvasonar, formanns nefndarinnar, eru meginniðurstöður þær að ágallar hafi verið á lensikerfi skipsins og stjórnbúnaður lensi- dælna hafi ekki virkað sem skyldi. Mikill sjór hafi safnast í skipið og hafi sjósöfnunin aukist eftir að skipið fór að hallast. Með skipinu fórust þrír skipverj- ar, en Eiríkur Ingi Jóhannsson vann einstakt þrekvirki er hann komst í björgunarbúning og frá sökkvandi skipinu. Það var ekki fyrr en tæpum fjórum klukkustundum síðar að hon- um var bjargað úr köldum sjónum um borð í norska björgunarþyrlu. aij@mbl.is Lensikerfið virkaði ekki sem skyldi Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hallgrímur SI-77 Skipið fórst í af- takaveðri undan ströndum Noregs. „Það er enn verið að vinna að henni en við erum á lokametrunum. Efn- islega er hún tilbúin en við nefnd- armennirnir erum í yfirlestri,“ segir Gunnar Tryggvason, formaður nefndar um framtíðarhorfur og framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs. Starfshópurinn var skipaður af velferðarráðuneytinu. Hlutverk hans er jafnframt að fylgjast með framgangi aðgerða til þess að bæta eiginfjárstöðu Íbúðalánasjóðs og tryggja rekstur sjóðsins til lengri tíma litið. Gunnar vildi ekki tjá sig efnislega um skýrsluna og sagði velferð- arráðherra geta svarað því nánar hvenær hún yrði birt. Töluverð bið hefur verið eftir skýrslunni enda varðar niðurstaða hennar fjölmarga. Morgunblaðið/Ómar Íbúðalánasjóður Efnislega er skýrsla um framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs tilbúin. Skýrsla um ÍLS á lokametrunum Mikil snjóflóðahætta er á ut- anverðum Tröllaskaga að sögn Veðurstofu Íslands. Töluverð hætta er á norðanverðum Vestfjörðum og Austfjörðum. Tvö snjóflóð voru sett af stað á Tröllaskaga í upphafi vik- unnar. Náttúruleg snjóflóð hafa einnig fallið. Bætt hefur í snjó þessa vikuna og mikill kuldi verið, í slík- um kulda er viðbúið að veik lög geti myndast í snjóþekjunni eins og hef- ur sýnt sig á Tröllaskaganum. Snjóflóðahætta á Tröllaskaga „Okkur þykir mjög skrítið að skenkja okkar fyrirtækjum og fé- lagsmönnum það hlutskipti að keppa á jafnréttisgrundvelli við ríki sem virðir ekki mannréttindi,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu- sambands Íslands, en sambandið leggst gegn því að íslensk yfirvöld skrifi undir fríverslunarsamning við Kína. Enn fremur leggur Gylfi til, að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis- ráðherra Íslands, sem nú er stödd í Kína til að undirrita samninginn við kínversk stjórnvöld, taki upp við- ræður um stöðu mannréttindamála í landinu og skyldur Kína gagnvart alþjóðasamfélaginu. Hann segir þessa afstöðu ASÍ hafa legið fyrir og sambandið hafi gert stjórnvöldum þetta ljóst í vetur. „Það er nær að gera ekki samning fyrr en hann er orðinn ásættanlegur,“ segir Gylfi. ASÍ mótmælir fríverslunarsamn- ingi við Kína Atvinnuleysi var 5,3% í mars sam- kvæmt nýjum tölum Vinnumála- stofnunar. Að meðaltali voru 8.487 atvinnulausir í mars og fækkaði at- vinnulausum um 228 að meðaltali frá febrúar eða um 0,2 prósentustig. Að jafnaði er atvinnuleysi í há- marki yfir vetrartímann, en tölurnar sem birtar voru í gær bera með sér að vetrarsveiflan hefur náð hámarki. Búast má við að atvinnuleysi minnki næstu mánuðina. ASÍ bendir á að at- hygli veki að fækkun atvinnulausra sé meiri á landsbyggðinni en á höf- uðborgarsvæðinu og þar af mest á Suðurnesjum eða 0,7%. Minnsta at- vinnuleysið mældist á Norðurlandi vestra, 1,8% en mest á Suðurnesjum, 8,8%. Sé horft á atvinnugreinar kemur fækkun atvinnulausra að mestu fram í flutningastarfsemi, gistingu, veit- ingum og mannvirkjagerð sem rekja má til árstíðarsveiflu tengdrar ferða- mannatímabilinu og íbúðabygging- um. Engin hópuppsögn var tilkynnt í síðasta mánuði. Af þeim hópi fólks sem er atvinnu- laus höfðu 47% eingöngu lokið grunnskólaprófi, næstmest var at- vinnuleysi meðal háskólamenntaðra, eða 18%. Alls voru 1.618 erlendir ríkisborg- arar án atvinnu í lok mars eða um 19% allra atvinnulausra. Af þeim voru 920 Pólverjar eða um 57% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. thorunn@mbl.is Atvinnulausum fækkaði úti á landi  5,3% atvinnuleysi á landinu í mars  Vetrarsveiflan hefur náð hámarki Morgunblaðið/Golli Atvinnuleysi 5,3% atvinnuleysi mældist í mars. Að meðaltali voru það 8.487 einstaklingar. Þeim fækkaði um 228 frá febrúar eða um 0,2 prósentustig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.